Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.08.2013, Side 24

Fréttatíminn - 16.08.2013, Side 24
Sjúkdómurinn er eins og óskrifað blað, maður veit ekkert hvað framtíðin ber í skauti sér, frekar en nokkur annar og maður verður bara að nýta tímann sem maður hefur og safna góðum minn- ingum. ekki neitt á móti gefur hún frá sér ákveðin hljóð sem við skynjum sem ánægjuhljóð og þá vitum við að hún er glöð og ánægð,“ segir Friðrik. „Ef maður hugsar um lífið þá eru skemmtilegustu minningar sem maður á í ferðalögum vegna þess að þá verja allir svo miklum tíma saman. Við fórum í tjaldferðalag í sumar þrátt fyrir að það sé ekki það auðveldasta sem maður gerir, þá var það yndislegt vegna þess að Guðrún hafði svo gaman af því og þau öll. Maður á sjálfur svo góðar minningar úr barnæsku og vill gefa þeim það líka,“ segir Bryndís María. Friðrik segir að Guðrún sé mjög ákveðin og viti alveg hvað hún vilji. „Hún velur á milli hluta og notar líkamstjáningu mjög mikið. Stund- um langar hana að hreyfa hendina en getur það ekki og maður þarf að fylgjast með því á hvað hún er að horfa,“ segir Friðrik. Guðrún hefur náð miklum árangri í þeirri þjálfun sem hún hefur verið í og hefur til dæmis lært að hjóla og er orðin nokkuð örugg í sundi. Hún hefur átt þess kost að vera í leik- skóla á daginn og nú í haust mun hún byrja í Klettaskóla. „Guðrún á það til að spila með mann og er svolítið stríðin. Þegar hún veit að hún má ekki gera eitthvað þá gerir hún það samt sem áður og fylgist með viðbrögðum okkar. Svo finnst henni voðalega gaman að vera í fínum fötum og hefur sterkar skoð- anir á því hvað hún ætlar að gera. Hún hefur til dæmis mjög gaman af bókum,“ segir Bryndís María. Fjölskyldan reynir að ferðast þó að það geti verið erfitt með Guð- rúnu. „Það er erfitt að ferðast og fara í flug því að maður veit ekki hvernig hún mun bregðast við og hún getur orðið mjög pirruð. Hún er eins og fugl og ef þú kreppir of fast þá verður hún mjög reið,“segir Friðrik. „Stundum fær hún grátköst og hún öskrar og maður veit ekkert hvað maður á að gera því hún getur ekki tjáð sig og það er alveg hræði- legt. Stundum fær hún skjálftaköst eða oföndun en svo jafnar hún sig,“ segir Bryndís María. Vantar sárlega ferli fyrir sjaldgæfa sjúkdóma Friðrik og Bryndís María segja það óraunhæft að ætlast til að læknar á Íslandi viti allt um sjaldgæfa sjúkdóma en mjög mikilvægt sé að komast í tengsl við þá sérfræðinga sem eru til staðar erlendis. „Við fórum með Guðrúnu til sérfræð- ings í Boston og þar er hún komin á skrá en við þurftum að hafa fyrir því að fá að fara en því var sýndur skilningur og heilbrigðiskerfið kostaði eitt viðtal hjá sérfræðingi erlendis sem er læknum hennar hér til halds og trausts. Það ætti að vera eitthvað ferli í gangi fyrir þá sem veikjast af sjaldgæfum sjúkdómum,“ segir Friðrik. „Það verður að hugsa um réttindi barna og það á ekki að skipta máli í hvaða fjölskyldu maður fæðist, eða hvaða sjúkdóm maður fær,“ segir Bryndís María. „Það sem þessi reynsla hefur kennt manni er að ekkert er sjálf- sagt í dag. Maður tók ekki eftir öll- um kraftaverkunum á fyrstu árum Friðrik Sædals og núna þegar við erum búin að ganga í gegnum þetta með Guðrúnu og fylgjumst með Elísu þá sér maður allt það sem er að gerast og þá verður maður sérstaklega þakklátur fyrir þá sigra sem Guðrún hefur unnið, þeir eru ekki sjálfsagðir heldur,“ segir Bryndís María. Friðrik Sædal og fleiri