Fréttatíminn - 09.03.2012, Side 4
A
T
A
R
N
A
á morgun!
Fjöldi tilboða
í tilefni dagsins.
Opið frá 10 til 16.
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Sölusýning
Michelsen_255x50_H_1110.indd 1 02.11.10 10:11
Hafnarfjörður ætlar ekki selja HS Veitur
Milljóna hækkun á hita og
rafmagni hjá Perlunni
Rafmagns- og heitavatnsgjöld
Perlunnar hækkuðu um 3,4 milljónir
króna milli áranna 2010 og 2011.
Rafmagnskostnaðurinn hækkaði um
rétt tæpar 2,5 milljónir milli áranna
og var tæplega tíu milljónir króna,
en heita vatnið um 940 þúsund krónur og var rúmar 4,3
milljónir króna, samtals rúmar fjórtán milljónir króna.
Hækkunin nam 24 prósentum.
Þetta kemur fram í útboðsgögnum Orkuveitunnar
sem stefnir á að selja Perluna. Sölugögn voru lögð fyrir
borgarráð í síðustu viku að ósk minnihlutans, sem vildi
ganga úr skugga um hvort að þau hefðu gefið vilyrði fyrir
því að byggja mætti frekar á lóðinni og finnst þeim auð-
velt að túlka þau svo. „Allir tilboðsgjafar skildu það svo,“
segir í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Þeir sem buðu best í Perluna hafa tíma til loka mánað-
arins til þess að aflétta fyrirvörum við tilboð sitt og ganga
að kaupunum fyrir tæpa 1,7 milljarð króna. - gag
Ekki er tímabært að huga að sölu
eignarhluta Hafnarfjarðar í HS Veitum.
Það var niðurstaða bæjarráðs eftir að
Eyjólfur Sæmundsson, fulltrúi Hafnar-
fjarðar í stjórn HS Veitna, fór yfir stöðu
og rekstur fyrirtækisins. Fréttatíminn
fékk ekki að glugga í gögnin sem Eyjólfur
fór yfir á fundinum þar sem ekkert hafði
verið formlega lagt fram. HS Veitur eru
smásöluhluti raforku og hita fyrrum
Hitaveitu Suðurnesja. Hafnarfjarðarbær á
15 prósenta hlut í fyrirtækinu en sveitar-
félög á Suðurnesjunum hina. Orkufyrir-
tækið var rekið með 321 milljóna hagnaði
árið 2010, sem var viðsnúningur um á 576
milljónir frá árinu á undan. - gag
LyfjasaLa LyfseðiLsskyLt Lyf seLt á netinu á spottprís
Stinningarlyf selt
ólöglega á Bland.is
„Þær eru komnar aftur.“ Þannig hljómar smáauglýsing á sölusíðunni Blandi, þar sem stinn-
ingarlyfið Cialis er boðið á spottprís – sé miðað við verð sem gefa þarf fyrir pillurnar í apóteki.
Lyfjastofnun bendir á að netsala lyfja sé algjörlega bönnuð. Inntakan geti reynst hættuleg og
óvissa er um uppruna og innihald.
s tinningarlyfið Cialis er auglýst á smáauglýsingasíðunni bland.is. Tíu töflur á tíu þúsund, sem eru kostakjör
sé horft til þess að fjórar lyfseðilsskyldar 10
mg töflur í apóteki kosta 9.257 krónur. Sér-
fræðingur sem Fréttatíminn ræddi við og
kýs nafnleysi segir ljóst að lyfjum sem seld
séu svona hafi annað hvort verið smyglað til
landsins eða séu niðurgreiddar af ríkinu af
læknisráði og endurseldar. Slíkt gefi jafnvel
meira í aðra hönd en fíkniefnaviðskipti.
Halldór Gunnar Haraldsson, sérfræð-
ingur í lyfjamálum hjá Sjúkratryggingum
Íslands, segir aðeins einn til þrjá fá lyfið
Auglýsingin á Bland.is þar sem
Cialis-pillurnar eru sagðar komnar
aftur.
