Læknablaðið - 01.06.1920, Qupperneq 17
LÆKNABLAÐIÐ
95
Prófessor Gancher í París segir, aö appendicitis orsakist af
s y f i 1 i s, og mælir þess vegna meö þvi, aö nota kvikasilfur viö appendi-
citis acuta. Nefnir hann þessu til sönnunar, að spiroch. pall. hafi fundist
í appendix og að af 8 syfilit. systkinum hafi 5 fengið appendicitis. — Ekki
munu nú samt margir trúaðir á þetta, að minsta kosti þarf fleiri sannanir.
í Höfn hafa Boas og Wissing gert blóðrannsóknir á appendicitissjúkl.
Telja ])eir að þær rannsóknir mæli eindregið á móti skoðun Ganchers,
Hvað kostar serum antidipthericum? í Svíþjóð kosta 1500 I. E. (minstu
glösin) 2 kr. 80 aur., 4500 I. E. 7 kr. Ef mikið er gefið af serum getur
skamtur fyrir 1 sjúkl. skift tugum lcróna. Þetta er hið rétta verð lyfsins.
Vér höfum fengið það ókeypis frá Danmörku eins og fleira, hve lengi
sem það stendur, en höfum vér matið það svo sem vert er?
Læknaíundurinn
sem boðað var til 28. júní, ferst því miður fyrir í þetta sinn, vegna þess
hve fáir geta sótt hann. Valda því illar samgöngur og aðrir erfiðleikar.
Fundinum er þvi aflýst.
Stjórn Læknafél. ísl.
F r é 11 i r.
Læknapróf i júni 1920. — Siðari hluta tóku nú 4 stúdentar. Verk-
efni í skrifl. prófinu voru þessi: Handlæknisfræði: Hvað er
skilið við sjálfheldu hauls? Hvernig lýsir hún sér? Hverjar eru afleið-
ingar hennar og hver er meðferðin? — Lyflæknisfræði: Hverj-
ar eru orsakir hjartabilunar (insuff. cordis) ? Hver eru einkenni henn-
ar? Hvernig er meðferðin? — Réttarlæknisfræði: Lýsið breyt-
ingum þeim, sem verða á líki. Hvaða leiðbeiningar gefa þær réttarlækni
og hverjum örðugleikum valda þær?
Fyrri hluta prófs luku 6 stúdentar: Guðm. Guðmundsson (30
st.), Jónas Sveinsson (12%), Páll Sigurðsson (29), Skúli Guðjónsson (43),
Steingr. Einarsson (44), Valtýr Albertsson (45). Efnafræði ekki talin
með í stigatölunum.
Síðari hluta tóku: Helgi Guðmundsson II. eink. (lO^Jý), Kjartan
Ólafsson I. eink. (167), Kristmundur Guðjónsson II. eink. (126), og Páll
G. Kolka I. eink. (192)^ st.).
Efnafræðispróf tóku Ari Jónsson, Hannes Guðmundsson og Karl Jóns-
son.
............................... Lbl. er komið í 1000 kr. skuld!
Radiunt heitir nýútkominn ritlingur eftir Vald. Steffensen læknir á Ak-
ureyri. Eru radiumlækningar lofaðar mjög, ef til vill heldur tekið djúpt
árinni í.
............................... 50—60 kaupendur skulda fyrir 1920.
Um lyfjakistil sjómanna ritar Stgr. Matth. í Ægi. Bendir á margt nauð-
synlegt sem þar vantar. Kistillinn er satt að segja hneyksli og þyrfti enn
meiri breytinga.
Tak handskrift þína og skrifa strax ávísun !