Fréttatíminn - 09.03.2012, Síða 39
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
0
4
9
1
Hagsýnir heimilisbílar
Suðurlandsbraut 14 > sími 440 4400 > www.ergo.is > ergo@ergo.is
Að endurnýja bílinn í dag getur borgað sig.
Kannaðu kosti grænna bílalána og reiknaðu dæmið til enda á ergo.is
1Blönduð eyðsla á hverja 100 km
2Rekstur í eitt ár á meðalstórum fólksbíl m.v. að bensínverð sé 243 kr., dísilverð 254 kr. og akstur á ári 20.000 km.
Árgerð 20052
sjálfskiptur · bensín
Árgerð 20122
beinskiptur · dísil
Sparnaður
á ári
228.240 kr.Eyðsla1 228.600 kr.
4,5 l
456.840 kr.
9,4 l
- =
24.780 kr.Bifreiðagjöld 9.460 kr.34.240 kr. - =
2.100 kgCO2 útblástur 2.380 kg
119 g/km
4.480 kg
224 g/km
- =
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Teppi á stigaganginn
nú er tækifærið !
Komum á staðinn með prufur
og mælum,
ykkur að kostnaðarlausu
Eitt verð niðurkomið
kr. 6.390 m2
Íslenskt atvinnulíf
Á síðustu misserum hefur orðið til mjög áhugaverður vaxtarsproti í íslensku at-
vinnulífi. Hér er um að ræða klasa
eða klasasamstarf þar sem hópur
ólíkra aðila, sem oft eru í harðri
samkeppni, tekst að vinna saman
með aukna verðmætasköpun að
markmiði. Þannig tekst að tvinna
saman samkeppni og samvinnu til
hagsbóta fyrir heildina.
Upphaf klasahugtaksins er rakið
til tímamótaverksins The Competi-
tive Advantage of Nations eftir dr.
Michael Porter sem kom út árið
1990. Þar var hugtakið klasi skil-
greint sem „landfræðileg þyrping
fyrirtækja og stofnana á ákveðnu
sviði, sem eiga sameiginlega hags-
muni og stuðningsnet. Með klasa-
samstarfi skapast ákveðin heild
sem er mun sterkari en einstaka
aðili einn og sér.“ Með öðrum og
færri orðum: Saman erum við
sterkari.
Fæst okkar ætla ríkisvaldinu
það meginhlutverk að „skapa ný
störf“ en stjórnvöld eiga að styðja
við uppbyggingu atvinnulífsins og
skapa því umgjörð svo fyrirtækin
geti sjálf skapað verðmæti og þar
af leiðandi störf. Stuðningur við
klasasamstarf er þannig góð leið
fyrir hið opinbera að styðja við heil-
brigt atvinnulíf.
Staða Íslands
Klasasamstarf hér á landi er hvað
lengst komið á vettvangi jarð-
varmans. Í nóvember 2009 hófst
vinna á vegum dr. Michael Porter
sem stjórnaði kortlagningu ís-
lenska jarðvarmaklasans á veg-
um stofn-
unar hans
í Harvard.
Fyrsta árið
fór í grein-
i n g u á
framboði,
þekkingu,
eftirspurn
og mögu-
legu for -
s k o t i í
samkeppni
sem væri
að f inna
innan ís -
lenska
jarðvarmaklasans. Dr. Porter
kynnti niðurstöður sínar á þúsund
manna ráðstefnu í Háskólabíó 1.
nóvember 2010.
Á grundvelli greiningar dr. Por-
ters hófst vinna við að móta sýn til
framtíðar á vettvangi jarðvarmans.
Nokkrir lykilaðilar tóku höndum
saman. Vinnustofur tóku til starfa
og vel á annað hundrað sérfræð-
ingar, úr öllum áttum innan grein-
arinnar, lögðu sitt af mörkum. 28.
júní á síðasta ári var svo haldinn
stofnfundur klasasamstarfs ís-
lenska jarðvarmageirans, og við
sama tækifæri kom út skýrsla sam-
in af ráðgjafafyrirtækinu Gekon
með aðkomu dr. Michael Porter.
Þegar að var gáð reyndust margir
aðilar eiga hagsmuna að gæta –
og þar með tilheyra íslenska jarð-
varmaklasanum: Allt frá orkufyrir-
tækjum og fjármálafyrirtækjum til
rannsóknarhópa, háskóla og ráðu-
neyta.
