Verktækni - 01.07.2008, Page 4

Verktækni - 01.07.2008, Page 4
4 / VeRKTÆKNi Árni Björn Björnsson verkfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri TFÍ, SV og VFÍ. Árni kemur til starfa 1. ágúst og tekur við framkvæmdastjórastöðunni af Loga Kristjánssyni 20. september. Logi var ráðinn framkvæmdastjóri VFÍ og TFÍ haustið 1997 og hefur frá áramótum einnig verið framkvæmdastjóri SV. Árni var framkvæmdastjóri SV á árunum 2000-07 og þekkir því vel til starfsemi félaganna. Árni er fæddur í Reykjavík 1958. Hann varð stúdent frá MR 1979 og lauk M.Sc. prófi í byggingarverkfræði frá LTH í Svíþjóð 1987. Hann starfaði hjá byggingarfulltrúanum í Reykjavík frá 1987-2000. Eiginkona Árna er Halldóra Bragadóttir arkitekt og eiga þau tvö börn. Framkvæmdir á fyrstu hæðinni Nú eru framkvæmdir í fullum gangi á fyrstu hæð Verkfræðingahússins en skrifstofa TFÍ, SV og VFÍ mun flytja þangað eftir sumarfrí. Skrifstofa félaganna er nú á annarri hæð. Skýrslutæknifélagið hefur flutt aðsetur sitt í Verkfræðingahús og mun leigja að hluta til húsnæðið þar sem skrifstofa félaganna var áður. Nú hafa eftirtalin félög og fyr- irtæki aðsetur í Verkfræðingahúsi: Verkfræðingafélag Íslands, Stéttarfélag verkfræðinga, Tæknifræðingafélag Íslands, Lífeyrissjóður verkfræðinga, Félag ráð- gjafarverkfræðinga, Arkitektafélag Íslands, Félag sjálfstætt starfandi arkitekta, Félag húsgagna- og inn- anhússarkitekta, Félag íslenskra landslagsarkitekta, Skýrslutæknifélag Íslands, Iðnfræðingafélag Íslands, Byggingafræðingafélag Íslands, Verkefnastjórnunarfélag Íslands, Skipulagsfræðingafélag Íslands, Magnús Baldursson, lögmaður og Miðverk, tölvu- og kerfisfræðiþjónusta. Auk þess þjón- ustar skrifstofa félaganna Stéttarfélag byggingarfræðinga og Stéttarfélag tölv- unarfræðinga. Til stendur að Verkfræðingahúsið fái mikla andlitslyftingu því þegar skrifstofu- húsnæðið er fullbúið verður ráðist í end- urbætur á anddyri og stigagangi. Salur á jarðhæð verður einnig tekinn í gegn og endurbættur með tilliti til hljóðvistar. Nýr framkvæmdastjóri Árni Björn Björnsson. Danfoss tengigrindur Fyrir neysluvatns-, ofnhita-, gólfhita- og snjóbræðslukerfi og fl. Sérhannaðar fyrir íslenskar aðstæður Áratuga reynsla stjórnbúnaðar við íslenskar hitaveituaðstæður Við erum leiðandi í hönnun og framleiðslu á stjórnbúnaði og tengigrindum fyrir hitakerfi Skútuvogi 6 104 Reykjavík Sími 510 4100 • www.danfoss.is Danfoss hf Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins Verkfræðingahús Engjateigi 9.

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.