Læknablaðið - 01.09.1915, Side 18
44
' LÆICNABLAÐIÖ
Fréttir.
Reykjavíkurlæknishérað. Júlímán. Varicellæ i, Febris typhoidea 2, An-
gina tonsillaris 28, Tracheobronchitis 35, Bronchopneumonia & Bronchitis
capill. 9, Influenza 2, Pneumonia crouposa 1, Cholerine &Catarrh. intest.
acutus 37, Dysenteria 1, Eryth. nod. 2, Gonorrhoea 5, Syphilis aquisit. c.
coitu imp. 1, Tuberculos. pulmon & laryngis 4, Tubercul. aliis locis 4,
Echinococcus 1, Scabies 5,
Ágústmán. Vari.cellæ 4, Febris rheumatica 1, Scarlatina 4, Erysipelas 3,
Angina tonsillaris 32, Tracheobronchitis 45, Bronchopneumonia & Bron-
chitis capill 8, Pneumonia crouposa 2, Cholerine & Catarrh. intest. acutus
24, Eryth. nod. 1, Gonorrhoea 9, Ulcus venereum 1, Tuberculos. pulmon
& laryngis 5, Echinococcus 3, Scabies 12, Cancer 3, Alcoholismus chron 2,
Borgarfjarðarhérað. 1. septbr. Heilsufar hefir verið ágætt í júlí og
ágúst. ígerðir, sem annars hafa verið hér svo tíðar á sumrin, eru nú
með langminsta móti. Þakka eg það helzt því, hvað fólk er alment farið
að hreinsa sár sín með joðáburði.
Dalahérað. 31. ág. í júlí og ágúst hefir heilsufar verið fremur gott
yfirleitt. Lungnabólga hefir komið fyrir í 2 kvenmönnum. Skarlatssótt
kom upp á 3 bæjum, 4 sjúklingar, í Hvannnssveit, í Laxárdal og Miðdölum.
ísafjarðarhérað. 19. septbr. Heilsufar gott. Skarlatssótt og cholerine
stinga sér niður á stöku stað í Bolungarvík.
Blönduósshérað. 19. sept. Heilsufar ágætt, engar farsóttir, eitt hettu-
sóttartilfelli liefir héraðslæknir rekist á á Blönduósi, þó veikin virðist fyrir
löngu um garö gengin.
Siglufjarðarhérað. 20. sept. Ágætt heilsufar. í sumar borið enn meir
en áður á gónorrhoea, enda óvanalega margt af aðkomufólki, bæði útlendu
og innlendu.
Húsavíkurhérað. 21. sept. Almenn heilbrigði, engar farsóttir.
Fáskrúðsfjarðarhérað. 13. ág. Heilsufar nú sem stendur gott, en hefir
annars verið allkvillasamt, einkum mánuðina apríl—júlí. Mestan usla hefir
lungnabólgan gert hér, drepið 6 manneskjur, þar af var einn karlmaður
innan 30 ára, hitt eldra fólk, frá 55—80 ára.
Berufjarðarhérað. í ágúst engar farsóttir.
Vestmannaeyjahérað. 1. sept. Influenza geysar hér. Á nokkrum ungling-
um hefir borið á Erythema multiforme; hafa sumir fengið stórar blöðrur
á handarbök og framhandleggi og hitaveiki í 1—2 daga.
Docentsembættið. í síðasta blaði var þess getiö að neðri deild alþingis
hefði ekki viljað stofna docentsembætti það, er læknadeildin hafði æskt
eftir. Efri deild tók málið upp að nýju, og skaut inn í fjárlögin fjárveit-
ingarheimild i þvi skyni, og gekk það frarn óátalið af neðri deild. Senni-
lega hafa neðrideildarmenn kynt sér málið betur í millibilinu og því verið
því hlyntir í síðara skiftiö.
Um Miðfjarðarhérað sækja Ólafur Gunnarsson í Reykjavík og Björn
Jósefsson á Kópaskeri. Ólafur er settur í héraðið frá 1. næsta mánaðar.
Prentsmiðjan Rún. — Reykjavík.