Að sameina kraftana
Ég hef fylgst með af miklum áhuga
hvernig uppbyggingu og kortlagn-
ingu íslenska jarðvarmaklasans
hefur verið háttað. Á stofnfund-
inum 28. júní 2011 gerðust meira
en 20 fyrirtæki, stofnanir og félög
stofnaðilar, og skuldbundu sig með
ýmsum hætti til að koma að starf-
inu en gert er ráð fyrir að niður-
stöður með aðgerðaáætlun verði
lagðar fram í lok þessa árs. Nú eru
að störfum 10 vinnuhópar á ýmsum
sviðum jarðvarmaklasans og þátt-
takendur eru um 140 einstaklingar
sem allir hafa sitt fram að færa, allt
frá vísindalegri sérþekkingu til fjár-
mögnunar, alþjóðlegra sambanda
og pólitísks frumkvæðis. Stofnað-
ilar eru núna tæplega 70 talsins og
gangur vinnunnar er með miklum
ágætum.
Ég tel að þessi vinnubrögð séu
til mikillar fyrirmyndar og geti
verið leiðarljós fyrir klasasamstarf
í öðrum atvinnugreinum þar sem
möguleikar eru miklir. Má þar
nefna ferðaþjónustu, upplýsinga-
tækni, matvælaframleiðslu, hönnun
og ýmsar skapandi greinar þar sem
Íslendingar eiga mikla möguleika.
Íslenski jarðvarmaklasinn er þeg-
ar orðinn öðrum atvinnugreinum
fyrirmynd, og hefur vakið mikla
athygli erlendis, enda byggður á
grunni nútímavísinda úr þekktustu
menntasmiðjum heims og íslenskr-
ar sérfræðiþekkingar. Klasasam-
starf er augljóslega það sem koma
skal. Samstarf, samvinna og sam-
keppni eru hugtök sem eiga að geta
farið saman ef hagsmunir heildar-
innar eru hafðir að leiðarljósi.
Klasi – að sameina kraftana
Magnús Orri Schram
þingmaður Samfylkingar-
innar
Aðeins ímyndarvandi
Ingimar Karl Helgason segir í bloggi
sínu á Smugunni að Hannes Hólm-
steinn Gissurarson hafi gefið sér tíma frá
kommúnistaveiðum til að sitja í Lands-
dómi og greini frá þeirri upplifun á blogg-
síðu sinni og segi meðal annars: „Davíð
[Oddsson] skýrði líka vel tvö atriði, sem
fávísir fjölmiðlungar hafa reynt að gera
að árásarefni á Seðlabankann í undanfara
falls bankanna. Annað var, að ekki hefði
verið svarað tilboði í bréfi frá Mervyn
King, seðlabankastjóra Englands, vorið
2008 um að aðstoða íslensku bankana við
að minnka. Davíð benti á, að bréfið snerist
um annað. Með því var hafnað að veita
seðlabankanum lánalínur, eins og rætt
hafði verið um vikum saman. Það „tilboð“,
sem á eftir fór um aðstoð við að minnka
íslensku bankana, var ekkert annað en
kurteisistal, og hafði slíkt tilboð verið sett
margsinnis fram í umræðunum á undan.
Fylgdi þessu kurteisistali ekkert tilboð
um lánafyrirgreiðslu, sem nauðsynleg
hefði verið til að breyta útibúum Lands-
bankans í Bretlandi í dótturfélög.“ Þetta
segir Ingimar Karl að sé glæný saga, eða
spuni hjá prófessornum. Því hafi nefnilega
aldrei verið haldið fram að nota ætti fyrir-
greiðslu frá seðlabanka Bretlands, vorið
2008, til að flytja Icesave í dótturfélag.
Blogg sitt endar Ingimar Karl með þessum
orðum: „Seðlabankastjóri Bretlands
virðist hafa talið að hægt yrði að minnka
íslenska bankakerfið, þótt enginn sem
borið hefur vitni fyrir Landsdómi hafi talið
það mögulegt. Seðlabanki Bretlands er
enginn smábanki. Bankastjóri hans gefur
skriflegt loforð um að hann muni gera
allt sem í sínu valdi stendur til að hjálpa
til. Formaður bankastjórnar Seðlabanka Ís-
lands skellir við skollaeyrum og fullyrðir að
íslensku bankarnir séu vel fjármagnaðir. Þeir
glími við ímyndarvanda sem gjaldmiðla-
skiptasamningur eigi að leysa. Það eru út af
fyrir sig dálitlar fréttir og merkilegt þannig
séð að ekki hafi vakið meiri athygli. Maðurinn
sem segist hafa varað við á bak við tjöldin,
fullyrðir í samskiptum við seðlabankastjóra
Bretlands að bankarnir standi styrkum fótum
en glími við ímyndarvanda. Og þetta er eftir
að hann segist hafa varað ráðherra við að
bankarnir gætu lent í vandræðum vegna fjár-
mögnunar, á einhverjum öðrum leynifundi
rúmum mánuði fyrr.“
Fært til bókar
viðhorf 35 Helgin 9.-11. mars 2012