Fréttatíminn - 09.03.2012, Side 26
Fermingartilboð
Rúmföt frá 7.990 kr
100% Pima bómull
Sendum frítt úr
vefverslun
Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220 www.lindesign.is
síst ráðinn vegna tengsla við fjölmiðla og sem
textamaður.“
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins
Bjarni treystir mjög á félaga sína í þingflokkn-
um, þau Ólöfu Norðdal, Tryggva Herbertsson,
Jón Gunnarsson og Illuga Gunnarsson sem
öllum ber saman um að sé nánasti og besti
ráðgjafi Bjarna. „Tryggvi er hins vegar helsti
ráðgjafinn í efnahagsmálum og þessi hópur
situr sína herráðsfundi, borðar saman góðan
mat, drekkur góð rauðvín og leggur á ráðin.“
Illugi og Bjarni eru svo nánir að einn viðmæl-
enda veðjar á að „hann hljóti að gera Illuga
aftur að þingflokksformanni. Í síðasta lagi í
haust.“
Bjarni er einnig sagður reiða sig á Jónmund
Guðmarsson, framkvæmdastjóra Sjálfstæðis-
flokksins, sem sinni „ýmsum viðvikum“ auk
þess sem hann vinni náið með Svanhildi Hólm
Valsdóttur, framkvæmdastjóra þingflokksins,
sem hljóti að teljast einn nánasti ráðgjafi for-
mannsins. Þá hefur Bjarni alltaf reitt sig mjög
á stuðning gamalla æskuvina úr Garðabæ
sem hafa stutt hann í blíðu og stríðu. Þar er
helst nefndur til leiks Lúðvík Steinarsson,
hæstaréttarlögmaður. Þá leitar Bjarni einnig
til „gamalla kalla í Garðabænum, vina pabba
hans.“
Þegar talið berst að helstu andstæðingum
Bjarna í þingflokknum eru helst nefndir
Kristján Þór Júlíusson, sem fór gegn Bjarna
í formannskjöri, og Guðlaugur Þór Þórðar-
son. „Þessir tveir eru í laumubandalagi
gegn Bjarna og margir í þingflokknum urðu
sjóðandi reiðir út í Kristján vegna þess hversu
deigur hann þótti í vörninni fyrir vesenið á
Bjarna í Silfri Egils ekki alls fyrir löngu.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, for-
maður Framsóknarflokksins
„Magnús Ágúst Skúlason, InDefence-maður,
er í innsta hring Sigmundar Davíðs og hann
reiðir sig á ráð hans en Magnús Ágúst er nú
frekar mistækur,“ segir einn viðmælenda
blaðsins. „Í þingflokknum hlustar hann helst á
Birki Jón Jónsson og Gunnar Braga Sveinsson
og síðan er hann með afar hressan aðstoðar-
mann, Jóhannes Þór Skúlason sagnfræðing,
sem hann treystir mjög á.“
Sigmundur Davíð er einnig sagður treysta
mikið á Hrólf Ölvisson, framkvæmdastjóra
Framsóknarflokksins, sem sést oft niðri í
þingi. „Hrólfur er tengdur gömlu framsókn en
Sigmundur Davíð móðgaði marga þeim megin
þegar hann reyndi að skera á milli sín og
gömlu framsóknarinnar – Hrólfur sér um að
friða það lið. Sigmundur sækir í reynslubrunn
Hrólfs og er einnig með Sigurð Hannesson,
stærðfræðing, í miklum metum.“
Í ytri ráðgjafahópi Sigmundar er talað um
föður hans Gunnlaug Sigmundsson, Guðna
Ágústsson og Þórólf Gíslason, kaupfélags-
stjóra í Kaupfélagi Skagfirðinga. „Guðni er
kanall til Davíðs Oddssonar og hefur sést
koma af fundum í Hádegismóum.“ Um sam-
band feðganna Sigmundar og Gunnlaugs
segir einn viðmælenda Fréttatímans: „Þessi
skrýtni pabbi hans virðist hafa mikil áhrif á
hann. Sérstaklega í efnahagsmálum.“ Aðrir
viðmælendur telja hins vegar að áhrif Gunn-
laugs á pólitík sonarins séu frekar ofmetin.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
Maðurinn á bak við Blair
Alastair Campbell er einhver nafntogaðasti spuna-
meistari samtímasögunnar og nokkuð dæmigerður fyr-
ir upphafna ímynd slíkra í skáldskap og kvikmyndum.
