Fréttatíminn - 09.03.2012, Blaðsíða 37
mottumars 3Helgin 9.-11. mars 2012
Aðild að Krabbameinsfélagi Ís-
lands eiga 23 svæðafélög og sjö
stuðningshópar sjúklinga á lands-
vísu. Auk þess eru staðbundnir
stuðningshópar á tólf stöðum.
Félagsmenn í aðildarfélögunum
eru á tíunda þúsund.
Á Suðvesturlandi eru þrjú félög
og þjónustumiðstöðvar í Reykja-
vík og í Keflavík. Á Vesturlandi
eru fjögur félög og þjónustumið-
stöð á Akranesi. Á Vestfjörðum
eru tvö félög og þjónustumið-
stöð á Ísafirði. Á Norðurlandi eru
sjö félög og þjónustumiðstöðvar
á Sauðárkróki og Akureyri. Á
Austurlandi eru þrjú félög og
þjónustumiðstöð á Reyðarfirði.
Á Suðurlandi eru fjögur félög og
þjónustumiðstöð á Selfossi.
Samhjálp kvenna er elsti
stuðningshópur krabbameins-
sjúklinga, stofnaður 1979, til
stuðnings konum sem hafa
fengið brjóstakrabbamein. Í
Stómasamtökum Íslands er fólk
sem hefur gengist undir stóma-
aðgerðir. Ný rödd eru samtök
raddbandalausra. Styrkur eru
samtök krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra. Kraftur
er stuðningsfélag fyrir ungt fólk
sem greinst hefur með krabba-
mein og fyrir aðstandendur.
Markmið Krabbameinsfélags-
ins Framfarar hefur verið að
efla rannsóknir á krabbameini í
blöðruhálskirtli. Helsta baráttu-
mál Ristilfélagsins er að hafin
verði skipuleg leit að krabba-
meini í ristli. Einnig eru Góðir
hálsar, sem er stuðningshópur
um blöðruhálskirtilskrabba-
mein, og Stuðningshópur kvenna
með eggjastokkakrabbamein. Í
nóvember var stofnaður Stuðn-
ingshópur fyrir fólk sem greinst
hefur með krabbamein í lungum
og fyrir aðstandendur. Stuðnings-
hóparnir halda fræðslufundi
reglulega, flestir mánaðarlega
allan veturinn.
Í mars býðst fyrir-tækjum að panta fyrirlestur frá
Ráðgjafarþjónustu
Krabbameinsfélagsins,
þar sem frætt er um
karlmenn og krabba-
mein. Lára G. Sig-
urðardóttir læknir hjá
Krabbameinsfélaginu
og doktorsnemi í lýð-
heilsu flytur fyrirlestur
um helstu krabbamein
hjá karlmönnum, ein-
kenni og forvarnir.
Fyrirlesturinn
er fyrirtækjum að
kostnaðarlausu og er
þetta tilvalin leið til að
fræða starfsmenn um
sjúkdóminn, forvarnir
og úrræði. Einnig gefst
tækifæri til að hvetja
starfsmenn til að huga
að heilsunni. Hægt
er að bóka fyrirlestur
með því að hringja
í síma 540 1900 eða
senda tölvupóst á
asdisk@krabb.is Hluta fjármuna
sem safnað var í
Mottumars 2011
var ráðstafað til
vísindarannsókna á
krabbameinum hjá
körlum. Í fyrrahaust
var auglýst eftir
umsóknum um fimm
styrki, samtals að
upphæð 2,5 milljónir
króna. Alls bárust
átta umsóknir og
veitti vísindaráð
Krabbameinsfélags-
ins stjórn félagsins
umsögn um þær.
Dr. Sigríður Klara
Böðvarsdóttir sam-
eindalíffræðingur
hlaut 1.000.000
króna styrk, dr. Jón
Þór Bergþórsson
sameindalíffræð-
ingur og dr. Stefán
Þ. Sigurðsson sam-
eindalíffræðingur
hlutu 500.000 króna
styrki og Jóhanna E.
Torfadóttir doktors-
nemi og Tryggvi
Þorgeirsson læknir
hlutu 250.000 króna
styrki. Flestir
styrkþeganna stunda
grunnrannsóknir
á krabbameini í
blöðruhálskirtli.
Á landsvísu ÞrjátÍu aðildarfélög
Svæðafélög um allt land og stuðningshópar sjúklinga
RÁðgjafaRþjónusta KRabbameinsfélagsins fyrirtækjum að kostnaðarlausu
Boðið upp
á fræðslu á
vinnustöðum
lára g. sigurðar-
dóttir læknir hefur
heimsótt vinnustaði
og frætt starfsfólk
um krabbamein.
vísindastyRKiR fimm úthlutað
Rannsóknir á
krabbamein-
um hjá körlum
Frá afhendingu rannsóknastyrkjanna: Ásgerður Sverrisdóttir
formaður vísindaráðs Krabbameinsfélagsins, Tryggvi Þorgeirs-
son, Stefán Þ. Sigurðsson, Jón Þór Bergþórsson, Sigríður Klara
Böðvarsdóttir, Jóhanna E. Torfadóttir og Jakob Jóhannsson
varaformaður Krabbameinsfélags Íslands.
Félagsmenn í aðildar-
félögunum Krabba-
meinsfélags Íslands
eru á tíunda þúsund.
Hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8 er boðið reglulega upp á fjölbreytta fyrirlestra. Sem dæmi má nefna að fimmtu-
daginn 15. mars kl. 16:30 er örráðstefna um ristilkrabbamein. Þeir sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur geta leitað til Ráðgjafar-
þjónustunnar alla virka daga og fengið upplýsingar, fræðslu og margvíslegan stuðning.