Aðventfréttir - 01.01.2002, Síða 13

Aðventfréttir - 01.01.2002, Síða 13
Heilsuhornið HNETUBUFF 2 bollar soðin hýðishrísgrjón 100 gr heslihnetuflögur, ristað- ar 1 tsk salt ltsk karrý 2 msk tómatpúrré 1/8 tsk cayennepipar rasp malaðar heslihnetur haframjöl 1) Öllu blandað saman í skál (hrærivél). 2) Lítil buff mótuð og þeim velt upp úr raspi. 3) Steikt á pönnu úr smá olíu ca. 3-5 mín. á hvorri hlið eða þar til gullið. 4) Borið fram með bökuðu græn- meti eða matarmiklu salati. ANANASTOFU-OSTATERTA 1) Byrjið á því að gera venjulegan kexmylsnubotn (í staðin fyrir smjörlíki er hægt að nota hlyn- síróp). 2) Fylling Látið liggja í bleyti í 5 mín: 3 msk agar- agar flögur og V^bolla af köldu vatni. 3) Blandið mjög vel saman í blandara þangað til alveg kremað: '/i bolli ananassafi (tekinn af ananasdósinni) '/i bolli kasjúhnetur. 4) Bætið síðan út í og blandið aft- ur mjög vel: 3/4 bolli ósykraðir ananasbitar án safa 'A tsk salt '/i bolli hunang '/i tsk sítrónusafi eða dropar '/i tsk rifin sírtónubörkur 280 gr tófú (fasta tegundin) 5) Látið síðan agar- agar sjóða í 4- 5 mín. og bætið út í ananas-tófu blöndunni. Blandið vel en ekki of lengi því agarið stífnar fljótt. Hellið síðan yfir botninn og kælið í 6-8 klst eða yfir nóttina. Borið fram fallega skreytt með kíwi og rifsberjum. HVÍTLAUKSOLÍA 1 dl ólífuolía græn 5 hvítlauksrif 'h agúrka 1 msk sítrónusafi svolítið af steinselju salt á hnífsoddi 1) Allt sett í matvinnslu- vél/blandara 2) Borið fram sem sósa með mat eða á pitzuna! KJÚKLINGABAUNIR í KARRÝ 1 tsk olía 2 stk laukur sneiddur 4 stk hvítlauksrif, pressuð 1 tsk chilli duft 1 tsk salt 1 tsk turmeric duft 1 tsk paprikuduft 1 msk cumin duft 1 msk coriander duft 880 gr kjúklingabaunir soðnar 440 gr tómatar úr dós (gott að mixa þá) 1 tsk garam masala duft (má vera meira) 1) Hitið olíuna í potti, bætið lauk og hvítlauk úti í og látið krau- ma þar til laukurinn verður mjúkur. 2) Bætið út í chilli, salti, turmeric, papriku, cumin og coriander kryddinu. Látið krauma í 2-3 mín. 3) Bætið út í kjúklingabaunum og tómatmaukinu. Látið krauma yfir vægum hita í 20 mín. Hrær- ið í af og til. 4) Bætið út í garam masala krydd- inu. Látið krauma með loki í ca. 10 mín. Ath: getur þurft að bæta meira garam masala út í, fer eftir smekk. Borið fram með naan brauði eða venjulegu brauði, fersku salati og hrísgrjónum. Einnig gott að hafa ns.perur með og setja ferskar döðlur í salatið. Alþjóðleg róðstefna um grænmetisfæði Fjórða alþjóðlega ráðstefnan um næringu grænmetisfæðis(vegeterian nutrition) verður haldin að Loma Linda University, California, dagana 8-11 apríl 2002. Þessi ráðstefna er haldin 5 hvert ár og gefur ýtarlegt yfirlit yfir nýjustu rannsóknir hvað varðar næringu grænmetisfæðis og einnig gefst tækifæri til að ræða mál- in. Fyrirlesarar koma frá öllum heimshornum og er þetta gullið tækifæri fyrir þá sem stunda rann- sóknir, starfsfólk í heilsugeiranum, nemendur og leikmenn. Þarna verða fyrirlestrar, vinnuhópar og sam- verustundir. Ef þú óskar frekari upplýsinga farðu á www.vegetariannut- rition.org eða skrifaðu til: 4th International Congress on Vegetarian Nutrition School of Public Health, Nichol Hall Room 1115 Loma Linda University Loma Linda CA 92350 USA Sími: (909) 558 7169 Kirkja Sjöunda Dags Aðventista Aðventfréttir 65. árg. -1. tbl. 2002 Útgefandi: Kirkja S.d. aðventista á Islandi Suðurhlíð 36,105 Reykjavík Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gavin Anthony Prentun: Svansprent ehf. Aðventfréttir 13

x

Aðventfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.