Fréttatíminn - 09.03.2012, Side 2
Gunnhildur
Arna
Gunnarsdóttir
gag@
frettatiminn.is
FELLSMÚLI • SKÚLAGATA • GARÐABÆR • MJÓDD
Fjórir skuldlausir þingmenn
SílikonpúðafölSun Bandaríkjamenn vöruðu við pip árið 2000
Helmingur kvenna hefur sótt ómskoðun
e inungis rétt rúmlega helmingur kvenna með fölsuðu PIP-sílikon-púðana hefur farið í ómskoðun
hjá Leitarstöð Krabbameinsfélagsins frá
því að farið var að skoða hversu margar
þeirra bera hugsanlega leka púða. Í
síðustu viku komu 34 konur í ómskoðun
og voru 17 voru með leka púða. Leka-
tíðnin er því talin vera um 57 prósent
um þessar mundir.
Fréttatíminn hefur ítrekað í vikunni
reynt að fá upplýsingar um hversu
margar konur hafa látið fjarlægja
iðnaðarsílikon-púðana á Landspítalan-
um, en ekki fengið. Landspítalinn gefur
það ekki upp þar sem aðgerðirnar eru
gerðar að beiðni landlæknis. Þar liggja
þessar upplýsingar ekki, en eftir þeim
hefur verið óskað.
Geir Gunnlaugsson landlæknir segir
erfitt að fullyrða um skýringar á því af
hverju ekki hafi fleiri konur sóst eftir
ómskoðun. Embættið bíður niðurstöðu
Persónuverndar um hvort það eigi rétt
á að vita hverjir sæki í fegrunar- og
lýtaaðgerðir, svo það geti rækt eftir-
litsskyldu sína. Fáist leyfið sé hægt að
ákveða hvernig haft verði upp á kon-
unum sem ekki hafa farið í skoðun.
Franski sílikonframleiðandinn komst
í tíu ár upp með að framleiða fölsuðu
púðana. Í frétt Reuters segir að ein
ástæða þess að bandaríska matvæla- og
lyfjaeftirlitið (FDA) hafnaði saltvatns-
sílikonpúðum framleiðandans í júní árið
2000 hafi verið sú að franska fyrirtækið
brást ekki við kvörtunum 120 kvenna.
Einnig að púðarnir virtust tæmast.
William Maisel, sérfræðingur eftir-
litisins, segir strangar reglur í Banda-
ríkjunum hafi varað konurnar þar við
þessum fölsuðu púðum. Bandaríska
eftirlitið hafi sett rökstuðning sinn fyrir
höfnuninni á netið, en niðurstaðan fór
að öllum líkindum framhjá Frökkum.
Hér er sýnt
hvernig sílikon-
púði á að liggja.
Fjórir þingmenn skulda ekkert vegna fasteignakaupa: Ásbjörn
Óttarsson, Steingrímur J. Sigfússon, Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson og Birgitta Jónsdóttir, en hún á ekki fasteign. Þetta
kemur fram þegar rýnt er í veðbókarvottorð þingmanna sem
vefmiðillinn Svipan birti í upphafi mánaðarins.
Miðillinn hefur aðeins birt brot af vebókarvottorðum þing-
manna en hefur tilkynnt að von sé á birtingu fleiri vottorða.
Dæmi er einnig um að þingmenn vanti á lista sem Svipan
hefur undir höndum og má þar til dæmis nefna Árna Johnsen,
þingmann Sjálfstæðisflokksins. - gag
Anna Kristín vill
launamuninn
greiddan
Milljóna skaðabætur falla á ríkið verði
niðurstaða dómstóla í máli Önnu
Kristínar Ólafsdóttur gegn Jóhönnu
Sigurðardóttur forsætisráðherra á
þá leið að ríkinu beri að greiða Önnu
mismun á launum hennar nú og þeim
sem hún hefði fengið sem skrifstofu-
stjóri hjá forsætisráðuneytinu. Fram
á það fer Anna Kristín, sem er sér-
fræðingur hjá Umhverfisstofnun.
Úrskurðarnefnd jafnréttismála komst
að þeirri niðurstöðu fyrir tæpu ári
að forsætisráðuneytið hefði brotið
jafnréttislög þegar það réði karl
umfram Önnu Kristínu. Forsætisráðu-
neytið hefði ekki sýnt fram á að aðrar
ástæður en kynferði hefðu legið til
grundvallar því að gengið var framhjá
henni við skipun í embætti skrifstofu-
stjóra. Aðalmeðferðin verður 24.
maí. - gag
Enn í lífshættu eftir
alvarlega líkamsárás
Karlmaður á sextugsaldri er enn í lífshættu
eftir að hafa orðið fyrir fólskulegri líkamsárás
á lögmannsstofunni Lagastoð síðastliðinn
mánudag. Ástand mannsins er óbreytt og er
honum haldið sofandi í öndunarvél, að því er
mbl. is hafði í gær eftir lækni á gjörgæsludeild.
Árásarmaðurinn, karlmaður á fertugsaldri, var
úrskurðaður í gæsluvarðhald þar til á morgun.
