Fréttatíminn - 20.01.2012, Side 56
Gamlinginn samur við sig
Nýjasti metsölulisti bókaverslana
ber dám af því að jólabókaæðið er
afstaðið yfir
enda listinn
býsna
janúarlegur
þessa vik-
una. Heilsu-
réttir Hag-
kaups tróna
á toppnum
sem rökrétt
afleiðing
ofáts fólks á
iðnaðarsölt-
uðu kjöti
yfir hátíðarnar. Þóra-heklbók er í
öðru sæti en hið sígilda Almanak
Háskóla Íslands í því þriðja. Gaml-
inginn sem skreið út um gluggann
er ekki af baki dottinn og situr í
fjórða sætinu. Gömlu standard-
arnir Sjálfstætt fólk eftir Halldór
Laxness og Grafarþögn Arnaldar
Indriðasonar reka lestina í níunda
og tíunda sæti en ætla má að þær
bækur séu á leslistum einhverra
framhaldsskóla á vorönn sem
skýrir þá stöðu.
Landinn horfir
á handboltann
Beinar útsendingar á EM i hand-
bolta eru farnar að setja svip sinn
á dagskrá Sjónvarpsins og ekki er
að spyrja að áhuga fólks á gengi
íslenska landsliðsins. Íslendingar
tóku forskot á handboltasæluna
með undirbúningsleiknum gegn
Finnum síðasta föstudagskvöld.
Tæp 60 prósent landsmanna
horfðu eitthvað á þann leik í
beinni útsendingu á RÚV. Söngva-
keppni Sjónvarpsins fer einnig
vel af stað og mældist með mesta
meðaláhorfið í síðustu viku eða
42 prósent. Fastir liðir voru svo
skammt undan: Útsvar, Criminal
Minds, Landinn og Fréttir voru í
toppsætum áhorfslistans.
Ravel og Debussy
í Bústaðakirkju
Ísafoldarkvartettinn leikur á tón-
leikum í Bústaðakirkju á vegum
Kammermúsíkklúbbsins klukkan
20 á sunnudagskvöld. Ísafold-
arkvartettinn skipa þau Elfa Rún
Kristinsdóttir fiðla, Helga Þóra
Björgvinsdóttir fiðla, Þórarinn
Már Baldursson víóla og Margrét
Árnadóttir selló. Fluttir verða tveir
af þekktustu strengjakvartettum
tónlistarsögunnar eftir frönsku
impressjónistana Claude Debussy
(1862-1918) og Maurice Ravel
(1875-1937). Tónleikarnir eru þeir
fjórðu í röðinni á þessu starfs-
ári Kammermúsíkklúbbsins, en
um þessar mundir eru 55 ár liðin
frá því klúbburinn hóf starfsemi
sína og hefur hann starfað óslitið
síðan.
HELGARBLAÐ
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
Hrósið …
... fær Róbert Gunnarsson handboltakappi
fyrir glæsilegt Talibana-skegg sem hann
skartar þessa dagana. Skegginu var forðað frá
hnífnum þegar Róbert skoraði níu mörk í sigur-
leik gegn Norðmönnum en það hefði fengið að
fjúka ef hann hefði ekki náð að skora mark.
ÚTSALA
Gerið gæða- og verðsamanburð
Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Baldursnesi 6, Akureyri, 461 1150
Opið virka daga kl. 10.00 - 18.00 – laugardaga 12.00 - 16.00
Listhúsinu Laugardal
12 mán
aða
vaxtal
ausar
greiðs
lur
Fyrs
tur k
emu
r
fyrst
ur fæ
r
Takmarkað magn
SAGA, FREYJA, ÞÓR
Hágæða heilsudýnur
ÚRVAL STILLANLEGRA
HEILSURÚMA
20-70%
AFSLÁTTUR
af völdum vörum
Skiptidýnur, útlitsgallaðar dýnur og sýningardýnur
Lök, hlífðardýnur, pífur, sængurverasett og fleira
Baldursnesi 6