Fréttablað SÍB

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttablað SÍB - 01.09.1969, Qupperneq 14

Fréttablað SÍB - 01.09.1969, Qupperneq 14
12 - II. HvaSa krðfur gerum við sem atarfafólk til bankanna (aS launa- krðfum undanskildum) og hvaSa krðíur teljiS þiS eSlilegt, aS bankarnir geri til atarfsfólka síns ? ViS viljum fá aS kynnast bankanum, þ.e. fá aS læra af eigin raun sem flest dagleg störf í bankanum og kynnast sem flestum deildum og yfirmönnum þeirra. Kynnast viShorfum úr hverri deild til annarra deilda bankans og þá ekki sízt viShorfum úr hverri deild til viSskiptamanna. ViS viljum fá aS sjá og heyra bankastjórana einstaka sinnum og þá aSra af yfirmönnum bankans, sem óbreyttir starfsmenn hafa ekki sam- neyti viS í daglegum störfum, þ.e. þeir haldi fundi meS fólkinu, segi frá rekstri bankans, skoSunum sínum og stefnumálum gagnvart bankanum, starfsfólkinu og viSskiptamönnum. Þá segi þeir frá ýmsum daglegum vandamálum, sem upp hafa komiS, hvernig þau hafi veriS leyst, og svo þeim vandamálum, sem á döfinni eru, og viShorfum á þeim. ViS bendum á, aS starfsfólk getur tæpast boriS virSingu fyrir bankastjórum og yfir- mönnum, sem þaS veit tæpast hvaS heita, hvernig líta út sem sagt veit varla aS eru til, hvaS þá aS þaS hafi hugmynd um störf þeirra og mark- miS eSa vandamál. ViS viljum fá glaSLegt viSmót yfirmanna í daglegri umgengni. t>aS kostar þá litiS, en veitir starfsfólkinu mikiS. ViS viljum fá notarlegt umhverfi á vinnustaS. Flestri reyna aS hafa afgreiSslur skemmtilegar, og mjög víSa er aSbúnaSur til fyrirmynd- ar. Margar deildir koma ekki fyrir augu almennings. Þaer vilja dragast aftur úr og eru forsmáSar á ýmsan hátt í aSbúnaSi. Þar eru gömul og léleg húsgögn, ómálaS eSa gamalt og rifiS veggfóSur, lélegur dúkur á gólfi o.s. frv. , nánast ruslakistur. Þetta eru verstu dæmin, en svo eru til dæmi um allt upp til þess bezta. ViS viljum fá vinnupláss fyrir hvern mann, þannig aS hann sé ekki meS verkefni sín og sjálfan sig ofan í næsta manni. ViS erum skyldug til aS vinna umfram vinnutíma, ef þörf krefur. Oft þarf aS gera þaS. ViS viljum, aS slíku sé ekki misbeitt, aS fólki sé gert eins létt fyrir og mögulegt er í slikum tilfellum, því margir hafa skipulagt frítíma sinn fyrirfram og yfirvinna kemur »ár oft illa, sé henni fyrirvaralaust skellt á.

x

Fréttablað SÍB

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablað SÍB
https://timarit.is/publication/981

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.