Aðventfréttir - 01.02.2008, Page 7
þessu liggur ætlan Guðs með okkur.
Allir Guði helgaðir einstaklingar ættu að
líta hátt og klæðast alvæpni Guðs....
Trúboð felst ekki nauðsynlega í boðun í
framandi landi. Akrarnir eru fullþroska
allt í kring um okkur. Látið af allri
værð.... Farið og veitið bágstöddu
kirkjusamfélagi aðstoð. Hristið af ykkur
andlega slenið. Leggið allt ykkar í að
boða bandingjum lausn og
gnægðagáttir himnanna munu opnast
fyrir ykkur og þið munuð að endingu
heyra: „Vel gert, þú trúfasti þjónn, gakk
uðum í voninni og trúnni mun ekki koma
okkur í opna skjöldu....
Við þurfum á trúboðum að halda heima-
við. Við þörfnumst trúboða sem eru
reiðubúnir að kanna nýjar slóðir og
takast á við óvissuna. Notið þær
talentur sem Guð gaf ykkur, því Ijöldi
þeirra skiptir ekki máli....
Hversu vildi ég ekki miklu heldur mæta
frammi fyrir meistara mínum í tötrum
einum klæða í skiptum fyrir allan
heimsins auð. Veittu mér afrakstur
inn til fagnaðar herra þíns.“....
Trúin á Jesú Krist er lifandi meginregla í
lífi okkar, þar sem sérhver hugsun og
sérhvert handtak er fólgið vilja hans....
Framundan er mikið og yfirmáta mikil-
vægt verkefni í því að búa samferða-
menn okkar undir að standa frammi fyrir
Drottni á hinum efsta degi. Megi Guð
veita okkur leiðsögn að ganga fram að
vilja hans....
Þú munt skilja sannleikann og þann
undirbúning sem þarf fyrir þennan mikla
dag ef þú gengur í auðmýkt með Guði.
„Hinir leyndu hlutir heyra til Drottni
okkar og Guði, en það sem opinberað
hefur verið er okkur ætlað og börnum
okkar um alla tíð.“ Ef þetta er þín bjarg-
fasta trú og sýnir þá það í daglegu lifi
þínu, munt þú njóta dýrðarljóma
himnanna um allar aldir. Við ættum
ekki að reyna að skilja að fullu alla þætti
tilverunnar, heldur láta okkur nægja
einfaldleika guðhræðslunnar.
Hið eilífa líf er að finna i Jesú Kristi,
sem opnaði leiðina fyrir okkur
hindrunarlaust, þannig að sérhver sá,
óháð gáfum og gjörvileika, sem þráir að
þekkja sannleikann mun finna hann.
Hið illa er allt í kringum okkur og vinnur
beinskeytt gegn samviskufrelsi okkar.
Nú munu þeir sem ekki sinntu verkinu
þagna og þeim verður orða vant, en
endurkoma frelsara okkar sem störf-
starfs mins í frelsun annarra og ég mun
ekki fara fram á neitt það sem þessi
heimur hefur upp á að bjóða....
Gefið ykkur til starfsins af heilum hug og
Guð mun starfa með ykkur.
Ellen G. White
Þessi grein er úrdráttur úr Advent Review &
Sabbath Herald, 18. desember 1888. Það er
yfirlýst stefna Kirkju sjöundadags aðventista
ad andi spádómsins hafi hvilt yfir Ellen G.
White á 70 ára löngum starfsferli hennar.
LOKSINS!
LOKSINS!
LOKSINS!
Nú eru loks komnir út bæklingar á
íslensku. Þessir bæklingar eru
eftir Jón Hjörleif Stefánsson og
fjalla um eftirfarandi efni:
Lögmálið
Sköpunin
Biblían
Hvað er réttlæting fyrir trú?
Messias
Spádómurinn um Evrópu
Guð ergóður. Heimurinn er
vondur. Hvers vegna?
. Náð
Upplagt boðunartæki. Ritin eru í
A6 broti og því handtæk að hafa
með í töskunni, hanskahólfinu eða
í jakkavasanum, hvert sem farið
er! Vertu ávallt reiðubúin(n) þegar
Guð vill nota þig til að koma
boðskap sínum á framfæri.
Hægt er að nálgast bæklingana á
skrifstofu Kirkjunnar. Þá er upp-
lagt fyrir söfnuðina að fjárfesta í
eintökum til að hafa í kirkjunum og
einnig til boðunar á þeirra svæði.
Verð: 20 kr. stykkið.
ADVANCE 2008
Ætlar þú til Birmingham um páskana?
Hópur af ungu fólki ætlar á þetta spennandi ungmennamót í Englandi, skelltu þér
með! Mótið hefst á miðvikudagskvöldi 19 mars og stendurtil sunnudagsins 23 mars.
Margir spennandi ræðumenn, t.d. Randy Skeete, Jefferey Rosario, Ron du Prez,
Clifford Goldstein og Stephen Bohr. Kíktu á síðuna www.necyd.com og fáðu frekari
upplýsingar varðandi kostnað og dagskrá.
Þetta mót er í líkingu við EYC mótið sem var á íslandi í fyrra. Gist verður á 4 stjörnu-
hóteli. Kostnaðurer rúmlega 50.000 kr. miðað við flugverðið 24. jan.
Athugið að senda þarf inn umsóknarblað en það er að finna á sömu vefsíðu.
Endilega hafið samband við Þóru Lilju (thoralilja@yahoo.com eða gsm: 822-4931)
eða Söndru Mar (sandra@adventistar.is eða gsm: 696-3979) til að fá nánari
upplýsingar um ferð íslenska hópsins.
AÐVENTFRÉTTIR • Febrúar 2008
7