Bæjarblaðið - 06.03.1991, Blaðsíða 13
BÆJARBLAÐIÐ - Frjálst og óháð 13
Karfa/urvalsdeild:
Mikilvœgur
sigur í
Grindavík
Grindvíkingar styrktu stöðu
sína í B-riðli á sunudaginn
eftir sigur á Tindastóli í
íþróttahúsinu í Grindavík.
Allt útlit er fyrir að þeir
komist í fjögurraliða úrslitin.
Tindastóll var betra liðið í
fyrri hálfleik. f leikhléi höfðu
gestirnir náð 12 stiga
forskoti, 49-37. í síðari
hálfleik leit út fyrir að
Tindarnir myndu halda
undirtökunum íleiknum það
sem eftir væri. Eftir 12-13
mínútur var staðan orðin 59-
69 Tindastól í vil og útlitið
orðið heldur dökkt hjá
Grindvíkingum.
En þá kom leynivopn
heimamanna. Skyndilega
fóru þeir að beita stífri
pressuvörn, sem kom
gestunum gjörsamlega í
opna skjöldu. Þeir getðu 21
stig í röð á 5 mínútna kafla
og breyttu stöðunni í 80-69.
Grindavíkurliðið náði að
sýna undir lokin hvað í þeim
býr og verði þeir í þessum
baráttuham í úrslita-
keppninni er aldrei að vita
hvað getur gerst. Lokatölur
urðu 91-75. Steinþór var
stigahæstur heimamanna
með 28 stig, Jóhannes gerði
20, Krebbs 19, Guðmundur
17 og Rúnar7.
Snóker:
Unglingamót í
Sandgerði
Knattborðsstofa Sandgerðis stóð á dögunum fyrir unglingamóti í snóker. Þátttaka var góð
en úrslit urðu þau að Gunnar Gunnarsson varð ífyrsta sœti, Grétar Hjartarson í öðru og í
þriðja sceti varð Hlynur Mortens . Á myndinni eru vinningshafamir talið frá v.: Gunnar,
Hlynur og Grétar.
Sund:
SFS-fólkið sigursœlt í Eyjum.
- tóku 11 íslandsmeistaratitla meö sér heim I
Sundfólkið úrSunfélaginu
Suðumes fór heldur betur
í sigurför til
Vestmannaeyja um
helgina þegar
innanhússmeistaramótið í
sundi fór þar fram. SFS-
sveitin sló mörg metin og
sópaði að sér veiðlaunum.
Hvorki fleiri né færri en
11 íslandsmeistaratitlar
voru í farteskinu þegar
haldið var heim á leið eftir
mótið.
Eðvarð Þór Eðvarðsson
jafnaði eigið íslandsmet í
200 m. fjórsundi, en hann
kom átímanum 2:05,22,.
Karlaboðsundsveit SFS
gerði sér lítið fyrir og sló
íslandsmetin í öllum
boðsundsgreinum mótsins,
sem verður auðvitað að
teljast frábær árangur. f
4x 100 metra skriðsundi fúku
13 sekúndur af fyrra
fslandsmeti, 10 sekúndur f
4x1 OOm fjórsundi og í
4x200m skriðsundi bættu
þeir eldra met um 19
sekúndur. Magnús Már
Ólafsson SFS bætti eigið
fslandsmet á laugardaginn í
100 m. flugsundi. Hann synti
á 57,17 en gamla metið var
58,13. Á sunnudaginn bætti
hann metið enn um 10
hundruðustu úr sekúndu.
Lítum á árangur SFS í
einstökum greinum:
Eðvatð Þór varð fyrstur í
200m fjórsundi karla eins og
áður sagði, en í öðtu sæti
varð Amar Frcyr Ólafsson á
2:08,86. Magnús Már
Ólafsson vaið í fyrsta sæti á
23,63, um heilli sekúndu á
undan næsta manni. í 50
skriðsundi kvenna varð
Bryndís Ólafsdóttir í þriðja
sæti á 27,55. A-sveit SFS
sigraði í 4x100 skriðsundi
karlaá3:31,09. A-sveitSFS
varð önnur í 4x1 OOm
skriðsundi kvenna.
Amar F Ólafsson hreppti
fyrsta sætið í lOOm
bringusundi karla á 4:35,66.
Magnús Konráðsson varð
þriðji í lOOm bringusundi
karla á 1:12,03. 1 lOOm
flugsundi kvenna varð
Bryndís Ólafsdóttir í öðm
sæti á 1:06,24 en í fy rsta sæti
varð Ama S veinbjömsdóttir
úrÆgiá 1:06,23 svo naumur
var munurinn.
Eðvarð Þór sigraði í 200m
baksundi karla á 2:03,05.
Annar varð Ævar örn
Jónsson á 2:37,97. Magnús
Már Ólafsson sigraði í200m
skriðsundi karla á 1:51,72.
A-sveit SFS sigraði í
4x1 OOm fjórsundi karla á
3:55,92 og í sömu grein
kvenna
varð SFS-sveitin í öðm sæti
á4:42,63. AmarF. Ólafsson
sigraði í 400m skriðsundi
karla á 4:09,53. Eðvarð Þór
sigraði í 1 OOm baksundi karla
á 0:56,61. Annar varð Ævar
Öm Jónsson á 0:59,94. í
sömu grein kvenna varð
Sesselja Ómarsdóttir í
þriðja sæti á 1:12,45.
Magnús Már Ólafsson
sigraði í lOOm skriðsundi
karia 50,94 og í sömu grein
kvenna varð Bryndís
Ólafsdóttir í öðm sæti á
59,54. A-sveit SFS sigraði
Í4x200m skriðsundi karla
á 7:48,66. f sömu grein
kvenna varð A-s veit SFS í
öðru sæti á 9:10,02.
Sunddeild UMFN átti
einnig fulltrúaí sigursæti.
Varð þar á ferðinni Bima
Bjömsdóttir sem sigraði í
200m bringusundi kvenna
á 2:44,53.