Stinningarlyfið Cialis
er ekki aðeins notað
árlega af um 2.000
körlum með risvanda-
mál, heldur einnig allt
að fimm konum. „Sam-
kvæmt sérlyfjaskrá
er lyfið stinningarlyf
eingöngu ætlað
körlum. Hins vegar
þekkist það í einstaka
undantekningartil-
fellum að læknar ávísi
lyfjum í öðrum tilgangi
en mælt er fyrir um
í sérlyfjaskrá þegar
um mjög sérhæfða
meðferð er að ræða
vegna fátíðra sjúkdóma
eða nýjungar í læknis-
fræði,“ segir Halldór
Gunnar Haraldsson,
sérfræðingur í lyfja-
málum hjá Sjúkratrygg-
ingum Íslands. - gag
Nokkrar koNur Nota CialiS
Betri afkoma
ríkissjóðs
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir
árið 2011 liggur fyrir og eru helstu
niðurstöður þær að handbært fé
frá rekstri var neikvætt um 53,4
milljarða króna en var neikvætt
um 73,7 milljarða króna á árinu
2010. Tekjur jukust um 6,3
milljarða króna og á sama tíma
drógust gjöldin saman um 5,5
milljarða króna. Þetta er betri
niðurstaða en sagði í áætlunum
þar sem gert var ráð fyrir að hand-
bært fé frá rekstri yrði neikvætt
um 73,2 milljarða króna, að því
er fram kemur í tilkynningu fjár-
málaráðuneytisins. Innheimtar
tekjur ríkissjóðs námu 468,1
milljarði króna árið 2011 sem er 1,4
prósenta aukning frá árinu 2010.
niðurgreitt árlega. Í fyrra
hafi hins vegar 1940 ein-
staklingar fengið lyfinu
ávísað án þess að það sé
niðurgreitt. Því má ætla að
lyfinu sé heldur smyglað til
landsins.
Haraldur Sigurjónsson,
sviðsstjóri eftirlitissviðs
Lyfjastofnunar, segir sölu
lyfja á netinu algjörlega
bannaða. Þá megi hópar
fólks, þá sérstaklega þeir
með hjarta- og æðasjúk-
dóma, ekki taka Cialis.
„Þá getur Cialis haft áhrif
á virkni annarra lyfja sem
neytt er. Cialis er lyfseðils-
skylt og því er það á ábyrgð
læknis að meta hvort við-
komandi megi neyta Cialis
og enginn ætti að taka lyfið
án samráðs við lækni. Svo
vil ég ítreka áhættuna við
því að kaupa lyf á netinu
þar sem óvissa getur verið
um uppruna og innihald,“
segir hann. „Það er fullt af
fölsuðum lyfjum í gangi í
heiminum, sérstaklega í
internetssölu.“
Haraldur segir að Lyfja-
stofnun beiti sér þegar það
fái ábendingar um sölu lyfja
á netinu, en það leiti slíkt
ekki uppi. Stofnunin hafi
ekki mannskap til þess.
Gunnhildur arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Cialis er lyfseðilsskylt ...
enginn ætti að taka lyfið
án samráðs við lækni.
veður föstudagur Laugardagur sunnudagur
StrekkiNGur af SuðVeStri oG
éljaGaNGur SuðVeStaN oG VeStaNlaNdS.
VíðaSt VæGt froSt.
HöfuðborGarSVæðið: SAMI éLjAGAnGuRInn
OG VERIð HEFuR, En STyTTIR uPP uM kVöLdIð.
HláNar þeGar líður á daGiNN oG með SlaG-
VeðurSriGNiNGu, SuNNaNlaNdS oG VeStaN.
HöfuðborGarSVæðið: RIGnInG FRá ÞVÍ FyRIR
HádEGI OG FRAM á dAGInn. HLýnAR MIkIð.
Nokkuð HVaSS af SV oG V. þurrt oG Hlýtt
um SuðauStaN- oG auStaNtil, eN SValara
með Slydduéljum eða éljum VeStaNtil.
HöfuðborGarSVæðið: ÚRkOMA AnnAð
SLAGIð, LÍkLEGA SLyddA EðA SLydduéL.
ekkert lát á lægðum
Lægðirnar halda áfram að renna sér yfir
landið eða rétt við okkur. Það verður vinda-
samt um helgina. él í dag, en á morgun er
spáð nýrri lægð á Grænlandshafi og með
henni kemur hlýtt loft sem fer hratt yfir
landið með rigningu. Hiti gæti farið í 8 til
10°C norðan- og austanlands um stund um
kvöldið. Hvasst af S og SV víðast
á landinu. á sunnudag er áfram
spáð vindasömu veðri, heldur
kólnar vestan- og norðvestan-
til og þar verða él eða
slydduél. Talsvert hlýrra
sunnan- og austanlands.
0
-1 0
2
1 4
3 0 1
5
2
0 5
7
4
einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
4 fréttir Helgin 9.-11. mars 2012