Verktækni - 01.06.2012, Page 12

Verktækni - 01.06.2012, Page 12
12 / VERKTÆKNI Þjálfun framtíðarhönnuða Hrund Ólöf Andradóttir dósent í HÍ sagði frá framtíðarhönnuðum blágrænna lausna og hlutverki HÍ í því sambandi og á sviði rannsókna og fræðslu til almennings. HÍ vilji vera leiðandi á sviði sjálfbærni og hafi nýlega samþykkt sjálfbærnistefnu, þar sem áhersla er lögð á að nemendur fái góða innsýn í hugmyndafræði sjálfbærrar þró- unar og vinni hagnýt verkefni á því sviði. Á umhverfis- og verkfræðisviði tengist verk- efnin m.a. skipulagsmálum, vatns- og frá- veitu, umhverfismálum og umhverfismati áætlana. Hrund kynnti verkefni sem fjölbreyttur hópur nemenda vann undir leiðsögn hennar og Sveins nú á vormisseri. Þar rannsökuðu þau möguleika á innleiðingu blágrænna lausna á svæðinu vestan Suðurgötu, í kringum byggingar VR I, II og III og Háskólabíó. Þar væri sameiginleg regn- og skólpvatnslögn og því gott tæki- færi til að aðskilja þær með blágrænum lausnum. Nemendur komu með fjölbreyttar hugmyndir um innleiðingu, með grænum þökum, svelgjum, tjörnum og regngörðum, sem myndu lífga mjög upp á umhverfi háskólans. Hrund kynnti einnig mögulegar útfærslur á grænum þökum, tjörnum, svelgjum og regngörðum, sem væru liður í að hreinsa vatn af þungmálmun og næringarefnum, endurhlaða grunnvatns- stöðuna, minnka flóðahættu og auka líf- fræðilegan fjöbreytileika. Blágrænu lausn- irnar sköpuðu einnig þægilegt og rólegt umhverfi til útivistar. Hrund benti á að víða erlendis væri “grátt vatn” eða mengað afrennslisvatn nýtt í klósett, gosbrunna eða annað þar sem ekki þarf drykkjarvatn, til að nýta vatn sem best. Nemendur komust að því að ekkert væri því til fyrirstöðu að safna regnvatni á skólalóðinni til þeirra nota. Í framtíðinni væri líklegt að slíku kerfi yrði komið upp í Reykjavík, sem myndi minnka álag á Gvendarbrunna, yki fjölbreytileika hvað varðar framboð á vatni, yki stað- bundið öryggi vatns og hefði fjárhagslegan ávinning, þar sem virði vatns færi vaxandi. Hrund benti á að miklir möguleikar væru á að nýta blágrænar lausnir í allri byggð, bæði nýrri og þeirri eldri. Það hefði marg- þættan ávinning í för með sér vegna minna álags á skólphreinsistöðvar og flóðahættu, borgarumhverfið yrði náttúrulegra og fjöl- breytilegra og aukið öryggi í vatnsfram- boði. Mikilvægt væri að framtíðarhönnuðir styddu nýsköpun á þessu sviði. Íslenskt sýnidæmi - Urriðaholt Halldóra Hreggviðsdóttir ráðgjafi hjá Alta tíundaði hvers vegna og hvernig farnar voru nýjar leiðir í Urriðaholti í Garðabæ, með innleiðingu sjálfbærs vatnafars í fyrsta sinn á Íslandi. Garðabær hafði forystu um skipulagsvinnuna í góðri samvinnu við þróunarfélagið Urriðaholt ehf. Urriðaholtið er 100 hektarar, á stærð við Skólavörðuholtið. Áhersla var lögð á að skipuleggja þar vistvæna byggð og tryggja um leið vatnshæð og vatnsgæði Urriðavatnsins, sem er náttúruperla við rætur Urriðaholtsins. Þar sem Urriðaholtið er mikilvægur hluti vatnasviðs Urriðavatns, þá var helsta áskorunin að tryggja vatnshæð og vatns- gæði þess, en án náttúrulegs afrennslis frá holtinu myndi vatnið grynnkað til muna. Því var ákveðið að innleiða sjálfbært vatnafar í Urriðaholtinu. Í því felst að regn- vatnið er leitt stystu leið niður í jarðveginn af ógegndræpu yfirborði svo sem gatna bílastæða og þaka, í stað þess að leiða það brott í frárennslislögnum. Í byggðinni þurfti því bæði græn opin svæði og svæði sem tækju við regnvatninu og veittu því í áföngum niður holtið. Lausnin fólst í samnýtingu grænna svæða sem mæta þessum þörfum, en gefa um leið óvenju gott tækifæri fyrir gróðurríkt umhverfi. Innleiðingin skiptir miklu máli þegar farnar eru nýjar leiðir sem þessar. Skipulagsskilmálar festa blágrænu lausn- irnar í sessi en útbúnir hafa verið bæklingar fyrir hönnuði og byggingaraðila til að einfalda yfirsýn um nýjungar. Einnig hafa verið útbúnir bæklingar um umhverfismál- in fyrir íbúa en sérstök áhersla er lögð á að börnin í hverfinu skilji og skynji umhverfið í gegnum skólastarfið. Lærdómurinn úr Urriðaholtinu er sá að ramma- og eða aðalskipulag sé rétti vettvangurinn til að skipuleggja inn- leiðingu. Gott samstarf sveitarstjórnar- fólks, embættismanna og sérfræðinga á fjölbreyttum fagsviðum og traust samvinnu við þróunaraðila með langtímahagsmuni í huga, hafi verið lykill farsællar innleiðingar í Urriðaholtinu að sögn Halldóru. Fjörlegar umræður Fjörlegar umræður voru síðan í pall- borði þar sem þau Aldís Ingimarsdóttir, stundakennari í HR, Borgþór Magnússon, forstöðumaður hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, Eysteinn Haraldsson, bæjar- verkfræðingur í Garðabæ, Sigurbjörg Sæmundsdóttir deildarstjóri í umhverfisráðuneytinu og Sigurður Ingi Skarphéðinsson, tæknistjóri fráveitu hjá OR ræddu um ávinning og áskoranir af inn- leiðingu sjálfbærs vatnafars eða blágrænna lausna í byggð. Í lokaorðum fundarstjóra, Gunnars Einarssonar bæjarstjóra í Garðabæ kom fram að auka þurfi kennslu á þessu sviði og efla vitund og skilning almennings á blágrænum lausnum og hvað þær þýddu. Hingað til hefði ákveðinn vani og íhalds- semi verið ríkjandi varðandi hönnun Hugmyndir nemenda að innleiðingu blágrænna lausna við Háskóla Íslands

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.