velunn- arar fjölskyldunnar munu hlaupa til styrktar rannsókna á Rett Syn- drome í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka þann 24 ágúst næst- komandi. Heimasíða Rannsóknar- sjóðs Guðrúnar Sædals er http:// rettenglar.yolasite.com. María Elísabet Pallé maria@frettatiminn.is Mikilvægast að fá greiningu sem fyrst Bryndís og maður hennar, Friðrik Frið- riksson, eiga þrjú börn, Friðrik Sædal sem nú er 8 ára og mun hlaupa í Reykjavíkur- maraþoninu þann 24 ágúst til styrktar systur sinnar, Guðrúnu Sædal 6 ára og Elísu Sædal 17 mánaða. Foreldrar Guðrúnar tóku eftir því að eitthvað væri að þegar hún var tæplega 2 ára. „Þá var ég farin að hafa áhyggjur af því hvað hún talaði lítið. Hún var búin að vera að segja nokkur orð en mér fannst þau vera svo fá. Það var 2010 og Guðrún var þriggja ára sem henni byrjaði að fara mikið aftur og fór að missa þau orð sem hún var farin að segja,“ segir Bryndís María. Guðrún byrjaði á leikskóla á svipuð- um tíma þar sem fylgst var mjög náið með henni. „Með allar skerðingar eða fatlanir skiptir svo miklu máli að fá greiningu sem fyrst og fara að vinna í málunum,“ segir Bryndís María. „Okkur var sagt að þetta væri sennilega einhverfa en Guðrún var ólík því sem maður hafði lesið sér til um einkenni ein- hverfu, hún er mjög félagslynd, hlý og opin. Hún kemur til dæmis að fólki vegna þess að hún vill snerta það og jafnvel heldur utan um fólk en það er ekki mjög algengt hjá einhverfum,“ segir Bryndís María. „Þegar við fengum að vita að þetta væri Rett Syndrome þá grétum við og ákveðið sorgarferli fór af stað en samt vorum við alltaf að reyna að sjá ljósið, maður er alinn þannig upp að maður er alltaf að reyna að sjá ljósið í þeim aðstæðum sem maður er í,“ segir Bryndís María. Guðrún var greind með Rett Syndrome Guðrún Sædal hefur náð miklum árangri og lærði að hjóla síðasta sumar. þann 6. apríl 2011, þá fjögurra ára, en hafði verið greind með einhverfu í júní 2010. Þá höfðu blóðprufur verið sendar erlendis til rannsóknar. „Við vorum búin að ganga í gegnum mjög erfitt tímabil þegar við fengum þessar fréttir því að foreldrar mínir voru bæði búin að vera mjög mikið lasin og lét- ust með 2 ára millibili, árið 2009 og 2011. Í fyrstu hugsuðum við nei þetta er ekki að gerast.... en svo reyndum við að sjá ljósið og maður getur verið þakklátur fyrir svo margt,“ segir Bryndís María. Friðrik og Bryndís María byrjuðu strax að leita sér upplýsinga og komust að því að búið væri að gera rannsóknir þar sem einkenni Rett Syndrome voru læknuð í músum. „Við trúum því að þessar niður- stöður muni gagnast í því að finna lækn- ingu fyrir menn,“ segir Bryndís María. Hver dagur skiptir máli „Sjúkdómurinn er eins og óskrifað blað, maður veit ekkert hvað framtíðin ber í skauti sér, frekar en nokkur annar og maður verður bara að nýta tímann sem maður hefur og safna góðum minningum. Ef maður er alltaf að hugsa um það sem gæti komið fyrir þá nýtur maður þess ekki að vera í núinu. En auðvitað hugsar maður um hvernig framtíðin gæti orðið en maður hugsar líka um hvernig framtíðin gæti orðið ef það það myndi finnast lækn- ing. Ég bara trúi því og það heldur manni gangandi,“ segir Bryndís María. Þó svo að Guðrún eigi erfitt með að tjá sig segir Bryndís María að Guðrún skilji nánast allt. „Okkur hefur alltaf reynst best að tala við hana. Þó að hún segi 24 viðtal Helgin 16.-18. ágúst 2013

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.