Verktækni - 01.07.2008, Blaðsíða 9

Verktækni - 01.07.2008, Blaðsíða 9
VeRKTÆKNi /  flytja skilaboð til fruma líkamans. Virknin sem kom fram í rannsóknum á beina- ígræðslum er mjög áhugaverð því með tilkomu kítínfafleiðanna grær vefurinn eftir ferlum sem eru engöngu virkir á fósturstigi en ekki í fullorðum dýrum. Vefurinn er því færður aftur á fósturstig og þá getur hann nýmyndað sig aftur þ.e. myndað nýtt og heilbrigt bein í stað örvefs sem síðan verð- ur að beini á löngum tíma. – Fyrst myndast brjósk, þá æðar í brjóskið sem síðan ummyndast í bein.“ Með brjóskvefs vefjaræktun, bæði úr nautgripum og manni, hefur Genís sýnt fram á að sykrurnar stuðla að nýmyndun á kollageni í brjóski. Þannig er 17 sinnum meiri nýmyndum í vef sem er meðhöndl- aður með sérhönnuðum sykrunum en í vef sem ekki er meðhöndlaður. Nokkrir sjúklingar með liðagigt og slitgigt hafa tekið þessi efni inn í duftformi og fengið ótrúlegan bata. „Gögnin okkar sýna að þarna er eitthvað á ferðinni sem hefur aldrei sést áður,“ segir Jóhannes. Ef tilgáta Genís reynist rétt geta þessi efni átt erindi í meðhöndlun nokkurra mismunandi sjúkdóma þar sem vefjaskemmdir eiga sér stað. Sykrurnar vanræktar Rannsóknir á líffræði sykra eru ekki eins langt komnar og rannsóknir á próteinum og enn er margt hulið um líffræðilegt hlut- verk sykra. Þegar liðagigt kemur fram í einstaklingi þá eykst tjáning kítínasalíku próteinanna verulega og telja flestir vís- indamenn að þau séu hluti af orsök sjúkdómsins og hafa jafnvel lagt til að nýjar meðhöndlanir við liðagigt, astma og fleiri sjúkdóma miðist við að hindra tján- ingu eða virkni kítínasalíku próteinanna. Tilgáta vísindamanna Genís er sú að tján- ing (framleiðsla) próteinanna sé ekki síður viðbrögð vefjarins við vefjaskemmdinni, en orsök. Vefurinn reyni að spila sama prógrammið og hann gerði á fósturstigi. Vitað er að samhliða því að þessi prótein eru tjáð á fósturstigi framleiðir fóstrið litl- ar kítínfásykrur. Rannsóknir hafa sýnt að ef framleiðsla þeirra er hindruð eða þær brotnar niður með sértækum ensímum þá verður fóstrið alvarlega vanskapað og á ekki lífsmöguleika. Samkvæmt tilgátu Genís eru viðbrögð líkamans við ýmsum sjúkdómum m.a. fólg- in í því að endurspila þetta prógramm en það vantar sykruna og þess vegna er líklegt að sum kítínasalíku próteinanna hafi fengið það hlutverk að kalla á svokallaða „fibro- blasta“ sem eru frumur sem græða sár með örvefsmyndun. Sár í húð og beinvef sem hafa verið meðhöndluð með kítínafleiðum gróa aftur á móti án örvefsmyndunar. Beinsement og húðun beinígræðlinga Verkefnin tvö sem Nýsköpunarmiðstöð tekur þátt í eru meðal þeirra sem lengst eru komin af þeim verkefnum sem Genís stendur að. Beinsementsverkefnið er fjár- magnað úr Markáætlun á sviði örtækni, húðunarverkefnið er fjármagnað af Tækniþróunarsjóði. Eins og áður segir er annars vegar um að ræða þróun á bein- sementi til viðgerða og endurnýjunar á beinvef. Hins vegar er verið að þróa kítós- anhúð og húðunaraðferðir fyrir beinígræð- linga úr títani þannig að þeir nái betri festu og styrk í náttúrulegu beini og endist leng- ur. Síðarnefnda verkefnið er unnið í sam- starfi við Verkfræðistofnun Háskóla Íslands. Þess má geta að í haust verða gerðar tilraunir með að koma fyrir kítósanhúð- uðum títanígræðlingum og beinsementi í kindum. Keldur og Bæklunarskurðdeild Landspítalans, ásamt Tækni- og Verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík (Heilbrigðisverkfræði) eru samstarfsaðilar Genís og Nýsköpunarmiðstöðvar í því verkefni. Af öðrum verkefnum má nefna samstarf við Keldur um rannsóknir á æðakölkun í músum og tilraunir á rottum í tengslum við áhrif efnanna á MS-sjúkdóminn. Framhaldið Aðspurður um framhaldið segir Jóhannes að á næstu mánuðum verði mest áhersla lögð á að rannsaka og þróa lyfjavirkn- ina. Fyrirtækið er í dag einvörðungu rekið með hlutafé og mun því leita eftir stuðn- ingi lyfjafyrirtækja og frekara samstarfi við háskóla um rannsóknir og þróun. „Við stöndum framarlega í rannsóknum á þessu sviði og höfum ennþá mikla sérstöðu. Ef þessi tilgáta reynist rétt þá gæti þetta orðið að mjög stóru máli. - Enn er þó mikil áhætta tengd fjárfestingum í þessum verk- efnum,“ segir Jóhannes. Genís hefur nú þegar fengið fyrsta einkaleyfið í 23 Evrópulöndum og er það í skráningarferli í Bandaríkjunum, Kanada, Suður-Kóreu og Japan. Búið er að sækja um annað einkaleyfi í 38 löndum og á næstu vikum verður lögð inn umsókn um þriðja einkaleyfið á Íslandi. – En ferli einka- leyfisumsókna er þannig að fyrst er sótt um hér heima til að tryggja forgangsrétt- ardagsetningu og að tólf mánuðum liðnum er lögð inn alþjóðleg einkaleyfisumsókn. Gissur Örlygsson, verkefnisstjóri á sviði örtækni og heilsutækni á Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Jóhannes Gíslason, framkvæmdastjóri Genís.

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.