Bæjarblaðið - 29.08.1990, Síða 6
6 BÆJARBLAÐIÐ — Frjálst og óhád
Umhverfismál:
Hitaveitan fegrar
umhverfid
• Hér má sjá hvernig fyrirhugaður skrúðgarður mun líta út í framtíðinni.
„ Vinna audvitað betri
en einvera eða stofnun“
Hitaveita Suðurnesja
laetur ekki sitt eftir
liggja í umhverfismálum.
Hafnar eru framkvæmdir
við lítinn skrúðgarð fram-
an við skrifstofur Hitaveit-
unnar í Njarðvík, en eins
og vegfarendur hafa tekið
eftir hefur talsverðu
magni af jarðvegi verið
ekið á svæðið.
„Það var gerð teikning af
bráðabirgðaskipulagi á lóð-
inni, með það í huga að
þarna eigi að byggja í náinni
framtíð. Við erum að setja
þarna jarðvegsmön og hana
á að tyrfa. Jafnframt verða í
henni stórir steinar og trjá-
gróður.
Astæðan fyrir því að þetta
er komið í gang núna, er sú
að Hitaveitan er að byggja á
mararbakkanum hér á bak
við. Verið er að grafa fyrir
húsinu og uppfyllingarefnið
nýtum við í þennan garð“,
sagði Albert Albertsson hjá
Hitaveitu Suðurnesja í sam-
tali við blaðið.
Aðspurður sagði Albert að
ekki væri ýkja langur verkt-
mi eftir hvað varðar fram-
kvæmdir við jarðvegsmön-
ina. Þá ætti eftir að fá verk-
taka í að ganga frá lóðinni,
þ.e.a.s., að fínjafna, setja
mold og tyrfa. Bjóst Albert
við að þessu yrði lokið í októ-
bermánuði næstkomandi.
Hönnun lóðarinnar hefur
verið í höndum Teiknistof-
unnar Arkar í Keflavík.
Þess má geta að Hitaveitan
hefur verið að láta mála
nokkrar byggingar innan
sinna vébanda. Fyrirhugað er
að endurbyggja nokkrar
spennistöðvar sem orðnar
eru Ijótar og sumar hverjar
jafnvel að hruni komnar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Alberti verður væntanlega
ráðinn maður í að annast við-
hald og fegrun á þessum
húsum.
Undirritaður sótti fyrir-
lestra í júní sl. í Kennara-
háskóla Islands. Fyrirlesari
var Dr. Lou Brown frá
Bandaríkjunum; sérfræðing-
ur í kennslu og starfsþjálfun
fatlaðra. Margt og merkiiegt
kom fram í orðræðum hans
sem kom mér og fleirum í
opna skjöldu, m.a. það hve
samlandar hans virðast vera
komnir langt á undan okkur í
mörgu er lýtur að málefnum
fatlaðra.
Hér á eftir kemur smáút-
dráttur úr fyrirlestrum Dr.
Lou:
„Þau eru hér (360 fatlaðir
einstaklingar eru á Suður-
nesjum. Innskot höf.) hvort
heldur þú ert viðbúinn eða
ekki. Fólk eins og við hin,
með okkur hinum. Við vilj-
um fá þetta fólk út í hringið-
una, á almenna vinnustaði
og í skóla. Við þurfum að
loka stofnunum fyrir fatlaða;
þær eru verstar. Sérskólarnir
og vernduðu vinnustaðirnir
eiga líka að hverfa".
„Sérstakar stofnanir fyrir
mikið fatlað fólk. Þannig
hefur þetta verið. En hugsun-
arhátturinn tók að breytast
fyrir allmörgum árum og nú
er réttilega sagt: Við skulum
ekki læsa þetta fólk inni.
heldur fá það til að taka þátt í
venjulegu lífi með okkur
hinum, en það verður ekki
# Margir kvarta undan
háum sköttum til hins
opinbera og finnst
margt mega betur fara í
rekstri þess. Mikið má
spara í þeim lið er snýr
að málefnum fatlaðra.
gert nema með stuðningi frá
samfélaginu“.
Hér á Suðurnesjum hefur
Atvinnuleit fatlaðra leitast við
að rjúfa einangrun fatlaðs
fólks og fjölmargt fólk hefur
hafið störf sem það getur
sætt sig við. En betur mætti
ganga og atvinnurekendur
þyrftu í ríkari mæli að hafa
samband að eigin frum-
kvæði.
Sparnaður fyrir
samfélagið
Margir kvarta undan háum
sköttum til hins opinbera, og
finnst margt mega betur fara í
rekstri þess. Mikið má spara í
þeim lið er snýr að málefnum
fatlaðra. Um það fjallaði Dr.
Lou: „Þaö er einfaldlega
betri fjárfesting að kenna fötl-
uðum að leggja sitt af mörk-
um á vinnustað heldur en að
loka þá inni á stofnunum eða
meðferðarheimilum. Stjórn-
völd í mínu heimalandi hafa
löngu gert sér grein fyrir
þessu og þróunin hefur verið
í samræmi við það.
Árlegur kostnaður við að
vista fatlaðan mann á stofnun
er nálægt 50.000 dölum.
Fólk vill frekar borga lægri
skatta og sjá fatlaða gera eitt-
hvert gagn. Þetta skilja
vinnuveitendur mæta vel.
Þróunin í mínu heimalandi
síðustu tvo til þrjá áratugi
hefur orðið sú að stofnunum
fyrir fatlaða fer fækkandi og
fatlaða fólkið hefur í auknum
mæli tekið þátt í atvinnulífinu
með okkur hinum.
Afleiðing: Lægri skattar“
Baráttukveðjur
Olafur Þór Eiríksson
Atvinnuleit fatlaðra
Hafnargötu 80, Keflavík
Sími 12362 frá 9-11.
DÓriU HEDUA
KL1PF1M§3R-
system.- . ■
proressional
S
VÚELL/X
Það
besta
fyrir
hárið
Opið mánudaga frá 13-18,
þriðjudaga - föstudaga frá 9-18.
Komið eða pantið tíma.
HÁRGREIÐSLUSTOFA
ÞórunnarJóhanns
Hafnargötu 47 - Stmi 15656