Fréttatíminn - 09.03.2012, Page 58
54 bíó Helgin 9.-11. mars 2012
Allt á einum stað!
Þín ánægja er okkar markmið
vodafone.is
Vertu í stöðugu sambandi við vinina
í gegnum Facebook, Twitter og aðra
samfélagsmiðla með Lumia 800.
Kynntu þér málið í næstu verslun
okkar eða á vodafone.is
Frumsýnd rándýrt ævintýri á mars
Disney leggur mikið undir með þrívíddarævintýrinu John Carter sem er frumsýnd um heim allan
í dag, föstudag. Myndin kostaði 250 milljónir dollara í framleiðslu sem þykir nokkuð djarft þar
sem lítt þekktum leikurum er teflt fram í helstu hlutverkum. Fénu var ekki síst eytt í magnaðan
ævintýraheim á Mars en þangað villist jarðneski hermaðurinn John Carter og blandast inn í átök
á rauðu plánetunni.
Þórarinn Þórarinsson
toti@frettatiminn.is
bíó
John Carter tekur á
vondum Marsbúum
J ohn Carter er hugarfóstur rithöf-undarins Edgar Rice Burroughs sem er langþekktastur fyrir bæk-
ur sínar um Tarzan apabróður. Fyrsta
sagan hans um Carter kom út árið
1912 þannig að frumsýning þessarar
myndar markar aldarafmæli persón-
unnar. Sagan hét upphaflega Under
the Moons of Mars en var síðar breytt í
The Princess of Mars.
Burroughs gaf bókina út undir dul-
nefninu Norman Bean þar sem hann
óttaðist að hann yrði að athlægi fyrir
að skrifa aðra eins dellu. Sagan varð
þó fljótt vinsæl og John Carter átti
eftir að koma oft við sögu í verkum
höfundarins.
Segja má að bíómyndin hafi verið
óvenju lengi í vinnslu þar sem
kvikmyndarétturinn á sögunni
var seldur árið 1931 og þá þeg-
ar hófst undirbúningur að gerð
kvikmyndar sem lítur ekki dags-
ins ljós fyrr en núna.
Margt er á huldu um John Carter
en hann virðist vera ódauðlegur. Hann
virðist ekki eiga neinar æskuminningar
en þjónaði sem liðsforingi í Þrælastríð-
inu í Bandaríkjunum. Að stríði loknu
auðgaðist hann á gullfundi í Ari-
zona en þegar hann leitar skjóls frá
Apache-indíánum í helli virðist hann
geispa golunni, yfirgefur líkama sinn
og dúkkar upp á Mars. Þar sem hann
er vanur meira þyngdarafli á jörðinni
er hann mun frárri á fæti, sterkari og
fimari í þyngdarkrafti Mars og hef-
ur því nokkurt forskot á Marsbúana
sem hann á eftir að takast á við í stríðs-
átökum þar.
Reynsla Carters af hernaði á jörðu
niðri spillir heldur ekki fyrir en hann
er varla lentur á Mars þegar hann er
handsamaður af þriggja metra háum,
grænum (en ekki hvað?) verum sem
hafa komið sér fyrir á reikistjörnunni.
Kappinn sleppur úr prísundinni og þá
verður á vegi hans prinsessan fagra De-
juh Thoris sem hefur hrakist frá völdum.
Eftir stendur hann milli tveggja elda og
þarf að ákveða fyrir hverja og hvaða mál-
stað hann vill berjast. Þetta val er þó síð-
ur en svo auðvelt enda margir fláráðir á
ferðinni þarna og víða setið á svikráðum.
John Carter er fyrsta leikna mynd leik-
stjórans Andrew Stanton en hann á að
baki hinar stórgóðu teiknimyndir Find-
ing Nemo og WALL·E. Taylor Kitsch
leikur Carter og Lynn Collins fe rmeð
hlutverk prinsessunnar Dejah Thoris;
kannski ekki nöfn sem klingja mörgum
bjöllum en þau eru dyggilega studd góð-
um hópi þekktra aukaleikara á borð við
Willem Dafoe, Thomas Haden Church,
Mark Strong, Ciarán Hinds, Dominic
West, James Purefoy og Bryan Cranston.
