Bræðrabandið - 01.12.1974, Síða 1
37.árg. Reykjavík - deseraber
joun
°g
gjafir
Jólin eru haldin til minningar um hina mestu gjöf, sem gefin
hefur verið. "Því að svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn
eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist eigi heldur
hafi eilíft líf." Jóh.3,16. Þessi gjöf er ekki alltaf metin sem
skyldi, en þar sem hún er metin og við henni tekiö veitir hún
ómælanlega blessun.
Án Jesú Krists hefði maðurinn litla von. Allt það sem veitir
gleði og sannan frið í þessu lífi, er frá honum runnið. Vonin um
eilíft líf byggist einnig á honum. í honum eru "allir fjársjóðir
spekinnar og þekkingarinnar fólgnir."
Um jólin gefum við hvert öðru gjafir og er það vel, ef það
eru nytsamlegar gjafir og ef við leyfum okkur ekki meira en
við höfum efni á. Sumir hafa það einnig fyrir fastan sið að gefa
starfi Guðs sérstaka gjöf á þessari gjafanna hátíð. Þeir telja
það óviðeigandi að hlaöa gjöfum hvert á annað, en gleyma alveg
verki Drottins. Þeir telja að þeir hafi þegiö svo mikið af
föðurnum á hæðum að það sé aðeins viðeigandi og sjálfsagt, að
verk hans meðal mannanna hljóti einig gjöf á þessum tíma.
"Þar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera."
Gleðileg jól.
S.B.
12.tbl.1974.
/ í ,
•<; • * .. Hy. ý/\
K--. -ó-v! Wr
. ■ -WW fv' Q
• ?wn