Fréttatíminn - 09.03.2012, Síða 14
Þúsundir
króna fuku út
um gluggann
dag hvern
Á meðan fjöl-
skyldur sem
keyptu heimili
frá árinu 2001
fram til ársins
2006 högnuðust
um milljónir
við sölu töpuðu
margar þeirra
sem keyptu frá
því ári milljónum.
Verðtryggð
lán juku enn á
ógæfu þeirra.
Fasteignamat
ríkisins tók saman
fimm raunveruleg
dæmi um kaup
og sölu á íbúðum
sem seldust
minnst þrisvar
frá árinu 2001.
Fréttatíminn
reiknar út dæmin
fimm og sýnir
hver hagnaðist
og hver tapaði á
fasteignakaup-
unum – og hversu
mikið.
F jölskyldan sem keypti 130 fer-metra íbúð í fjölbýli í Bryggju-hverfinu í júlí árið 2001 gat
hoppað hæð sína þegar hún seldi
þessa sömu íbúð þremur og hálfu ári
seinna. Íbúðin hafði hækkað í verði
um 9,3 milljónir króna. Verðbólgan á
sama tíma var rétt tæp 12 prósent, svo
raunávöxtunin var samtals 7,25 millj-
ónir króna eða um 5.600 krónur hvern
einasta dag sem hún bjó í íbúðinni.
Það hljóp einnig á snæri þess sem
keypti þessa íbúð af ljónheppnu fjöl-
skyldunni í Bryggjuhverfinu í janúar
2005. Íbúðin hækkaði um 4,8 milljónir
króna á árunum tveimur sem hann
átti hana. Raunávöxtunin var 5.750
krónur hvern dag eða 4,2 milljónir
króna á tímabilinu.
Þriðja fjölskyldan sem bjó í húsinu
var ekki eins heppin og þær fyrri.
Hún tapaði 3,5 milljónum í krónum
talið á kaupunum en fimm milljónum
sé horft til verðbólgunnar sem var 44
prósentur á tímabilinu sem hún átti
húsið.
Segjum að þessi ólánssama fjöl-
skylda hafi haft 20 milljóna króna
verðtryggt lán á eigninni. Það hækk-
aði þá um 10,2 milljónir króna á tíma-
bilinu. Verðbólgan nartaði því ekki
af gróðanum eins og hjá þeim sem
áttu íbúðina á undan heldur skildi
fjölskylduna eftir 13,7 (15,3 milljónir
verðbólgunni) milljónum fátækari en
fyrir kaupin.
Skoðum nú stöðu þess sem átti
íbúðina á undan ólánsömu fjölskyld-
unni. Hafi hann haft 20 milljón króna
verðtryggt lán á íbúðinni þessi tvö ár
sem hann átti hana hefur lánið klipið
tæplega 1,8 milljón af hagnaði hans á
þessum tveimur árum. Hann hefur þá
setið eftir með 2,4 milljónir í hagnað
af íbúðakaupunum í stað 4,8 milljóna;
tæplega 3.300 kr. dag hvern eða 98
þúsund á mánuði.
Af þessum dæmum fimm má sjá að
milljóna hagnaður lenti í vösum þeirra
sem keyptu árið 2001 en seldu á ár-
unum 2004 og 2005. Þannig hreppti
eigandi 100 fermetra fjölbýlisíbúðar
í Hlíðunum tæpa milljón á ári fyrir
þann tíma sem hann átti eignina. Tví-
býlishúsaeigandi í Túnunum hafði
14,1 milljón upp úr krafsinu en þó
ekki nema 7,6 milljónir að raunvirði,
þegar hann seldi átta árum eftir að
hann keypti, en húsið hafði hækkað
um 135 prósent í verði – 80 prósentu-
stigum umfram verðbólguna á þeim
tíma.
Eigandi 250 fermetra einbýlishúss
í Hafnarfirði hafði 29 milljónir upp úr
krafsinu þegar hann seldi það í sept-
ember 2008, sex og hálfu ári eftir að
hann keypti. Verðbólgan á þessu tíma-
bili var þó 42 prósent og raunávöxtun-
in því aðeins 16,8 milljónir króna. Sá
sem keypti húsið greiddi tæpar 7.540
krónur með sér að raunvirði hvern
einasta dag og tapaði 8,9 milljónum á
rúmum þremur árum á þessari fjár-
festingu.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Verðbólga
Raunávöxtun
Ávöxtun/tap miðað við 80%
skuldsetningu í verðtryggðu láni
Hagnaður/tap á dag án
skuldsetningar
2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011
30
25
20
15
10
5
0
12%
7,25 milljónir kr.
