Læknablaðið - 01.06.1923, Page 14
92
LÆKNABLAÐIÐ
'J'illaga J. Kr. var einnig samþykt í einu liljóði.
Borin upp tillaga frá G. Cl. um aö á eftir oröinu „sjúkdóms“ í áskor-
uninni til landlæknis, konii oröin: „eöa í livaöa skyni“, og var hún samþ.
í einu hlóði.
Tillaga borin upp frá nefndinni þess efnis, aö í stað orðanna „sams-
konar“ í síðustu málsgr. áskorunarinnar komi: „svipuðu“. Samþykt.
Áskorunin var þá borin upp i heild sinni meö áorönum l^reytingum og
var hún samþykt.
Frumv. alt var síðan boriö upp og samþ. í einu hljóöi.
III. Matth. E. bar loks upp svoliljóðandi tillögu: „Læknafél. Rvíkur
skorar á stjórn Læknafél. íslands að birta í Lbl. árlega félagaskrá L. í.“
Var till. samþykt í einu hljóði.
Aukafundur var haldinn í Læknafélagi Revkjavíkur föstudaginn 18.
mai á venjulegum stað kl. 8j/J síðd.
Maggi Magnús flutti erindi um „Læknaskýrslur og embættaveitingar.“
Taldi hann núverandi skýrslugerö óábyggilega og alt fyrirkomulagið ófull-
nægjandi og gefa óglögga hugmynd um heilbrigðisástandið í landinu.
Skýrslugerðarblöðin væru orðin svo mörg og alt kerfið svo margljrotiö.
Þar sem auk ]æss sum eyðulDlöð væru aldrei útfylt og jafnvel ekki mögu-
legt að útfylla og ársskýrslur lækna mjög misjafnar, þá væri mjög mikil
nauðsyn á því, að gera alla skýrslugerð einfaldari, en fá í liana um leiö
meira samræmi og auka hana jafnvel i sumum atriöum. Hann vildi ger-
breyta fyrirkomulaginu þannig, að aðalskýrslur væru að eins tvær: mán-
aðaskýrsla og ársskýrsla. Mánaðaskýrslu vildi hann breyta þannig,
að i I. ltafla um acuta infektionssjúkd. væri typli. exantliemat. feldur
niður, en paratyph. tekinn upp, og croup feldur niður sem sérstakur lið-
ur. í öðrum kafla væru þessir sjúkd.: erythem. nodos., lup. erythemat.,
lup. vulgar., plevritis, scrophulosis, tul). pulm. og tub. al. loc. — Lepra,
kynsjúkd., alcohol. chron., scabies, echinococcus ætti að lialda sér, eins
og er, en við bætast actinomycosis og mycosis. Malignum tumorum vildi
liann skifta þannig: Cancer lab., c. mammae, c. uteri, ulc. rod. og sarcoma.
Auk þess lagði liann til, að aldursflokknum 15—65 væri skift í tvent:
15—25 og 25—65. Einnig að skiftingin i k. og kv. næði til allra aldurs-
flokka. — Þessar skýrslur skvldi fella niöur: A, C—C3, Di og D2, Fi
og F2 og G. Aðrar skyldi taka upp í aðalskýrslu lækna, en ekki hafa þær
í sérstökum eyðublöðum. Aðalskýrslan, ársskýrslan, skyldi vera í þess-
um liðuni: 1. Alment yfirlit vfir heilbrigði í liéraðinu, gang farsótta o. fl.
2. Læknar, skottulæl<nar, yfirsetukonur, lyfjabúðir í héraðinu. 3. Hvað
margir sjúkl. liafi vitjað læknis á árinu; livaö oft sóttur; helstu sjúkd.
seni fyrir liafa komið o. s. frv. 4. Dánarskýrsla. 5. Holdsveiki. 6. Sulla-
veiki og hundahreinsanir. 7. Berklaveiki. 8. Krabbamein. 9. Geðveiki.
10. Sjúkraskýli (rekstur, breytingar, skýrsla o. fl.). 11. Sjúkrasamlög.
12. Um fasta skóla og farskóla, skólaskoðun, kvilla í börnum. 13. Sótt-
varnar- og heilbrigðisnefndir. 14. Skoðunargerðir eftir kröfu lögreglu-
stjóra. 15. Meðferð á ungbörnum. 16. Húsakynni, neysluvatn, salerni, frá-
ræsla, gluggar, loftræsting 0. fl. 17. Þrifnaður (lús, böð, sundkensla).