Ýmsar hættur bíða Johns Carter á Mars, svo ekki sé dýpra í árinni tekið.
The Vow er sannsöguleg
mynd um nýgift og yfir sig
ástfangin hjón, Paige og
Leo. Líf þeirra tekur miklum
breytingum kvöld eitt
þegar þau lenda í hörðum
árekstri við vörufluttningabíl
í fljúgandi hálku. Leo er
nokkuð fljótur að jafna sig
en Paige fellur í dauðadá.
Þegar hún vaknar hefur hún
misst minnið og man ekkert
eftir því að vera gift Leo
og kannast heldur ekkert
við ást þeirra. Fimm ár eru
þurrkuð úr minni hennar en
læknar eru vongóðir um að
minningarnar skili sér með
tímanum. Leo má þó varla
vera að því að bíða eftir
því þar sem Paige stendur
í þeirri meiningu að hún sé
enn í sambandi með fyrr-
verandi kærastanum sínum,
þeim sem hún var með áður
en Leo kom til sögunnar.
Leo þarf því að bregðast við
og reyna allt sem hann getur
til þess að vinna ástir Paige
í annað sinn áður en það er
um seinan.
Rachel McAdams (The
Notebook) og Channing
Tatum (Dear John) leika ungu
hjónin en Scott Speedman
(Underworld) leikur gamla
kærastann. Þá eru úrvals-
leikararnir Jessica Lange
og Sam Neill einnig í leik-
hópnum.
Aðrir miðlar: Imdb: 6.5,
Rotten Tomatoes: 28%,
Metacritic: 43%
Frumsýnd
Ástin í gleymskunnar dái
Bíó Paradís KviKmyndaFræðsla Fyrir Börn
Í febrúar hóf Bíó Paradís við Hverfisgötu að bjóða upp á
kvikmyndafræðslu fyrir grunnskólabörn og unglinga. Þrjár
vikur eru eftir af verkefninu sem Oddný Sen kvikmyndafræð-
ingur stjórnar.
Tilgangur kvikmyndafræðslunnar er að kynna börnum og
unglingum á grunnskólaaldri kvikmyndalæsi og segja þeim frá
lykilmyndum sem hafa skapað sér sess innan kvikmyndasög-
unnar. Jafnframt er leitast við að kynna börnum kvikmyndir frá
ýmsum þjóðlöndum. Börnin mæta undirbúin á fræðsludögum
og er gert ráð fyrir því að börnin greini þær kvikmyndir sem
fjallað er um. Þegar hefur verið fjallað um myndir á borð við
Sirkusinn eftir Chaplin, Hefndina eftir Susanne Bier, Cinema
Paradiso eftir Tornatore, E.T. og Ókindina eftir Spielberg.
Myndir sem á eftir að fjalla um eru meðal annars Galdrakarlinn
frá Oz eftir Viktor Fleming, Nútíminn eftir Chaplin, Piano eftir
Jane Campion og Babel eftir Iñárritu.
Stefnt er að því að vera með kvikmyndafræðslu fyrir börn og
unglinga á hverjum fimmtudegi í sex vikur þar sem sýningar
fyrir börn eru klukkan 10:30 og sýningar fyrir unglinga klukkan
13:00.
Rýnt í Chaplin og Oz
Galdrakarlinn í Oz kemur við sögu í kvikmyndafræðslunni í
Bíó Paradís.
BrucKheimer hress á twitter
Lone Ranger klár í slaginn
Stórmyndaframleiðandinn
Jerry Bruckheimer lét
fyrstu myndina úr The Lone
Ranger leka út á Twitter á
fimmtudag en gefur að líta þá
Armie Hammer í hlutverki
byssumannsins grímuklædda
og Johnny Depp í hlutverki
hins trygga vinar hans Tonto.
Gore Verbinski (The Pirates
of the Carribean) leikstýrir
myndinni en tökur hófust í
síðasta mánuði eftir enda-
lausar frestanir vegna fjár-
mögnunar.
Áætlað er að frumsýna
myndina í maí á næsta ári.
Johnny Depp er vígalegur í hlutverki indíánans Tonto