Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.08.2013, Side 63

Fréttatíminn - 16.08.2013, Side 63
Helgin 16.-18. ágúst 2013 skólinn byrjar 7 G runnskólakennarar með starfsréttindi útskrifuð-ust hvorki í fyrra né á þessu ári eftir að lögum um lengd kennaranáms frá þremur árum í fimm tóku gildi á árinu 2011. Næst munu kennarar með starfsréttindi útskrifast á næsta ári. Ásókn í grunnskólakenn- aranámið hefur minnkað á síð- ustu árum og líklegt er að leng- ing námsins hafi haft áhrif. „Við þurfum að kynna vel hvað felst í náminu og í starfinu ekki síður. Ég held að það hafi ekki verið rangt að lengja námið heldur þurfi að verja tíma í að kynna hvað í því felst og hversu mikil- vægt og ánægjulegt starfið er,“ segir Gunnhildur Óskarsdóttir deildarforseti kennaradeildar Háskóla Íslands. „Við viljum vera sambærileg öðrum þjóðum og í mörgum öðrum löndum er kennaranám- ið 4 til 5 ár. Í meistaranáminu er farið meira á dýptina og meiri áhersla er lögð á rannsóknir en einnig á vettvangsnám. Hluti af náminu felst í því að nemar vinna náið með kennurum í grunnskólunum og í samstarfi við kennara í háskólanum og að nota fræðin sem þeir hafa kynnst í sínu grunnnámi til að undirbúa sig enn frekar undir kennarastarfið. Ég tel að þessi viðbót verði gott tækifæri til að tengja fræðin við vettvanginn og vettvanginn við fræðin og styrkja nemann sem fagmann ,“ segir Gunnhildur. Hún segir að minni ásókn í grunnskólakennaranámið í kjölfar breytingarinnar hafi ekki komið á óvart. „Laun kennara eru ekki nógu há og það er ekki uppörvandi fyrir ungt fólk í dag að fara í fimm ára nám og fá ekki hærri laun en raun ber vitni. En ég trúi ekki öðru en að umsóknum muni fjölga aftur og kjörin batna,“ segir Gunnhildur. „Það var alveg viðbúið að nemendum myndi fækka fyrst um sinn. Margir segja að þetta hafi verið mikið gæfuspor hjá Finnum að lengja kenn- aranámið og krefjast meistara- náms. Laun þeirra eru hærri en hjá okkur og það á við um öll Norðurlöndin en skólakerfið okkar er líkast því sem tíðkast á hinum Norðurlöndunum,“ segir Þórður Árni Hjaltested formaður Kennarasambands Íslands. „Það er alveg ljóst að við í Kennarasambandinu erum sammála þeim athugasemdum sem hafa komið frá OECD að laun séu hlutfallslega of lág hér í samanburði við aðrar þjóðir og það hefur áhrif að ungt fólk velur ekki þessa starfsgrein. Við mælumst með hvað lægstu launin sem er svolítið skrítið miðað við það að við mælumst líka með tiltölulega háan kostnað í skólahaldi. Tölur frá OECD sýna einnig að áhuginn á kennaranáminu sé almennt að minnka, maður veit ekki hvort að það sé eitthvað í tíðarand- anum að fólk einblínir á aðrar greinar,“ segir Þórður Árni. Grunnskólakennarastarfið sem og leikskólakennarastarfið eru með mikilvægustu störfum í samfélaginu.  skólamál skortur á menntuðum leikskólakennurum Engir útskrifaðir kennarar í tvö ár og færri sækja í námið Minnkandi áhugi virðist vera á kennaranámi á Íslandi og hugsanlega tengist það lengingu námsins úr þremur í fimm ár. Enginn skortur er þó á grunnskólakennurum enn sem komið er en ástæða er til þess að hafa áhyggjur af því að menntaðir leikskólakennarar fáist til starfa. Laun kenn- ara eru ekki nógu há og það er ekki uppörvandi fyrir ungt fólk í dag að fara í fimm ára nám og fá ekki hærri laun en raun ber vitni. Býður strá kum og st elpum á a ldrinum 6 -10 ára á 14 vikna byrjendan ámskeið í ÍSHOKKÍ. ÆÆngar er u í Egilshö ll þriðjuda ga kl. 18:2 0, Æmmtudag a kl. 18:20 , sunnuda ga kl. 11:0 0 og byrja 20. ágúst . S kráninga rdagar eru 20., 22. o g 27. ágús t kl. 17:00 -19:00 á skrifstof u Bjarnari ns eða á w w w.bjorni nn.com Ekki virðist vera komið að kenn- araskorti enn sem komið er en stór hópur kennara mun fara á eftirlaun á næstu 10 árum og telur Þórður Árni að útskrifa þurfi ákveðinn fjölda til þess að halda í við þörfina. „Leik- skólakennaranámið hefur einnig verið lengt í 5 ár og nú þegar eru leikskólakennarar of fáir. Það vantar töluvert upp á það að uppfylla það sem lögin kveða á um eða að 2/3 eigi að vera með kennaramenntun,“ segir Þórður Árni „Í leikskólum vantar virkilega menntaða starfsmenn og þar höfum við meiri áhyggjur en hjá kennurum. Það er ekki síður mikilvægt starf“ segir Þórður Árni. María Elísabet Pallé maria@frettatiminn.is

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.