Bræðrabandið - 01.07.1974, Qupperneq 6
Bls. 6 -BRÆÐRABANDIÐ 6.-7.tbl
T(M D/hmu
VEJLEFJORD HÖJERE SHOLE
Hvíldardagurinn 4. maí, var mikill dagur á VHS. Þann
dag fór fram skírn þar sem 20 ungmenni tóku stefnu með Guði
og voru skírð. Þar á meðal voru tvær íslenzkar stúlkur,
Erla Gunnarsdóttir frá Reykjavík, og Áslaug Brynjarsdóttir
frá Kristneshæli við Akureyri. Erla hefur verið tvö ár
hérna á skólanum. Hún kom hingað fyrir milligöngu Aðvent
skyldmenna sem hún á í Nærum. Hún mun halda hér áfram
næsta skólaár, en verður á íslandi í sumar.
Áslaug kynntist söfnuðinum gegnum sunnudagaskóla
sem Steinþór Þórðarson og Lilja Guðsteinsdóttir héldu þegar
þau voru starfandi fyrir norðan. Hún sagði mér að einhver
áhugi hefði alltaf verið hjá sér síðan. í fyrra vetur,
á meðan ég enn var á íslandi, hringdi st. Gyða Thoroddsen
til mín með fyrirspurn um skólavist fyrir Aslaugu á Vejle-
fjord. Þetta leiddi til þess,að hún kom hingað við byrjun
skólaársins. Dvöl hennar hér hefur svo leitt til þess að
hún tók ákvörðun með boðskapnum. Hún mun einnig koma aftur
næsta skólaár, en verður heima í sumar.
Þegar þessar línur eru skrifaðar erum við að nálgast
lok skólaársins. Prófin eru hafin. Guðfræöideildin (B.A.
bekkurinn) var búin 1. maí. í þeim bekk voru tveir
íslendingar, Óðinn Pétur Vigfússon og Guðmundur Gunnarsson.
Hafa þeir nú lokið námi hér, en halda áfram næsta vetur
á Newbold College. Þetta er vissulega framtíðar starfs-
fólk fyrir ísland.
Nemendafjöldinn á VHS. hefur í vetur verið 146 í níu
bekkjardeildum. Þegar hafa borizt um 160 umsóknir fyrir
næsta skólaár, svo það er orðið fullt. Það er samt ekki
of seint að sækja um, ef vera skyldi að einhverjir
íslendingar hefðu áhuga á að stunda menntaskólanám hér.
Næsta skólaár veröa^ allar deildir menntaskóla, og næst vor
útskrifast fyrstu stúdentarnir héðan. Fyrir íslendinga
myndi stærðfræöideildin e.t.v. henta bezt, þar eð mála-
deildin hér í Danmðrku krefst latínukunnáttu.