Fréttablað SÍB - 01.09.1969, Qupperneq 12
10 -
Alyktanir og tillögur
STARFSHÖPS II.
I. Um haust- og vetrarstarf samtakanna,
Sambandsstjórnin geri stórátak til að kynna störf sín, verkefni
og vandamál. Hán gangist fyrir fundum í starfsmannafélögum, þar sem
mæti a.m.k. einn sambandsstjórnarmaður, er skýri frá verkefnum
sambands st jórnar.
Við höfum komizt að þeirri niðurstöðu, að við vitum harla lítið
um störf sambandsstjórnar. Við vitum, að sífellt er sambandsstjórn
að vinna að málefnum okkar, og öðru hverju sjáum við árangur þeirrar
vinnu. Að sjálfsögðu er gerð grein fyrir þessu á sambandsþingi og eitthvað
birtist í Bankablaðinu. Þeir okkar, sem ekki hafa setið sambandsþing,
eru mjög fáfróðir um þessi mál. Við vitum ekki til, að haldin séu leiðar-
þing í starfsmannafélögum, þar sem skýrt sé frá þingmálum, en svo
þyrfti að vera. Sem fyrr er sagt; hinn almenni bankamaður veit harla
lítið um viðhorf, erfiðleika og alla þá vinnu, sem sambandsstjórn leggur
fram. Einhverja hugmynd um þetta viljum við fá fram á fræðslufundum
ásamt verkefnum líðandi stundar. Fræðslu- og skemmtifundir þeir, sem
sambandsstjórn gekkst fyrir á sl. vetri, er nýjung og teljum við það
heppilegt fundaform til þessarar fræðslu. Við teljum það og heppilegt
að blanda saman starfsfólki bankanna til kynningar. Við bendum á sögu-
sýninguna sem mjög gott fræðsluefni um unna áfanga og sögu samtakanna.
Allstór þáttur x starfsemi Sambandsins er norræn samvinna. Við
leggjum a® þeir, sem af okkar hálfu taka þátt í henni nú í sumar eða
haust, geri okkur grein fyrir því, sem þar er efst á baugi, segi fréttir
af fundum og geri grein fyrir því, sem þeir á hinum Norðurlöndunum eru
að berjast fyrir núna. Við vitum, að þeir eru komnir mjög langt á undan
okkur á flestum sviðum, og það væri einnig mjög fróðlegt að kynnast því
helzta, sem þeir hafa þegar náð, en við sjáum í hillingum. Við álítum,
að það verði samtökum okkar mjög til góðs, að hinn almenni bankamaður
fái samanburð í þessum efnum og geri sér ljóst, hvað hægt er að gera
hér eins og annars staðar. Við bendum á erindi gesta okkar í upphafi
þessarar ráðstefnu sem mjög til fyrirmyndar um slík fræðsluerindi.