Aðventfréttir - 01.02.2008, Qupperneq 11
Barnasíðan
Svipmyndirfrá náttfatapartíi krakkanna í
Loftsalnum 26. janúar. Myndir Örn Jónsson
HRAFNARNIR KOMU AFTUR
Bið þú mig og ég gef þér þjóðir af
erfðum og víða veröld til eignar. Sálm.
2:8
Bill Neely elskar að heyra um krafta-
verk. í fjölskyldu hans hafa gerst svo
mörg kraftaverk, sem hafa sýnt mátt
og varðveislu Guðs að hann skilur
bara ekkert í því hvað það eru margir,
sem segja að Guð sé ekki til.
Móðir hans var alltaf að segja við
föður hans að hún mundi svo gjarnan
vilja vera gift presti. En faðir Bills var
rafvirki og hafði unnið við það í 10 ár.
Hún hélt nú samt áfram að biðja
manninn sinn um að fara í guðfræði og
gerast prestur, þangað til að hann lét
undan og ákvað að fara í guðfræði í
Háskólanum.
Það voru erfiðir tímar.
- Pabbi - sagði Bill einn kaldann
morgunn - það er engin mjólk I ís-
skápnum og morgunkornið er búið. -
Ég veit það sonur minn, - sagði
pabbi - ég held að það sé kominn
tími til að hrafnarnir heimsæki okkur.
Þá mundi Bill strax eftir biblíusög-
unni þar sem að hrafnarnir færðu
Elía spámanni mat. Seinna
þennann sama dag kom pabbi heim
með þrjá lítra af mjólk, sem einn kunn-
ingi úr skólanum hafði gefið honum
vegna þess að hann hafði keypt of
mikla mjólk og var hræddur um að hún
mundi skemmast.
Einni viku seinna gerðist það að móðir
Bills fékk ekki útborgað á réttum tíma,
en hún vann úti til að halda uppi
heimilinu. Heima var bara til salt, hveiti
og frosið grasker. Þau öll voru
orðin mjög svöng, en börnin tóku
eftir því að foreldrar þeirra voru
bæði jákvæð og vongóð, eins og
að eitthvað gott ætti eftir að
gerast.
Seinna þegar þau voru að
syngja sálma saman
heyrðu þau
bankað fast á útidyra-
hurðina. Mamma hljóp
til að opna, en sá enga
manneskju, nei, en hún
starði hissa á það sem
hún sá, þarna fyrir utan
voru tveir stórir inn-
kaupapokar fullir af
mat! Og þessi matur entist alveg
þangað til að mamma fékk útborgað!
Einu sinni bilaði bíllinn þeirra. Þá bauð
ein rík og góð kona þeim með sér á
bílasölu og keypti nýjann bíl handa þeim
og borgað líka
tryggingar bílsins
í eitt ár!
Efast þú ennþá
um að Guð geri
kraftaverk í dag?
Ekki gleyma þvi
að allt þetta
byggist á að treysta honum.
Þýðandi: Anna Kjartansdóttir.
Þýtt úr : Metitacao Juvenis 2007, Casa
Publicadora Brasileira.
Falda versið
Krakkar,
getið þið fundið falda versið?
Héreru nokkrar vísbendingar. Munið
að skrifa orðið nákvæmilega eins og
það stendur í vísbendingunni.
1. 10. orðið í 1 Mósebók 1:28.
2. 26. orðið í Job 22:5.
3. Síðasta orðið í Sálmunum
126:3.
4. Fyrsti stafurinn í Biblíunni.
5. Hverjum reisti Nói altari? (1M
8:20).
6. Punktur.
7. 2. orðið I Opinberunarbókinni
14:6.
8. 18. orð í Sálmunum 73:28.
9. Slðasta orðið í Prédikaranum
11:1.
10. Tvlpunktur.
11. 3.orðið 11 Pétursbréfi 3:8.
12. Verið ætíð____________.
IÞessalóníkubréf 5:16.
13. Punktur.
Vitið hvar þetta vers er að finna I
Biblíunni?
(Athugið notastervið Biblíuna í útg. frá 1981).
AÐVENTFRÉTTIR • Febrúar 2008