Fréttatíminn - 09.03.2012, Síða 34
570
milljón króna lífeyrissparn-
aður skal ekki afhentur
Sigurjón Þ. Árnason fær
samkvæmt úrskurði héraðs-
dóms. Sigurjón nýtti lífeyrinn
til að
kaupa í
traustum
erlendum
félögum örskömmu fyrir
hrunið 2008. Sparnaðurinn
hefur margfaldast síðan þá
en slitastjórn Landsbankans
neitar að láta hann af hendi.
Sigurjón hefur áfrýjað til
hæstaréttar.
34 fréttir vikunnar Helgin 9.-11. mars 2012
Góð vika
fyrir Vigdísi Grímsdóttur rithöfund
Slæm vika
fyrir Þór Saari þingmann Hreyfingarinnar
121.
sætið er það sem íslenska
karlalandsliðið situr í á
nýjasta styrkleikalista FIFA.
Hefur liðið fallið um 18 sæti
frá því listinn var birtur
síðast.
Hæddur og skammaður
Þór Saari fór illa að ráði sínu á mánudag þegar hann skrifaði
bloggpistil strax í kjölfar hinnar skelfilegu hnífaárásar á fram-
kvæmdastjóra Lagastoða. Inntak pistils Þórs var að atburður sem
þessi þyrfti ekki að koma á óvart þar sem stjórnvöld sitji „með
hendur í skauti“ á sama tíma og skuldug heimili missa allt sitt. Þór
uppskar strax harða gagnrýni fyrir að nýta
sér þetta hræðilega mál í pólitískum
tilgangi. Hæddist meðal annars lög-
maðurinn Sveinn Andri Sveinsson
að líkamsburðum þingmannsins,
sem er ekki meðal hávöxnustu
manna, og sagði hann lítilmenni
að auki. Hafi pistill Þórs verið
vondur á mánudag versnaði
hann til muna þegar í ljós kom
að ástæða árásarinnar var vegna
skuldar upp á 80.000 krónur. Þór
sat eftir sem áður við sinn keip,
neitaði að biðjast afsökunar
á ruglinu, og varð enn
minni maður fyrir vikið.
900
vikan í tölum
HeituStu kolin á
þúsund krónur er upphæðin sem héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
Björn Bjarnason fyrrverandi dómsmálaráðherra til að greiða athafna-
manninum Jóni Ásgeiri Jóhannessyni vegna skrifa um hann í bókinni
Rosabaugur yfir Íslandi. Björn hefur áfrýjað málinu til Hæstaréttar.
Verðskulduð upphefð
Einhver frumlegasti og
snjallasti orðsmiður
þjóðarinnar var heiðr-
aður í vikunni þegar
DV útnefndi Vigdísi
Grímsdóttur handhafa
bókmenntahluta Menn-
ingarverðlauna blaðsins.
Það var bókin Trúir þú á töfra
sem heillaði dómnefndina en
í umsögn hennar sagði
meðal annars „Verkið
er í senn fagurt ljóð og
grimmileg frásögn,
beljandi stórfljót og
hjalandi lækur sem
skapa flóru hughrifa
og fá lesandann til
að horfast í augu við
sjálfan sig og viðhorf
sín til tilverunnar.“
Umfangsmikið greiðslu
kortasvindl
Tveir rúmenskir ríkisborgarar hafa verið
úrskurðaðir í gæsluvarðhald, grunaðir um
umfangsmikið greiðslukortasvindl hér á
landi. Þeir komu fyrir afritunarbúnaði á
tveimur hraðbönkum í miðbæ Reykja-
víkur.
Landsliðið niður um 18 sæti
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu
hrapaði niður um 18 sæti á heimslista
FIFA eftir tapleikina tvo gegn Japönum og
Svartfellingum. Þetta voru fyrstu leikirnir
undir stjórn Svíans Lars Lagerbäck.
Kaupþingsmenn mættu ekki
Kaupþingsmennirnir sem ákærðir eru
vegna sýndarviðskipta og markaðs-
misnotkunar í slagtogi við Katarann Al
Thani haustið 2008 voru ekki viðstaddir
þingfestingu á miðvikudag. Málinu var
frestað til 29. mars. Þá er gert ráð fyrir að
sakborningar mæti.
Sorpbrennslu hætt á Húsavík
Sorpbrennslustöðinni á Húsavík
verður lokað næsta haust ef ekki koma til
verulegar breytingar í rekstrarumhverfi
stöðvarinnar.
Seljan grillar
Saari
Alþingismaðurinn
Þór Saari fann sig
knúinn til þess að túlka óhugnanlega hnífaárás
á starfsmann lögmannsstofu og setja í pólitískt
samhengi. Fjölmörgum á Facebook ofbauð og Þór
endaði á grillinu hjá Helga Seljan í Kastljósi.
Kristján B Jónasson
Ef einhver sprengdi kjarnorkusprengu vegna þess
að bílalánið hans væri í vanskilum. Hvað segði
Þór Saari þá?
Óli Gneisti Sóleyjarson
Jæja, þar fór álit mitt á Þór Saari endanlega.
