Fréttatíminn - 20.01.2012, Qupperneq 29
„lært“ að drekka eða neyta efnisins
í hófi, hann getur ekki fengið sér
bara stundum. Hann þarf að breyta
lífstíl sínum þannig að hann sleppi
neyslu á öllum þeim efnum sem
vekja löngun eða fíkn. Honum er
bent á áfengis- og vímuefnameð-
ferðir hjá viðeigandi stofnunum og
AA eða öðrum 12 sporasamtökum
til að ná tökum á vanda sínum.
Það sama á við um þann sem er
„matarfíkill“, það er fíkinn í ákveð-
in matvæli eða efni í matnum svo
sem sykur, fitu og sterkju. Hann á
að geta fengið greiningu á ástand
sitt og sérhæfða meðferð með við-
eigandi fagfólki við breytt mataræði
og lífstíl. Eins og aðrir sem eiga við
krónískan fíknisjúkdóm að stríða,
má reikna með að hann þurfi lang-
tímastuðning og tilfinningalega og
andlega uppbyggingu til að geta
síðan viðhaldið bata sínum.
Hins vegar, þegar bati hefur
náðst, öðlast viðkomandi stórbætt
lífsgæði, sem lýsa sér í eðlilegri
þyngd ásamt líkamlegu, huglægu
og andlegu heilbrigði.
Hver er matarfíkill?
Ef þú hefur einlæglega viljað og hef-
ur látið reyna á að hætta að borða
ákveðnar matartegundir
eða of mikið en missir ávallt
tökin, þá er líklegt að þú
eigir við matarfíkn að stríða.
Þá gæti verið gott að koma
í viðtal hjá MFM-miðstöð-
inni (meðferða- og fræðslu-
miðstöð vegna matarfíkn-
ar, átraskana og offitu) og
fá skimun um hvort þessi
vandi er til staðar.
Þeir sem veita sérhæfða
meðferð þeim sem eiga við
matarfikn að stríða eru:
MFM miðstöðin, matar-
fíknarmeðferðastöð (www.
matarfikn.is). Þau
12 spora samtök sem
styðja bata við matar-
fikn eru; OA (www.
oa.is) og GSA (www.
gsa.is).
Heimildir
*1 huffington post.
com/louise-mccready/
d-kessler-author-of-
emthe_b_195676.html
*2 foodaddictioninsti-
tute.org/FAI-DOCS/
Full-Bibliography.pdf
Esther Helga Guð-
mundsdóttir MSc.
framkvæmdastjóri og
matarfíknarráðgjafi hjá
MFM miðstöðinni.
viðhorf 29Helgin 20.-22. janúar 2012
S amkvæmt Dr. David Kessler MD., fyrrverandi yfirmanni fæðu- og lyfjaeftirlits Banda-
ríkjanna, eru um 30 prósent Banda-
ríkjamanna með matarfíkn.*1
Bandaríkjamenn eru um 300 milj-
ónir talsins, og því eru þetta um 70
milljónir manna. Ef við yfirfærum
þessar tölur á Íslendinga er hægt að
gera ráð fyrir að allt að 70 þúsund
Íslendingar geti átt við matarfíkn að
stríða! Dr. Kessler segir að um það
bil 50 prósent offitusjúklinga séu
matarfíklar, 30 prósent þeirra sem
eru í yfirþyngd og 20 prósent þeirra
sem eru í eðlilegri þyngd. Þetta er
ansi stór hópur ef satt reynist og
margir sem gætu þurft sérhæfða
hjálp við vanda sínum.
Við borðum vegna þess að það
er gott!
Matarfíkn er: a) líffræðilegur, b)
huglægur og c) andlegur sjúkdóm-
ur.
a) Þegar einstaklingur sem er mat-
arfíkill neytir ákveðinna fæðu-
tegunda eða efna í fæðunni, svo
sem sykurs, fitu eða sterkju,
valda þessi efni líkamlegri löng-
un. Viðkomandi finnur fyrir
knýjandi þörf til að fá sér meira
og helst klára það sem til er. *2
b) Huglægi þátturinn lýsir sér
þannig að hugurinn fer strax
að leita leiða að fá meira. Hug-
urinn sætir færis að sannfæra
viðkomandi um að í þetta skipti
verði í lagi að fá sér; „við fáum
okkur bara einn bita og svo aftur
kannski í næstu viku”. En raun-
veruleikinn er sá, að þegar þessi
efni komast inn í blóðrásina
missir viðkomandi stjórn á áti
sínu og vítahringur fíknarinnar
eða löngunarinnar er vakinn á
ný.
c) Viðkomandi neytir þessara mat-
artegunda vegna þess að þau
gera eitthvað fyrir hann, honum
líður betur og vanlíðan hverf-
ur. Eftir því sem sjúkdómurinn
þróast hjá viðkomandi minnkar
virkni efnanna og einstakling-
urinn þarf meira til að finna til
sömu vellíðunar. Á seinni stigum
hættir viðkomandi að finna fyrir
vellíðunaráhrifum matarins en
hefur samt knýjandi þörf til að
svala lönguninni í hann.
Andlegt og líkamlegt niðurbrot!
Ef einstaklingur sem þjáist af mat-
arfikn og átröskun fær ekki réttar
upplýsingar um ástand sitt bíður
hans síendurtekið niðurbrot á sál og
líkama því ekkert sem hann reynir
að gera til að bregðast við ástandi
sínu virðist virka. Hann skilur
ekki af hverju honum tekst ekki að
„borða minna og hreyfa sig meira“
og ná árangri eins og aðrir.
