Verktækni - 01.06.2012, Page 1

Verktækni - 01.06.2012, Page 1
Tabula Gratulatoria 3 Viðtalið 8 Sjálfbært vatnafar 10 Íslenski útveggurinn 6 Nýr forseti VON 13 3 . t b l . 1 8 . á r g . 2 0 1 2 Viðurkenningar fyrir lokaverkefni 4 Í byrjun maímánaðar voru tilkynnt úrslit í samkeppni um göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaárósa og hjólaleið um norðurenda Geirsnefs. Höfundar vinningstillögunnar eru Hans-Olav Andersen og Sigríður Magnúsdóttir, arkitektar á Teiknistofunni Tröð. „Einfalt en jafnframt frumlegt og djarft form einkennir tillöguna,“ segir í áliti dómnefndar. „Styrkur tillögunnar er tví- mælalaust einfalt og sterkt burðarform, sem felur í sér nýstárlega nálgun viðfangsefnis- ins.“ Dómnefndin reiknar með að mann- virkið geti orðið ákveðið kennileiti og vakið áhuga fólks til útivistar á svæðinu. Elliðaárósabrýrnar eru tvær, mynda sam- fellda heild og hafa sama burðarvirki. Í texta með tillögunni segir m.a.: „Þríhyrndur grunnflötur er teygður upp í þrívítt form, hyrnu. Formið er dregið upp úr miðju flatarins af fjórða horninu. Bitarnir þrír tengjast saman í toppi hyrnunnar og tylla sér á einfaldar undirstöður við árbakkann. Þetta er burðarvirki brúarinnar sem ber Nýjar göngu- og hjólabrýr lárétt þunnbyggt brúargólfið með stögum. Leitast er við að lágmarka efnisnotkun með því að gefa brúnni stöðugt grunnform, sem jafnframt er sérkenni brúarinnar.“ Með samþykkt borgarstjórnar á nýrri hjólreiðaáætlun árið 2010 var lagður grunnur að neti hjólastíga í borginni. Tilgangur samkeppninnar var að fá fram frjóar og áhugaverðar en jafnframt raun- hæfar hugmyndir um þessa nýju hjólaleið sem tengjast mun neti hjólastíga í borginni. Gangi áætlanir eftir má búast við að nýja göngu- og hjólaleiðin verði tilbúin í haust. Hún mun stytta leiðina milli Grafarvogs og miðborgar umtalsvert eða um 0,7 km.

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.