Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.03.2012, Side 41

Fréttatíminn - 09.03.2012, Side 41
Y T u a y N w f n l Wm C x U b Q g b e k r V p o B 9 E Y e N > q Q Borg fyrir fólk Betri hverfi 1 Vesturbær þriðjudagur 13. mars/kl. 17–18.30 Hagaskóli 2 Laugardalur miðvikudagur 14. mars/kl. 17–18.30 Laugardalslaug 3 Hlíðar fimmtudagur 15. mars/kl. 17–18.30 Háteigsskóli 4 Háaleiti mánudagur 19. mars/kl. 17–18.30 Réttarholtsskóli 5 Breiðholt miðvikudagur 21. mars/kl. 17–18.30 Gerðuberg 6 Grafarvogur fimmtudagur 22. mars/kl. 17–18.30 Hlaðan, Gufunesbæ 7 Kjalarnes mánudagur 26. mars/kl. 17–18.30 Fólkvangur, Grundarhverfi 8 Grafarholt-Úlfarsárdalur þriðjudagur 27. mars/kl. 17–18.30 Dalskóli 9 Árbær miðvikudaginn 28. mars/kl. 17–18.30 Fylkishöllin 10 Miðborg fimmtudagur 26. apríl/kl. 17–18.30 Ráðhús Reykjavíkur Opið hús um framtíðarskipulag í hverfinu þínu Aðalskipulag Reykjavíkur 2010–2030 adalskipulag.is reykjavik.is Dagskrá • Markmið og leiðarljós nýs aðalskipulags • Hugmyndir um þróun og uppbyggingu hverfisins • Vinnuhópar: hugmyndir rýndar • Barnasmiðja Fundaröð um nýtt aðalskipulag 1 10 3 2 4 5 6 9 8 7 Fært til bókar Jónas velur forseta Oft er vitnað til kjörorðs Ásgeirs Ás- geirssonar; „Fólkið velur forseta“, í forsetakosningunum árið 1952. Ás- geir atti þá kappi við Bjarna Jónsson dómkirkjuprest, sem naut stuðnings tveggja stærstu stjórnmálaflokkanna, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar- flokksins, og hafði betur. Stjórnmála- flokkar eru löngu hættir að styðja forsetaframbjóðendur, að minnsta kosti opinberlega. Aðrir hafa tekið við keflinu og nú má segja að fremstur fari Jónas Kristjánsson ritstjóri en í pistlum hans að undanförnu hefur hann mjög hvatt til þess að finna sterkan frambjóðanda gegn Ólafi Ragnari Grímssyni, sem tilkynnti um síðustu helgi að hann gæfi kost á sér til Bessastaðasetu fimmta kjörtíma- bilið í röð. Jónas lítur svo á að Ólafur Ragnar sé orðinn að stjórnmálaflokki sem hyggist hafa gætur á pólitíkusum næstu árin. Jafnvel Ástþór er skárri, segir Jónas, hann hefur þó hug- sjón. Hann hvatti síð- an til þess að ábyrgt fólk tæki sig saman í andlitinu svo finna mætti farsælt mótframboð og bætti því við að frambjóðandinn þyrfti að finnast í grasrótinni. Ekki lasta sjón- varpsfrægðina, sagði Jónas í öðrum pistli og benti á að öll hefðu þau Kristján Eldjárn, Vigdís Finnbogadóttir og Ólafur Ragnar Grímsson verið fræg úr sjónvarpi. Í næsta pistli taldi Jónas þau í atkvæðaröð sem flestar tilnefn- ingar hefðu fengið í framboð á fésbók þeirra sem skipta vilja um forseta. Það voru eftirtalin: Þóra Arnórsdóttir, Stefán Jón Hafstein, Ragna Árnadóttir, Páll Skúlason, Salvör Nordal, Andri Snær Magnason, Vilhjálmur Árnason, Herdís Þorgeirsdóttir, Gerður Kristný og Elín Hirst. Ragna tilkynnti síðar að hún gæfi framboðshugmyndina frá sér. Þegar lengra leið á vikuna kom fram hjá Jónasi að Þóra hefði alveg stungið Stefán Jón af í fésbókarkosn- ingunni, „enda er Stefán Jón of tengd- ur pólitík og á að fara létt með að verða formaður Samfylkingarinnar,“ eins og Jónas sagði og ítrekaði enn þá brýnu nauðsyn að samkomulag næðist um aðeins einn frambjóðanda gegn sitjandi forseta, annars sigraði Ólafur Ragnar á dreifingu atkvæða, eða eins og Jónas orðar það með sínum hætti: „Annars losnum við ekki við gamla kallinn af Bessastöðum. En Þóra,“ bætir hann við, „verður senn að svara okkur.“

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.