Ástæðan er hinsvegar sú að hann
hefur ekki fengið leiðbeiningar og
aðstoð sem bera árangur fyrir þá
sem eiga við matarfíkn og átröskun
að stríða og þann stuðning sem er
honum nauðsynlegur.
Flestir sem leita aðstoðar hjá
MFM-miðstöðinni sýna merki bæði
átraskana og matarfíknar. Margir
eiga við þyngdarvanda að stríða en
aðrir, einkum þeir sem eru sérstak-
lega sykurfíknir, eru ekki endilega
of þungir, þeir neyta sykurs á kostn-
að matar.
Nánast allir sem til okkar koma
hafa árum og áratugum saman
reynt að fylgja þeim leiðbeiningum
sem starfsfólk líkamsræktarstöðva,
heilbrigðisstarfsfólk og annað fag-
fólk hefur ráðlagt þeim til að grenn-
ast eða breyta lífsháttum sínum. Ár-
angurinn hefur látið á sér standa og
verið tímabundinn í besta falli.
Sérhæfð meðferð við matarfíkn
Þeir sem til þekkja vita að einstak-
lingur sem er að kljást við áfeng-
is- eða vímuefnavanda getur ekki
Offita og matarfíkn
Sjötíu þúsund landsmanna eiga við matarfíkn að stríða
Við styðjum þig
STOÐ
30ár
1982-2012
Fróðlegir
fyrirlestrar,
erlendir og
innlendir gestir
og spennandi
viðfangsefni!
Trönuhrauni 8 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 2885 |
Orkuhúsinu | Suðurlandsbraut 34 | 108 Reykjavík | Sími 565 1991
Opið kl. 8 - 17 virka daga
Opið kl. 8 - 16 virka daga
www.stod.is
stod@stod.is
STOÐ Í 30 ÁR
Stoð fagnar þrjátíu ára afmæli á árinu 2012 og stendur af
því tilefni fyrir ellefu opnum fræðslufundum allt afmælisárið.
Þar fjalla sérfræðingar Stoðar og ýmsir samstarfsaðilar,
erlendir jafnt sem innlendir, um hin ýmsu mál sem tengjast
stoð- og hjálpartækjum og öðru því sem getur auðveldað þeim
lífið sem þurfa á slíkum stuðningi að halda.
Fræðslufundirnir eru öllum opnir en er ætlað að höfða
sérstaklega til starfsfólks og nemenda í heilbrigðisgeiranum,
sem og viðskiptavina. Fyrirlestrarnir verða ýmist í hjálpar-
tækjasal Stoðar í Trönuhrauni 8 eða á Hótel Hafnarfirði, sem
er til húsa steinsnar frá Stoð, á Reykjavíkurvegi 72.
Fyrirtækið var stofnað í október 1982 og er nú leiðandi á
sviði stoðtækja- og hjálpartækjaþjónustu á Íslandi. Stoð hefur
stóra markaðshlutdeild í spelkuframleiðslu, gervilimasmíðum,
hjólastólum og göngugrindum, og hefur náið samstarf við
Hjálpartækjamiðstöð Sjúkratrygginga Íslands.
Við STyðjum þig! STOÐ býÐuR Til Opinna FRæÐSluFunda Reglulega allT aFmæliSÁRiÐ 2012.
26. JanúaR KL. 14-16
STuTT ViÐ baKiÐ
Helstu lausnir í bakbeltum
og bolspelkum
23. FebRúaR KL. 14-16
upp Til Handa
Og FÓTa
Þróun gervilima
29. maRS KL. 16-18
bRJÓSTgæÐi
Nýjungar í gervibrjóstum,
brjóstahöldurum og sundbolum
26. apRÍl KL. 14-16
mælingaR Og
pælingaR
Val á hjólastólum
31. maÍ KL. 14-16
mÁ bJÓÐa ÞÉR SæTi?
Sérmótuð sæti, belti og
höfuðstuðningur
7. JúnÍ KL. 14-16
HlÍFum ÞÉR
Hita- og stuðningshlífar,
íþróttainnlegg og skór
21. JúnÍ KL. 14-16
ÞRýSTinguR
Kynning á þrýstingsumbúðum
30. ÁgúST KL. 14-16
magnaÐiR
HJÓlaSTÓlaR
Rafmagnshjólastólar, val og
möguleikar
27. SepTembeR KL. 14-16
meÐ bÁÐa FæTuR
Á JöRÐinni
Fótalausnir, sérgerðir skór
og skólausnir
25. OKTÓbeR KL. 14-16
STöndum ÞÉTT
Saman
Sérsmíðaðar standspelkur
og ökklaspelkur
29. nÓVembeR KL. 14-16
HenduR, HnÉ
Og leggiR
Sérsmíðaðar handarspelkur,
hnéspelkur og fótleggjaspelkur
AllAR NáNARi upplýSiNgAR á
www.STOd.iS
„Verkefnin sem sérfræðingar Stoðar taka
að sér eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg.
þau krefjast nákvæmni og útsjónarsemi
og við leggjum okkur fram um að mæta
mismunandi þörfum og óskum ólíkra
einstaklinga og finna bestu lausnina
hverju sinni.“
- Kristina Andersson, stoðtækja- og
hjálpartækjasmiður
p
O
R
T
h
ön
nu
n
Við styðjum þig
STOÐ