Verktækni - 01.07.2008, Page 12
12 / VeRKTÆKNi
Hraðvirk
myndgreining
með NI Vision Builder AI
Vision Builder for Automated
Inspection (AI) frá NI er nú
útbúinn með hinni frábæru
hugbúnaðarstöðuvél sem gerir
myndgreiningarforritun og
gangsetningu myndvinnslukerfa
auðveldari en nokkru sinni.
Og, nú er hægt að tengjast
öðrum iðnaðarstjórnkerfum og
skiptast á upplýsingum.
NÝTT Vision Builder AI
n Tölvusjón sett upp af valmyndum
n Engin forritun nauðsynleg
n Tengingar við þúsundir
myndavéla
Þjónustuaðili á Íslandi
>> Fáið 30 daga reynsluútgáfu
hjá ni.com/vision/vbai
©2008 National Instruments Corporation. All rights reserved.
National Instruments, NI, and ni.com are trademarks of National Instruments.
Other product and company names listed are trademarks or trade names of
their respective companies. 2008-9282-221-999
Mælibúnaður hf
Höfðabakki 9c 110 R
www.maelibunadur.is
sala@maelibunadur.is n s. 661 1169
Sameining
verkfræðistofa
Í lok maímánaðar var samþykkt viljayfir-
lýsing um samruna Verkfræðistofunnar
Línuhönnunar, Verkfræðistofu Suðurlands,
RTS Verkfræðistofu og Verkfræðistofunnar
Afls. Í fréttatilkynningu segir að með
samruna þessara fyrirtækja verði til eitt af
leiðandi verkfræðifyrirtækjum landsins.
Sameinað fyrirtæki veiti ráðgjöf á öllum
helstu sviðum verkfræði og á fjölbreyttum
tengdum sviðum. Starfsmenn fyrirtækisins
verða um 220 talsins og velta nálægt þrem-
ur milljörðum.
Megin markmiðið með samruna fyr-
irtækjanna er að styrkja enn frekar sam-
starfið við viðskiptavini félaganna, bjóða
fjölbreyttar lausnir, sterka fagþekkingu og
afbragðs þjónustu í kraftmiklu fyrirtæki.
Markmiðið er jafnframt að skapa fram-
úrskarandi starfsvettvang fyrir starfsmenn
fyrirtækisins, með góðu starfsumhverfi,
sjálfstæði til athafna, metnaðarfullri fag-
mennsku og fjölbreyttum starfsmöguleik-
um.
Fyrirtækið er með umtalsverða alþjóð-
lega starfsemi og vinnur að verkefnum
fyrir erlenda aðila. Fyrirtækið á hlut í
verkfræði- og þróunarfyrirtækjum í
Rússlandi, Póllandi, Frakklandi, Slóveníu
og Tyrklandi, og er um þessar mundir að
stofna útibú í Dubai í tengslum við verk-
efni í áliðnaði.
Línuhönnun er alhliða ráðgjafarfyr-
irtæki í verkfræði.
Verkfræðistofa Suðurlands er stærsta
verkfræðifyrirtæki á Suðurlandi með fjöl-
breytta þjónustu.
RTS Verkfræðistofa veitir alhliða ráðgjöf í
rafmagnsverkfræði með áherslu á alþjóð-
legan áliðnað, almennan iðnað og bygg-
ingar.
Verkfræðistofan Afl er ráðgjafarfyrirtæki í
rafmagnsverkfræði með sérhæfingu í raf-
orkukerfum, orkumálum og iðnkerfum.
Ákveðið er að sameinað fyrirtæki byggi
höfuðstöðvar sínar á lóð Vísindagarða
Háskóla Íslands í Vatnsmýrinni, og er
stefnt að flutningi í nýtt húsnæði fyrir
árslok 2010. Samningar þar að lútandi
voru undirritaðir 30. maí. Samhliða því
mun nýtt fyrirtæki efla samstarf sitt við
Háskóla Íslands á sviði vísinda og tækni.
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Kt. 530372-0229 • www.medlag.is
Banki 0111-26-504700 • Sími 590 7100 • Fax 590 7101
Brautskráning frá HR
Brautskráning frá Háskólanum í Reykjavík fór fram 14. júní s.l. Að þessu sinni voru
423 nemendur brautskráðir frá skólanum og hafa þeir aldrei verið jafn margir. HR
brautskráði nú í fyrsta sinn nemendur með B.Sc. próf í verkfræði. Voru þeir af fjórum
námsbrautum: fjármála-hátækni-, heilbrigðis- og rekstrarverkfræði.