Eldklár, með mikla fjölmiðlareynslu, útsjónarsamur,
slægur og mátulega ófyrirleitinn.
Eftir langan og skrautlegan feril í fjölmiðlum og glímu
við áfengisvandamál batt hann trúss sitt við Tony Balir
og breska Verkamannaflokkinn. Hann gegndi lykilhlut-
verki í kosningabaráttunni árið 1997 og vann náið með
Peter Mandelson við að stilla saman strengina í kosn-
ingabaráttu flokksins. Campbell einbeitti sér ekki síst
að því að snúa stóru fjölmiðlunum á sveif með Verka-
mannaflokknum og þá helst leiðandi dagblöðum, þar
á meðal The Sun sem hafði árum saman verið hliðhollt
Thatcher og þegar Campbell hafði lokið sér af hafði The
Sun lýst yfir stuðningi við Verkamannaflokkinn.
Eftir kosningasigur Blairs í maí varð Campbell
fréttafulltrúi forsætisráðherrans til ársins 2000 þegar
hann tók við starfi samskiptastjóra Blairs. Í því starfi
hitnaði verulega undir spunameistaranum og hann
var sakaður um að hafa látið ýkja ógnina af meintri
efnavopnaeign Íraka í skýrslu sem forsætisráðuneytið
gaf út til þess að réttlæta hernaðaraðgerðir í landinu.
Campbell vísaði öllum slíkum ásökunum á bug og sagði
bresku leyniþjónustuna staðfesta framburð sinn. Hann
sagði af sér í ágúst árið 2003 og Blair kvaddi hann
með þeim orðum að sá Campbell sem hann þekkti
væri afburðasnjall og einarður og traustur þjónn þess
málstaðar sem hann tryði á. Hann væri einnig trúr þjóð
sinni – væri og yrði alltaf góður vinur.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
sækir ráð í ýmsar áttir en ráðgjafar
hans þykja misgóðir.
Bjarni Benediktsson treystir
á náið samstarfsfólk í þing-
flokknum og gamla félaga úr
Garðabæ.
Gunnar
Bragi
Sveinsson.
Sigmundur
Davíð reiðir
sig á ráð-
leggingar
þingmanns-
ins.
Jónmundur
Guðmarsson,
framkvæmdastjóri
flokksins, sinnir
ýmsum viðvikum
fyrir formanninn.
Birkir Jón
Jónsson,
varaformaður
Framsóknar-
flokksins,
er annar
helsti sam-
verkamaður
Sigmundar
Davíðs í þing-
flokknum.
Illugi Gunn-
arsson
er sagður
nánasti og
besti ráð-
gjafi Bjarna.
Kasper í
Borgen
Kasper Juul, spunakarl
forsætisráðherrans
Birgitte Christensen, er ein
hressilegasta persónan í
dönsku sjónvarpsþáttunum
Borgen. Þessi kaldhæðni
ungi maður vakir yfir öllum
hreyfingum á pólitíska
taflborðinu enda helsta
verkefni hans að verja og
vernda forsætisráðherrann
fyrir öllum og öllu sem
geta komið henni illa í um-
ræðunni.
Kasper hefur nokkuð
gott forskot á alla and-
stæðinga og annað
spunalið þar sem hann
á í nánu en brokkgengu
sambandi við hina rísandi
fjölmiðlastjörnu Katrine
Fønsmark sem er í fremstu
víglínu TV1 þegar kemur
að viðtölum og fréttum af
stjórnmálunum.
Persóna Kaspers er
ekki fjarri þeim pólitíska
raunveruleika sem
blasir við á tímum þar sem
ráðamenn geta ekki lengur
komist upp með að stjórna
bara án þess að huga að
ímynd sinni og hvernig þeir
endurspeglast í almenn-
ingsálitinu öllum stundum.
Þá er ekki verra að hafa
menn eins og Kasper sér
við hlið.
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011
26 fréttaskýring Helgin 9.-11. mars 2012