Verktækni - 01.06.2012, Blaðsíða 7

Verktækni - 01.06.2012, Blaðsíða 7
VERKTÆKNI / 7 allar plötur og innveggir sem ná út fyrir einangrunina kuldabrýr. Mjög oft fundum við myglu tengda þessum kuldabrúm, til dæmis dökka bletti upp í hornunum við útveggina. Það lá því hjá þeim sem teikna og ákveða legu einangrunar að laga þetta vandamál og að hluta var það gert en það var engan veginn algilt og enn í dag er byggt mikið af steyptum húsum með einangrunina innan á veggjunum. Það er til mikið af húsum þar sem engin sýnileg vandamál eru til staðar en það breytir því ekki að kerfislægir gallar eru alltof tíðir. Ég veit um ný hús sem eru steypt, einangruð að innan með steinull, rakavarnarlag er þar fyrir innan og engar lagnir sem rjúfa rakavörnina. Hvað er þá að. Jú, kuldabrúin er enn til staðar og þvingunarkraftarnir raunar líka. Mörg húsanna hafa gólfhita og útloftun virðist ekki vera eins sterk þar eins og þegar ofnar eru undir gluggum. Nútíma íbúðir eru svo með opnum eldhúsum svo þessar íbúðir ná aldrei rakastiginu niður í það horf sem þarf til að verjast vandamálum. Þessi hús eru með bullandi móðu á gluggum og myglu í öllum hornum. Sérfræðingar í glerkerfum og fúguþétt- ingum vita að það er algjör nauðsyn að hafa tvöfalda þéttingu gegn slagregni: Regnvörn-loftbil-þétting. Allt annað bilar. Þetta er orðið hefðbundið í nútíma gluggakerfum og fúgum og það sem betra er, þetta hefur verið svona í bárujárns- klæddum timburhúsum frá upphafi. En steypti útveggurinn einangraður að innan fer á skjön við þessa vitneskju. Þeir sem selja rakatæki mæla með rakastigi 40-60% og sama gera margir læknar. Það er mjög líklegt að þar skapist vítahringur. Fólki verður ráðlagt að hækka rakastig inni vegna ertingar í öndunar- færum. Húsin sem eru einangruð að innan eru engan veginn hönnuð fyrir það og það fellur út raki sem myndar gróðrarstíu fyrir myglu og aðra sveppi sem margir eru við- kvæmir fyrir. Á síðasta áratug síðustu aldar var gerður nýr staðall og krafa sett í byggingarreglu- gerð um aukna hljóðeinangrun, m.a. milli hæða í fjölbýlishúsum. Það kemur síðan í ljós að hús sem eru steypt og einangruð að innan með plasteinangrun og pússuð geta ekki uppfyllt reglugerðina. Hver sem teiknar slík hús brýtur reglugerð og bakar sér skaðabótaskyldu. Þetta fór þó ekki hátt og það var ekki blásið í lúðra þegar þetta ákvæði var sett í reglugerð. Meiri hluti hönnuða hefur ekki hugmynd um þetta og þegar ég skrifaði umhverfisráðuneytinu bréf um málið fór það beint í skúffu gleymskunnar á þeim bæ og liggur þar ásamt öllum bréfum sem ég hef skrifað því ágæta ráðuneyti um reglugerðarmál. Ég tel að þeir sem teikna steypt hús einangruð að innan geti átt á hættu að lenda í miklum vandræðum fyrir rétti í náinni framtíð því lögmenn og dómarar túlka reglugerðina strangt og frávik frá henni og stöðlum, sem í henni eru nefndir, eru túlkuð sem lagabrot og þá dugar ekki að segja eins og fjármálamennirnir, „En það gera þetta allir og þetta hefur ekki verið bannað“. Menn geta spurt sig hvort hönnuðir muni ekki bráðum skilja að hefðbundinn steyptur útveggur einangraður að innan sé hættuspil. Ég er vondaufur um það. Menn hafa þegar fengið frest í hundrað ár. Ég tel það sé kominn tími til að taka á vandanum á öllum vígstöðum svo við séum undir það búin að farið verði að byggja hús á Íslandi aftur. Dr. Ríkharður Kristjánsson, sviðsstjóri tækni og þróunarsviðs ÍAV.

x

Verktækni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.