Bæjarblaðið - 06.03.1991, Side 16
STAPI Lokaö vegna
L- L einkasamkvæmis ® föstudatís- otí
laugardagskvöld
Sími 12526 STAPINN
mum
ER TRAUST OG ÁVALLT LAUST
Landað í Sandgerðishöfn áföstudag. Ljósm.: ELG.
Sandgerði:
Líf og fjör
við höfrtirta
“Það hefur sjaldan verið
eins mikið líf og fjör hér við
höfnina en einmitt núna
undanfarið”, varð starfs-
manni hafnarvigtarinnar í
Sandgerði að orði á
föstudaginn þegar blaðið
leitaði frétta frá höfninni.
Ágætis afli fékkst í netin í
vikunni. Hins vegar var afli
smærri línubátanna dræmur,
en “smá kropp” hjá þeim
stærri. Einstaka bátar höfðu
fengið mjög góðan afla, og
máþarnefnaAmeyKE með
aflaklóna Óskar Þóihallsson
skipstjórainnanborðs. Þeirá
Amey voru í síðustu viku
komnir með rúm 500 tonn
frááramótum, þaraf300 tonn
í febrúar. 120 bátar lönduðu
í þar síðustu viku samtals
1200 tonnum, tíðin var góð
og nánast róið alla daga
vikunnar.
í síðustu viku var sjósókn
aðeins gloppóttari,
sérstaklega hjá smábátunum.
Samanlagðurafli yfirvikuna
var 815 tonn, sem kom frá
117 bátum. Er þessi afli
fenginn úr alls 189
sjóferðum. Einnig lönduðu
fimm loðnubátar samtals
1940 tonnum. Þá landaði
togarinnSveinn Jónsson 120
tonnum af karfa.
Ótvírœður
auglýsingamáttur
BÆJARBLAÐIÐ
Hlutafjórsöfnun Eldeyjar Hf:
“Fáum mjög góð
viðbrögð”
- segir Örn Traustason,
framkvœmdarstjóri Eldeyar
Eins og kunnugt er hyggst
Eldey hf auka hlutfé sitt um
40 - 50 milljónir, m.a. vegna
kaupa á togamum Eldborgu
EA, sem farmvegis mun
heita Eldeyjar - Súla.
Örn Traustason
framkvæmdarstjóri Eldeyjar
sagði í samtali við blaðið á
mánudaginn að verið væri
að vinna í hlutfjármálunum.
“Viðbrögð eru mjög góð það
sem af er. Mérfínnst að menn
séu mun jákvæðarií dag en í
vetur sem leið. Þá var
auðvitað verið að biðja um
að félaginu yrði bjargað, en
nú teljum við okkur vera að
bjóða mönnum upp á
eitthvað sem væntanlega
kann að verða arðbært”,
sagði Öm.
Öm sagði jafnframt að stefnt
væri á almennan markað í
þessu sambandi. “Maður
finnur greinilega allt önnur
viðhorf í dag. Áður fyrr
heyrði maður menn utan
svæðisins básúnast yfir
ástandi málaáSuðumesjum;
við ættum ekki koma nálægt
því að gera út skip því við
værum svoddan aular við
það. Að tala við þessa sömu
menn í dag er allt annað. Nú
segja þeir að við séum famir
að spyma við fótum. Mér
finnst sem sagt hugafar
manna á landsbyggðinni
vera farið að breytast, sem er
mjög jákvætt fyrir okkur”.
Þannig að þið hjáEldey eruð
mjög brattir og bjartsýnir ?
“Já, mjög brattir og
bjaitsýnir”.
Sparisjóðurinrt
flytur
Næstkomandi mánudag, 11. mars, mun Sparisjóðurinn
í Keflavík heíja starfsemi sína í nýjum og glæsilegum
húsakynnum í stjómsýslubyggingunni að Tjamargönr
12. Ætla þeir Sparisjóðsmenn að nota helgina til að
flytja, en bankinn mun opna á venjulegum tíma á
mánudagsmorgunn eða kl. 09:15. Sjá nánarauglýsingu
á bls 3.