Hann hefur játað verknaðinn og verður gert að
sæta geðrannsókn en hann stakk fórnarlambið
nokkrum stungum með beittum veiðihnífi. Guðni
Bergsson, lögfræðingur og starfsbróðir þess
sem ráðist var á, kom honum til aðstoðar, náði
hnífnum af árásarmanninum en varð sjálftur
fyrir hnífsstungum í læri. Guðni slasaðist þó ekki
alvarlega. - jh
Tveggja ára fangelsi fyrir
tilraun til fjársvika
Viggó Þórir Þórisson, fyrrverandi framkvæmda-
stjóri Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna, var
dæmdur í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi
í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Hann var
sakfelldur fyrir tilraun til fjársvika en sýkn-
aður af ákæru um umboðssvik. Forsvarsmenn
Verðbréfaþjónustunnar létu lögreglu vita um
hugsanlega refsiverða háttsemi framkvæmda-
stjóra félagsins í apríl 2007. Viggó útbjó skjöl
sem öll tengdust bandaríska fyrirtækinu Napis
en við rannsókn málsins kom í ljós að Viggó átti
fjórðungshlut í því. Hefði svikamyllan gengið
upp hefðu gríðarlegir fjármunir farið inn á
reikning Napis og Viggós, svo nemur milljónum
dollara. - jh
Ari Trausti Guðmundsson íhugar
af alvöru að bjóða sig fram til
embættis forseta Íslands. Hann
tekur endanlega ákvörðun öðru
hvorum megin við páska. Ljósmynd
Ragnar Th. Sigurðsson.
forSetakoSningar endanleg ákvörðun öðru hvorum megin við páSka
Ari Trausti íhugar for-
setaframboð af alvöru
Ég hef alltaf haft áhuga á samfélagsmálum og forseti getur gert margt gott. Það á ekki að hafa
áhrif á ákvörðunina hverjir eru meðframbjóðendur, segir Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlis-
fræðingur og rithöfundur. Það sem skiptir máli er hvort menn telji sig hafa eitthvað fram að færa.
Annað hvort segir maður
nei strax eða hugsar
málið og ég er ekki
fráhverfur framboði.
a ri Trausti Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur og rit-höfundur, íhugar nú forseta-
framboð af alvöru. „Ég reikna með
því að taka ákvörðun öðru hvorum
megin við páska,“ segir hann, „en er
alvarlega að íhuga málið. Margir hafa
hringt í mig og sent mér tölvupóst og
raunar hringdi sá fyrsti þegar eftir
nýársávarp forseta Íslands. Í fram-
haldi þess kannaði ég meðal vina og
kunningja hvað þeir héldu og þau
viðbrögð hafa yfirleitt verið jákvæð.
Nú þarf ég bara að hugsa áfram, vega
og meta því þetta er svo stórt mál,
hvað fylgi snertir, reynslu, þekkingu
og málefnagrunn. Það gerist á næstu
dögum og vikum.“
Leiðirnar eru aðeins tvær, segir
Ari Trausti. „Annað hvort segir
maður nei strax eða hugsar málið
og ég er ekki fráhverfur fram-
boði. Ég hef alltaf haft áhuga á
samfélagsmálum og forseti getur
gert margt jákvætt. Þess vegna
segir maður ekki nei að óathug-
uðu máli.“
Ari Trausti íhugar framboðið
óháð tilkynningu Ólafs Ragnars
Grímssonar um að hann gæfi
kost á sér til endurkjörs. „Ef ég
tek ákvörðun fer ég fram hvort
sem Ólafur Ragnar er í framboði
eða ekki. Það á ekki að hafa áhrif
á ákvörðunina hverjir eru með-
frambjóðendur. Þá er ekki verið
að hugsa um það sem skiptir máli,
hvort menn telji sig hafa eitthvað
fram að færa.“
Áður en að endanlegri ákvörðun
um framboð kemur segist Ari
Trausti þurfa að leggja út í tölu-
verða vinnu, halda fundi, hringja
í mann og annan og kanna málið.
„Þetta er spursmál um að fá fólk
til vinnu, peninga, hugsanlegt
fylgi og svo margt annað,“ segir
Ari Trausti. „Þótt það sé ekki nein
skriða fólks sem hefur haft sam-
band við mig eru það nógu margir
til þess að maður finni alvöruna
í þessu.“ Hann segir hugsanlegt
framboð hafa verið rætt innan fjöl-
skyldunnar. „Mitt fólk hugsar en
þetta er ekki komið svo langt að
við höfum tekið nein afgerandi
skref.“
Ari Trausti Guðmundsson fædd-
ist í Reykjavík 3.12.1948. Hann
lauk stúdentsprófi frá MR 1968,
prófi í forspjallsvísindum frá HÍ
1972, er Cand.mag. í jarðeðlis-
fræði frá Óslóarháskóla 1973 auk
þess að hafa lagt stund á viðbót-
arnám í jarðfræði við HÍ 1983 til
1984. Hann hefur skrifað greinar
í blöð og fjölda bóka um nátt-
úru og jarðfræði Íslands og hafa
bækur hans um þau efni komið
út á íslensku, ensku, ítölsku og
frönsku. Verk hans, Íslenskar eld-
stöðvar, var tilnefnt til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna 2001.
Árið 2002 hlaut hann Bókmennta-
verðlaun Halldórs Laxness fyrir
smásagnasafnið Vegalínur og árið
2004 sendi hann frá sér sína fyrstu
ljóðabók, Í leiðinni. Árið 2008
hlaut hann verðlaun Rannís fyrir
kynningu á vísindum til almenn-
ings.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
2 fréttir Helgin 9.-11. mars 2012