Kolbrún Baldursdottir
Hættuleg nálgun hjá Þór Saari í Kastljósinu. Þetta
er engin fín lína. Bara einfalt, ofbeldi er aldrei
hægt að réttlæta. Allt svona tal getur gefið ein-
hverjum undir fótinn með að það sé í lagi að beita
ofbeldi ef maður er reiður eða finnst á sér brotið.
Hrafn Jökulsson
Þór Saari, farðu burt. Takk.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Mér blöskrar það, sem Þór Saari (borið fram Sori,
sbr. Haarde er borið fram Horde) segir, og er ég
bersýnilega ekki einn um það.
Andri Þór Sturluson
Það er víst til ýmis afbrigði af dvergakasti.
Ég var t.d. að horfa upp á dverg taka brjálæðis-
kast í Kastljósinu.
Torfi Geirmundsson
Vá, hvað Helgi er að steikja Þór Saari.
Davíð fyrir dómi
Landsdómur er mál málanna þessa vikuna og
allra augu beindust að Davíð Oddssyni þegar
hann mætti til að bera vitni. Hann var sjálfum
sér líkur og sló á létta
strengi – fólki til mis-
mikillar gleði.
Björn Birgisson
Nú er Davíð Oddsson fyrir Landsdómi. Reyndar bara
sem vitni.
Fríða Garðarsdóttir
fylgist með tvítum úr Landsdómi ná nýjum
stílhæðum um leið og Davíð gengur í salinn. Hann
hefur víðtæk áhrif, landsfaðirinn.
Lára Hanna Einarsdóttir
Davíð Oddsson gerir ekkert nema að vandlega íhug-
uðu máli og það hefur ævinlega tilgang. Af hverju
hvíslar hann fyrir Landsdómi?
í það minnsta átján ár
Ólafur Ragnar Grímsson byrjaði vikuna með því að
lýsa sig tilbúinn til þess að sitja á Bessastöðum í að
minnsta kosti hálft kjörtímabil til viðbótar. Undir-
tektirnar á Facebook voru frekar dræmar.
Heimir Már Pétursson
Sýnist hann kominn með loforð um annað starf og
bjóði sig því fram til hluta fimmta kjörtímabilsins.
Alltaf fyrstur í öllu. Alla vega aldrei heyrt um hluta-
framboð fyrr.
Eva Hauksdottir
Ekkert smá hress náungi þessi forseti...
Einar Kárason
Mér fannst öllum létta svo mikið þegar hann í
nýársávarpinu lofaði að hætta. En nánustu vinir sáu
og skildu að hann var með lygaramerki á tánum.
Óli Kristján Ármannsson
Velti í fúlustu alvöru fyrir mér Friði 2012.
Jóhann Hlíðar Harðarson
Hvað heldurðu eiginlega að þú sért? Sómi, sverð og
skjöldur og gott betur... eða hvað?
71.600
var fjöldi gistinótta á
íslenskum hótelum í
janúar sem er 33,5 prósenta
aukning frá því í fyrra.
Stærsti gistináttamánuður
ársins er alltaf júlí en í þeim
mánuði voru næturnar
229.100 talsins á síðasta ári,
sem var 16 prósenta aukning
frá 2010.
Aðalstræti 2 / 101 Reykjavík / Sími: 517 4300 / www.geysirbistro.is
Borðapantanir í síma 517-4300
Humarsalat & Hvítvín 2.250 kr.
Humarsalat með hægelduðum smátómötum, mangó,
sultuðum rauðlauk og ristuðum cashew-hnetum
ásamt hvítvínsglasi.
Bláskel & Hvítvín 2.950 kr.
Hvítvínssoðin bláskel úr Breiðafirði ásamt
hvítvínsglasi.
G
e
y
s
ir
Bi
stro & Bar
FERSKT
&
FREiSTa
ndi
Fagmennska
í Fy
ri
rr
ú
m
i
SpennAndi
sjávarrétta
tilBoð
4
klukkustundir er tíminn sem
Davíð Oddsson, fyrrverandi
forsætisráðherra og seðla-
bankastjóri og núverandi
ritstjóri Morgunblaðsins,
var yfirheyrður frammi fyrir
Landsdómi.
Vitnaleiðslur hafa staðið í Landsdómi alla vikuna.
Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra,
sætir ákæru, fyrstur ráðherra, og bar vitni allan
mánudaginn. Síðan hafa vitnin komið hvert af öðru;
Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskipta-
ráðherra, Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabanka-
stjóri, Jón Sigurðsson, fyrrverandi stjórnarfor-
maður Fjármálaeftirlitsins, Heiðar Már Sigurðsson,
fyrrverandi forstjóri Kaupþings, Jónas Fr. Jónsson,
fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins og fleiri.
Á myndinni sést Geir mæta í Landsdóm í Þjóð-
menningarhúsinu. Með honum er fóstursonur hans,
Borgar Þór Einarsson. Vitnaleiðslur halda áfram í
dag, föstudag. Ljósmynd Hari