Bæjarblaðið - 30.01.1991, Qupperneq 9
BÆJARBLAÐIÐ - Frjálst og óháð 9
“Erum aö byggja upp
tilsjónarmannakerfi”
- rætt viö Maríu Kristjánsdóttur, fólagsráögjafa hjá
Fólagsmálastofnun Kef lavíkurbæjar.
“Markmið með því að
koma á
tilsjónamannakerfi, er
að rjúfa félagslega
einangrun hins
fatlaða, þannig að
hægt verði að víkka
sjóndeildarhring og
reynsluheim hans”,
segir María
Kris tj ánsdóttir
félagsráðgjafi. “Með
þessu er jafnframt
reynt að aðstoða hinn
fatlaða við að nýta sér
tómstundartilboð,
auka þekkingu hans
og færni í umhverfinu.
Tilsjón við hinn
fatlaða hefur auk þess
í för með sér að álag á
fjölskylduna
minnkar”.
María var innt eftir
því hvaða mannlegir
eiginleikar kæmu að
gagni í starfi
tilsjónarmannsins ?
“Þess er ekki krafist
af tilsjónarmanni að
hann vinni eins og
sérmenntaður
starfskraftur á sviði
uppeldis og
félagsmála, þvert á
móti er álitið að
ósérmenntað fólk geti
lagt heilmikið af
mörkum innan
heilbrigðis og
félagsmála með vinnu
sinni, t.d. sem
tilsjónarmaður fyrir
börn ogunglinga. Sagt
hefur verið að starf
tilsjónarmannsins sé
eins og framlengdur
armur sérfræðingsins.
3að segir sig sjálft að
oetta starf er mjög
treQandi og reynir á
oolrif og næfileika
tilsjónarmannsins. Ef
ég nefni sem dæmi, þá
er gott að
tilsjónarmaðurinn
hafi hæfileika til að
byggja upp jákvætt
samband við
viðkomandi og
Qölskyldu hans. Þess
vegna verður
tilsjónamaðurinn að
hafa áhuga og ánægju
af mannlegum
samskiptum. Hann
verður að hafa tíma
fyrir aðra og kunna að
hluta á aðra, vera hlýr
í viðmóti, einlægur og
hreinskilinn, svona
svo eitthvað sé nefnt”.
María bætir því við að
tilsjónarmaðurinn
megi ekki vera yngri
en 18 ára. Þess má
geta hér að hlutverk
tilsjónamanna
einskorðast ekki
eingöngu við fatlaða,
þó það sé sérstaklega
til umfjöllunar hér. I
stuttu máli sagt eru
þeir einstaklingar sem
þörf hafa á
tilsjónarmanni, hvoru
tveggja börn og
fullorðnir sem eiga það
sameiginlegt að hafa
þörf fyrir stuðning frá
fullorðinni manneskju
fram yfir það sem
nánasta umhverfi
býður uppá.
Til sölu Volvo 1979
Góður bíll nýskoðaður
selst á hálfvirði
Upplýsingar í símum 14644 -14388
“Tilsjón hefur ekki
verið mikið notuð í
Keflavík. Verið er að
byggja upp
tilsjónarmannakerfi
og í dag starfa tveir
tilsjónarmenn með
tveimur fötluðum
unglingum”, segir
María. Að hennar sögn
fá tilsjónarmenn
greidd laun, sem eru
365 krónur á tímann,
auk þess sem útlagður
kostnaður er greiddur.
En hvernig ber fólk sig
að, ef það vill fá
tilsjónarmenn ?
“Fólk getur leitað til
Svæðisstjórnar
Reykjanesumdæmis,
eða beint til
félagsmálafulltrúans í
sínu sveitarfélagi”,
segir María
Krisjánsdóttir,
félagsmálafulltrúi.
Nýtt raftækja-
verkstæði í Keflavík!
Komið með tækin til okkar í viðgerð
og hreinsun.
önnumst einnig uppsetningu og
viðhald á símkerfum. Snögg og góð
þjónusta.
Upplýsingar í Myndval
Tjarnargötu 3 Keflavík
Símar 13007 og 13006
Auglýsing frá Fíladelfíu
Hafnargötu 84 keflavík
Sunnudagaskóli kl 14.00 hvem
sunnudag.
Allir krakkar velkomnir.
Vakningarsamkomur sunnudaga
kl. 16.00 söngur og hjóðfærasláttur.
Verið velkominn!
Sam Glad - Kristján Reykdal
Geymið auglýsinguna!
Frá Golds Gym Kaliforníu í
Æfingastudeo
laugardaginn 2. feb. frá kl. 12.00
Otrúlegt en satt 52 ára.
Inga Arnadóttir
verður
gestaleiðbeinandi
og segir okkur
leyndardóminn
á bak viö aö
halda sér
ungum með
líkamsrækt og
réttu mataræði.
fEems^TiibEO
Brekkustíg 39 sími 14828