Bræðrabandið - 01.12.1974, Qupperneq 3
Bls. 3 - BRÆÐRABANDIÐ 12.tbl.
Hlýddi á bernskuárum sínum lögum og reglum heimilis síns. Hann
var undirgefinn foreldrum sínum. Hann hélt fimmta boðorðið:
"Heiðra föður þinn og móður til þess að þú verðir langlífur í
því landi sem Drottinn Guð þinn gefur þér." 2.MÓs.20312.
Það verða að vera vissar reglur og boð til að'-ráða á
hverju heimili og börn verða að virða þau.
Á sumum heimilum er börnum leyft að gera það sem þeim
þóknast. Það eru engar hömlur eða aðhald. Börnin koma inn
og fara út eins og þeim þóknast. Foreldrar sem leyfa þess
konar hegðun gera sig sek um alvarleg mistök. Jesús var hinn
fullkomni sonur Guðs. En foreldrar hans settu á reglur í
heimili hans og hann hlýddi þeim. Hugsið ykkur hvernig samfélagiö
yrði án laga. Reyndar höfum við margar reglur í dag«, en glæpir
fara samt vaxandi. Börn sem vaxa upp og venjast á það að
óhlýðnast foreldrum sínum9 eru líkleg til að verða óhlýðin lögum
þegar þau verða fullorðin. Jesús stjórnandi alheimsins hlýddi
bæði reglum heimilisins og lögum þjóðar sinnar.
Hlýðni er nauðsjmlegt skilyrði fyrir hamingjusömu lífi.
Hlýöni gagnvart foreldrum3 hlýðni gagnvart skólayfirvöldum,
hlýðni gagnvart lögreglu3 hlýpni gagnvart reglum landsins sem
þú lifir í, hlýðni við Guð - allt þetta endurspeglar þær venjur
sem settar eru í heimilinu.
En Jesús var ekki aðeins fordæmi gagnvart hlýðni við
foreldra sína. Biblían segir að hann "óx að visku."
JESÚS LEITAÐIST VIÐ AÐ NEMA
Hvernig óx Jesús að visku? Gerði hann það aðeins vegna
þess að hann var sonur Guðs og þurfti ekki að nema? Alls ekkiT
Sem mannssonur varð hann aö vaxa3 þroskast og öðlast þekkingu
rétt eins og hver önnur mannvera verður að gera. Móðir hans
var fyrsti kennari hans. Hann leitaðist við að nema. Hann
undirbjó sjálfan sig. Hann lærði af bókum og af náttúrunni.
Þegar hann var kominn á 12 ára aldur, þekkti hann Gamla testamenntið
betur en hálærðir guðfræðingar. Síðar á starfsferli sínum kom
náttúrunám hans sér mjög vel þegar hann notaði náttúruna í
andlegri fræðslu sinni.
Rétt eins og Jesús óx vitsmunalega3 þannig ætti æskan í
dag að vaxa. Fáfróður kristinn maður er mótsögn við sjálfan
sig. Æskufólk ætti að notfæra sér hvert tækifæri til að nema,
til að öðlast þekkingu og að lesa bextu bækur. Góðar bækur eru
vinir.
Himinninn er takmarkið fyrir vitsmunalegan árangur. Setjið
ykkur hátt takmark og helgið ykkur háleitri þjónustu. Það er
það sem Jesús gerði.
Námsafrek og andlegur þroski þurfa ekki að vera andstæðir
pólar. Æðri menntun þarf ekki að útiloka guðhræðslu. Guð
heldur ekki upp á fáfræði manna. Sumir halda því fram að maður
verði því mun andlegri eftir því sem hann er á lægra stigi vits-
munalega. Jesús sagði aldrei slíkt.' Einn merkur kristinn
rithöfundur skrifaði:"Hugsjón Guðs fyrir börn hans er hærri
en hæsta hugsun mannsins getur náð."