Fréttatíminn - 09.03.2012, Qupperneq 6
Þvottavélar
Vandaðar vélar á góðu verði.
Fást með innbyggðum þurrkara.
139.990 139.990
96.99089.990
Candy Aqua 100F
• 1000 snúninga og 3,5 kg þvottavél
• Hitastillir 30-90°
• Hurðaropnun 180°
• Ullarkerfi, skolstopp og hraðkerfi
• Stærð: (HxBxD) : 69,5 x 51 x 44 sm
• Þvotthæfni A
• Orkunýtni A
• Vinduhæfni C
Candy EVO1473DWS
• 1400 snúninga og 7 kg þvottavél
• Hitastillir 30-90°
• Hurðaropnun 180°
• Ullarkerfi, skolstopp og hraðkerfi
• Þvotthæfni A
• Orkunýtni A
• Vinduhæfni A
Candy EVOW4653DS
• Sambyggð þvottavél og barkalaus þurrkari 1400sn
• Ryðfrí tromla sem tekur 6kg þvott/5kg þurrk
• Stafrænn hitastillir og LCD skjár
• Stafræn niðurtalning á þvottatíma
• Handþvottakerfi, 14 mín. hraðkerfi
• Þvotthæfni A
• Orkunýtni B
• Vinduhæfni A
Candy EVO12103DWS
• 1200 snúninga og 10 kg þvottavél
• Hitastillir 30-90°
• Hurðaropnun 180°
• Ullarkerfi, skolstopp og hraðkerfi
• Þvotthæfni A
• Orkunýtni A+++
• Vinduhæfni B
Lítil og nett
Innbyggður
þurrkari Tekur 10kg
af þvotti
„...ég skil áhyggjur fólks því
þetta minnir á víggirðingar
við þar til gerðar stofnanir“
S tyrr stendur um gaddavírs-girt búr sem íbúi í Háholti í Mosfellsbæ hefur sett í
bakgarðinn hjá sér án þess að hafa
til þess leyfi frá bæjaryfirvöldum.
Eins og sjá má á myndinni sem
fylgir þessari frétt stingur girð-
ingin nokkuð í stúf við umhverfi
sitt og herma heimildir Frétta-
tímans að aðrir íbúar hússins séu
ekki hrifnir af framkvæmdagleði
nágranna síns. Ásbjörn Þorvarðar-
son, byggingafulltrúi Mosfellsbæj-
ar, segir í samtali við Fréttatímann
að málið sé í skoðun og hann hafi
þegar ráðfært sig við tvo aðila um
aðgerðir.
„Það liggur ekki fyrir formleg
fyrirspurn eða kvörtun vegna
þessa máls en það barst munnleg
fyrirspurn um þetta fyrirbæri. Ég
skoðaði aðstæður í dag (miðviku-
dag) og ég skil áhyggjur fólks því
þetta minnir á víggirðingar við þar
til gerðar stofnanir,“ segir Ásbjörn.
Samkvæmt lögum um fjöleignar-
hús er óheimilt að leggjast í fram-
kvæmdir við fjöleignarhús nema
fyrir liggi samþykktir uppdrættir
eða það rúmist innan ramma
byggingareglugerðar og fyrir liggi
samþykkt húsfélags. Ásbjörn segir
að slíkt eigi ekki við í þessu máli.
„Þessi girðing er ekki á samþykkt-
um uppdráttum og þeir sem skoða
þetta fá á tilfinninguna að um sé
að ræða eitthvað annað heldur en
bara girðing,“ segir Ásbjörn.
Og málið í heild snýst ekki
eingöngu um girðinguna. „Þetta
er partur af mannlegum harmleik
og tengist óvenjulegum þáttum í
lífi fólks. Það er í vinnslu á fleiri en
einum stað,“ segir Ásbjörn.
Aðspurður hvort girðingin verði
rifin segir Ásbjörn að verið sé að
skoða málið. „Það er nýkomið upp
og er hreinlega í vinnslu.“
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
SkipulagSmál moSfellSbær
Búr í bakgarði
fjölbýlishúss
veldur uppnámi
Byggingarfulltrúi Mosfellsbæjar skoðar nú úrræði vegna
kvartana um ólöglegt búr sem sett hefur verið upp á baklóð
fjölbýlishúss í Háholti. Engin ákvörðun hefur verið tekin um
framtíð búrsins.