5,8 milljónir kr. í hagnað.
5.680 kr. á dag
11,6%
3,8 milljónir kr.
1,5 milljónir kr.
5.200 kr. á dag
44%
– 5 milljónir kr. í mínus
– 15,3 milljónir kr. í mínus
– 2.480 kr. á dagMilljónir
Fjölbýli í Bryggjuhverfi rúmlega 130 fermetrar
Júlí 2001 seld á 15,1 milljónir
Janúar 2005 seld á 24,4 milljónir
Janúar 2007 seld á 29,2 milljónir
Október 2011 seld á 25,7 milljónir
DÆMI 1
2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011
25
20
15
10
5
0
Milljónir
11%
2,8 milljónir kr.
1,7 milljón kr.
1.820 kr. á dag
12%
4,1 milljón kr.
2,6 milljónir kr.
5.850 kr. á dag
44,5%
1,5 milljón kr.
– 5,8 milljónir kr.
2.140 kr. á dag
Fjölbýli í Hlíðunum, rúmlega 100 fermetrar
Ágúst 2001 seld á 12 milljónir
Nóvember 2004 seld á 15,5 milljónir
Október 2006 seld á 20,8 milljónir
Október 2011 seld á 23,5 milljónir
DÆMI 2
2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011
40
35
30
25
20
15
10
5
0
Milljónir
Einbýli, Austurbær Kópavogs, rúmlega 190 fermetrar
Október 2001 selt á 15,5 milljónir
Janúar 2005 selt á 23,5 milljónir
September 2006 selt á 36 milljónir
Nóvember 2011 selt á 34,8 milljónir
DÆMI 3
45%
– 1,740.000
– 14,7 milljónir í mínus
– 910 kr. á dag
11%
11,1 milljón
9 milljónir
17.480 á dag
10%
7,8 milljónir
6,6 milljónir
6.580 á dag
Verðtryggð lán
á Íslandi hækka í
takti við verðlag
í landinu. Sé
verðbólga mikil
hækka lánin líka.
Séu verðhækkanir
litlar hækka lánin
sömuleiðis lítið.
Á Vísindavef Há-
skólans er bent á
að verðtryggð lán
geti líka lækkað.
Milli áranna 1979-
2008 hefur það
einu sinni gerst.
Þau lækkuðu þá um
0,06 prósent.
En hvað kostar
þá að taka 10
milljón króna verð-
tryggt lán með 4,7
prósent vöxtum
til fjörutíu ára í að
jafnaði 10 prósenta
verðbólgu? Sam-
tals eru það 259
milljónir króna
á lánstímanum.
Eftirstöðvar lánsins
byrja ekki að lækka
fyrr en eftir 379
greiðslur af 480
eða eftir rúmt 31
ár. Sé verðbólgan
fimm prósent
á lánstímanum
greiðir lántakinn 69
milljónir fyrir lánið
og eftirstöðvarnar
byrja að lækka eftir
tæp 26 ár.
Sé lánið tekið
til tuttugu ára í
fimm prósenta
verðbólgu greiðir
lántakinn rúmlega
26 milljónir fyrir
lánið. Lánið byrjar
að lækka eftir 69
greiðslur eða eftir
tæp sex ár. - gag
Raunverulegur gróði og tap við fasteignakaup
Skoðum hvað fjölskyldur höfðu upp úr
húsnæðisfjárfestingum sínum eftir að hafa
reiknað með verðbólgunni, sem eykur á tap
og bítur í gróða. Eins og sjá má högnuðust
þeir sem keyptu frá 2001 til 2005 en þeir
sem keyptu frá 2006 gátu ekki reiknað með
því sama og margir töpuðu milljónum.
Hvað þýðir að taka verðtryggt lán?
Samsettmynd/Hari
14 úttekt Helgin 9.-11. mars 2012