Fréttatíminn - 09.03.2012, Blaðsíða 49
Helgin 9.-11. mars 2012 heilsa 45
Njóttu lífsins með
heilbrigðum lífsstíl
KEA-skyr er frábær hollustuvara sem einungis er unnin úr náttúrulegum hráefnum.
KEA-skyr er einstaklega næringarríkt, það inniheldur hágæðaprótein og er fitulaust.
KEA-skyr er góður kostur fyrir alla þá sem hafa hollustuna í fyrirrúmi og vilja lifa á
heilsusamlegan hátt.
Fegurð - Hreysti - Hollusta Ný
bragðtegun
d.
Karamella!
séu æ betur að gera sér grein fyrir
áhrifum lífstíls á heilbrigði. „Stór
hluti þeirra sem leita til mín um
ráðgjöf þjást af langvarandi streitu
af ýmsum ástæðum,“ segir Þórdís.
Hún segir þó afar mikilvægt að
skoða þurfi ástæður streitunnar
heildrænt, ekki megi líta á ein-
hverja afmarkaða þætti. „Eitt af
því sem kemur fólki á óvart er
hve mikil áhrif mataræði hefur á
streitu. Þá er fyrst og fremst um
að ræða neyslu áfengis, koffíns og
fæðu sem hefur hækkandi áhrif á
blóðsykur, svo sem sykur OG EIN-
FÖLD KOLVETNI,“ bendir hún á.
Þórdís segir að skoða verði
lífsstíl fólks sem þjáist af mikilli
streitu. Ekki sé nægilegt að taka
eingöngu á mataræðinu, eða hreyf-
ingu, heldur verði að skoða sam-
spil allra þátta. „Fólk er oft komið
í ákveðinn vítahring sem erfitt er
að vinda ofan af. Það þarf talsvert
átak til að komast út úr þessum
vítahring, það er ekki nóg að byrja
bara í ræktinni eða fara í átak og
missa nokkur kíló,“ segir hún.
Þórdís ákvað að gera tilraun og
bjóða fólki upp á þriggja daga alls-
herjar heilsuprógramm, svokall-
aða HaPP daga þar sem hugað er
að öllum þeim þáttum sem spila
saman og stuðla að heilbrigði.
Fengu þeir svo góðar undirtektir
að hún hefur ákveðið að bjóða upp
á fleiri HaPP daga á þessu ári.
„Um er að ræða þrjá daga á
Hótel Hengli þar sem lagt er upp
með að fræða þátttakendur þannig
að þeir skilji þær breytingar sem
eiga sér stað á líðan og aukinni
orku. Við bjóðum upp á hráfæði frá
HaPP allan tíma og höldum fyrir-
lestra um næringu og mismunandi
áhrif matar á andlega og líkamlega
vellíðan. Farið verður í grunnatriði
í hugleiðslu sem og kennslu í mat-
reiðslu og við stundum líkams-
rækt, útiveru og jóga, svo fátt eitt
sé nefnt,“ segir Þórdís.
Þátttakendur munu upplifa
mikla breytingu á eigin líðan með
því að borða einungis hráfæði,
stunda íhugun og góða hreyfingu
í þrjá daga, að sögn Þórdísar.
„Orkan verður miklu meiri en
flestir hafa upplifað í langan tíma
ef nokkurn tímann. Einnig mun
dvölin vekja þátttakendur til um-
hugsunar um mikilvægi þess að
halda áfram á sömu braut,“ segir
hún. „En það er einmitt markmiðið
með HaPP dögunum, að kynna
fyrir fólki þá vellíðan sem fylgir
því að ástunda heilbrigða lífshætti
og kenna þeim að halda því áfram
að námskeiði loknu,“ segir Þórdís
og bendir loks á að nánari upp-
lýsingar um HaPP daga megi finna
á vefnum happ.is.
Þórdís Sigurðardóttir,
heilsuráðgjafi og
annar eigandi HaPP.
Viðvarandi
streita
eykur mjög
áhættu fyrir
mörgum
sjúkdómum.
stöðugt út skipanir um að verða á
verði, í gegnum aukna framleiðslu
á taugaboðefnum tengdum hættu
og á streituhormónum og við-
varandi (króniskt) streituástand
skapast,“ segir í leiðbeiningum
Velferðarvaktarinnar.
Smám saman fara taugaboðefn-
in og streituhormónarnir að vinna
gegn upphaflegu hlutverki sínu.
Einbeiting og minni truflast, vart
verður vaxandi þreytu og ýmis sál-
líkamleg einkenni geta myndast.
Varnarþættir ónæmiskerfisins
raskast, neikvæð áhrif verða á
sykurbúskap, stjórnun hjarta og
blóðþrýstings og ýmsa bólgusjúk-
dóma.
Viðvarandi streita eykur mjög
áhættu fyrir mörgum sjúkdómum,
bæði vegna lífeðlisfræðilegra
áhrifa á vefi og líffærakerfi, og
vegna hins andlega álags streit-
unnar á tilfinningalíf.
Hér má helst nefna: Hjartadrep,
æðakölkun, heilablóðfall, sykur-
sýki. verri blóðfitustjórnun, versn-
un giktsjúkdóma, öldrun heila,
þunglyndi, kvíði, áfallastreiturösk-
un, verri verkjastjórnun og starfs-
kulnun (burn-out).”
Meðal þeirra úrræða sem bent
hefur verið á til að vinna gegn
streitu er slökun, heilbrigt líferni,
nægur svefn, holl fæða og næg
hreyfing. Þórdís Sigurðardóttir,
heilsuráðgjafi og annar eigandi
HaPP, segir að heilbrigðisvísindin