Eins og sjá má á myndinni er um að ræða nýjung í girðingarverki við fjöleignarhús.
Ljósmynd/Hari
Eimskip flytur fyrir
Bauhaus
Eimskip mun annast alla flutninga
fyrir byggingavöruverslunina Bauhaus en
samningar voru undirritaðir á dögunum.
Samstarfið felur í sér heildarlausnir í
tengslum við flutninga á öllum vörum
fyrir Bauhaus í nýja verslun
fyrirtækisins við Vestur-
landsveg. Halldór Óskar
Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Bauhaus á Íslandi,
segir að nú sé allt að fara á
fullan skrið við að undirbúa
opnun verslunarinnar. Hann
segir að samið hafi verið við
Eimskip að undangengnu
útboði. - jh
Rifist um ruslið
Hart var deilt um tilboð Bandaríkja-
manna í sorpeyðingarstöðina Kölku
á bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ
á þriðjudaginn, að því er Víkurfréttir
greina frá. Fulltrúar Samfylkingarinnar
lögðu fram bókun þar sem lagst var
gegn sölu á Kölku til erlendra aðila, sem
grundvallast á innflutningi iðnaðarsorps
til brennslu á Suðurnesjum, en fulltrúar
meirihluta Sjálfstæðisflokksins ásamt
fulltrúa Framsóknar sögðu að skoða
þyrfti málið betur. Böðvar Jónsson, for-
seti bæjarstjórnar og fulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins, sagði bókun Samfylkingarinnar
óábyrga. Ekki væri góð stjórnsýsla að slá
málið út af borðinu án þess að skoða það
nánar. Kristinn Jakobsson, fulltrúi Fram-
sóknarflokkisins, tók undir orð Böðvars
og sagði sölu á Kölku geta verið góða
leið, meðal annars til að laga fjárhags-
stöðu hennar. - jh
Hægir á íbúðamarkaði
Samtals var 354 kaupsamningum um
íbúðarhúsnæði þinglýst á höfuðborgar-
svæðinu í febrúar og nam veltan rúmum
10,5 milljörðum króna, samkvæmt tölum
Þjóðskrár. Meðalupphæð á samning var
29,8 milljarðar króna. Veltan var minni
en í janúar. Þá var 372 kaupsamningum
þinglýst og veltan var tæpir 11 milljarðar
króna. Velta á íbúðamarkaði á höfuð-
borgarsvæðinu hefur dregist saman
undanfarna tvo mánuði en Greining
Íslandsbanka bendir á að engu að síður
sé um að ræða mikla aukningu frá sama
mánuði fyrra árs, en í febrúar í fyrra voru
gerðir 280 kaupsamningar um íbúðar-
húsnæði og hefur veltan því aukist um
26,4 prósent á milli ára. Íbúðaverð á
höfuðborgarsvæðinu hefur undanfarna 12
mánuði hækkað um 9,2 prósent að nafn-
verði og 3,3 prósent að raunvirði. - jh
Úlfar í hópi þeirra bestu
Stóra bókin um villibráð eftir Úlfar Finn-
björnsson matreiðslumeistara er í flokki
bestu matreiðslubóka heims, að því er fram
kemur í tilkynningu bókaforlagsins Sölku.
Þar segir að tilkynnt hafi verið um vinnings-
hafa og tilnefningar í efstu sæti Gourmand-
verðlaunanna sem séu meðal hinna virtustu
í heiminum á sviði matar- og vínbóka.
Patagonia Cuisines sigraði í aðalflokknum,
Besta matreiðslubók í heimi 2011, en bók
Úlfars var meðal hinna efstu í þeim flokki.
Alls voru sendar 162 bækur í keppnina. Í
tilkynningu vegna verðlaunaveitingarinnar
segir að bók Úlfars sé glæsileg heimild um
villta náttúru Íslands, eftir matreiðslumann
sem nýtir sér gæði landsins árið um kring.
Ljósmyndir í bókinni eru eftir Karl Petersen
og teikningar eftir Jón Baldur Hlíðberg. - jh
6 fréttir Helgin 9.-11. mars 2012