Bæjarblaðið - 06.03.1991, Qupperneq 7
BÆJARBLAÐIÐ - Frjálst og óháð 7
Sundmiðstöðin
eins ors
Á sunnudaginn fengu
bæjarbúar í Keflavík að fara
ókeypis í sund, og meira að
segja kaffisopa eftir
sundsprettinn. Ástæðan var
sú að Sundmiðstöðin, þetta
glæsilega mannvirki var
tekið í notkun fyrir réttu ári
síðan. Varaðsóknin mjög góð
á sunnudaginn en reikna má
með að hátt í eitt þúsund
manns hafí komið í sund þann
daginn.
Á síðasta ári voru
opnunardagar Sundmið-
stöðvarinnar 258 talsins.
Baðgestir voru alls 31.741
sem gerir að meðalsókn á
dag hefur verið 123 gestir.
Grindavík:
Verkalýðsfél-
agið í byggingarf-
ramkvœmdir ?
Verkalýðsfélag Grinda-
víkur hyggst reisa 300
fermetra hús undir starfsemi
sína og er reiknað með að
framkvæmdir hefjist með
vorinu. Kemur þetta fram í
síðastatölublaði Bæjarbótar,
staðarblaði þeirra Grind-
víkinga. Bækistöðvar
félagsins hafa verið í Festi.
í Bæjarbót er haft eftir
Benóný Benediktssyni
formanni VG að félagið hafi
fengið lóðimar nr. 44 og 46
við Víkurbraut, sem er autt
svæði norðan við
lögreglustöðina. f húsinu,
sem verður á einni hæð,
verða skrifstofúr félagsins,
fundarsalur og önnur
nauðsynleg aðstaða.
Fyrirhugað er að leigja út
um 100 fermetra af
húsnæðinu. Teiknivinna er
nú í fúllum gangi og að henni
lokinni verðurreynt að semja
við einn aðila um byggingu
hússins og fullnaðarfrágang
þess.
Til sölu
háir barstólar með járnfótum.
Brúnt tauáklæði. Uppl. í síma
14596 eftirkl. 18.00.
75 ára
\ tilefni af 75 ára afmæli A.S.Í. hafa Iðnsveinafélag Suðurnesja, Vélstjórafélag
Suðurnesja, Verkalýðs og sjómannafélag Keflavíkur og Verslunarmannafélag
Suðurnesja opið hús að Hafnargötu 28, e.h. sunnudaginn 10. mars frá kl. 15-18.
Kynnt starfsemi A.S.Í.
Kaffiveitingar.
Allir velkomnir.