Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.1923, Síða 16

Læknablaðið - 01.11.1923, Síða 16
LÆKNABLAÐIÐ Opið bróf til héraðslækna um erlendar farsóttir. Öllum héraöslæknum er aö sjálfsögöu kunnugt um lög nr. 34, 6 nóv. 1902, um varnir gegn því, aö næmir sjúkdómar berist til íslands. Þessi !ög voru sett áður en ísland komst í simasamband við umheiminn. Öllum læknum er ljóst hvilik þörf er á þvi, aö viö fáum sem fyrst vitneskju um erlendar farsóttir. En þa'ð er ekki svo auðvelt sem ætla mætti. Eng- lendingar eru allra þjóðá best að sér, i þeim sökum, hér í álfu, gefa út vikulega skrá yfir allar „smitaðar hafnir“ víðsvegar urn héini. íslenska heilbrigðisstjórnin hefir tvívegis farið þess á leit, aö fá þessar ensku farsóttaskrár jafnóðum og þær koma út, en í bæði skiftin fengið ]>að svar, að þær séu einkamál, sem engir fái að sjá aðrir en sóttvarnarmenn breska ríkisins, og er það vitanlega gert til þess, að vekja ekki óþarfa ótta meðal almennings. í Danmörku er nú mánaðarlega gefin út skrá yfir erlendar smitaðar hafnir, og höfum viö ekki að svo stöddu annað betra við að styðjast. Þess vegna hefir nú verið ákveðið að haga sér framvegis hér á landi i þeirn efnum á þann hátt er segir í bréfi dómsmálaráðuneytisins, sem hér fer á eftir, og eru allk sóttvarnalæknar landsins beðnir að veita þessu málefni nána athygli. Landlæknirinn. Reykjavík, 10. nóv. 1923. G. Björnson. Bréf dómsmálaráöuneytisins hljóðar svo (dags. 31. okt. 1923) : Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefir 16. þ. m. skrifað íslensku sendi- lierrasveitinni í Kaupmannahöfn sem hér segir: „Með því að i ráði er, á líkan hátt og gert er í Danmörku, að gefa út hér á landi, mánaðarlega eða svo, skrá um sýktar hafnir af farsóttum, þá er þess beiðst að sendiherrasveitin sendi þessu ráðuneyti í umslagi sér og einnig landlækni sérstaklega, dönsku auglýsinguna um sýktar hafnir strax eftir að húrí kernur út í hvert sinn. Auk þess er sendiherrasveitin beðin að láta, eins og áður, vita með simskeyti ef farsótt gengur í höfn- um, sem skip koma frá til íslands, eða ef sérstök hætta er á ferðum. Það er lögð áhersla á, að aldrei farist fyrir að gæta fyrirmæla bréfs ]>essa með fylstu nákvæmni, til þess að sóttvarnamálin geti jafnan .verið í sem bestu lagi. Sendiherrasveitin er beðin að láta ráöuneytið sem fyrst vita hve oft auglýsingin kernur út i Danmörku." Jafnframt þvi að tilkynna yður ]>etta, herra landlæknir. béiöist ráðu- neytið þess, samkvæmt umtali, að ])ér eftir ]>ví sem skýrslurnar um sóttir i erlendum höfnum l>erast vður, sendið hingað mánaðarlega uppkast að auglýsingu um sýktar hafnir af farsóttum. Auglýsing þar um gefur ráðu- neytið ])á strax út og lætur prenta í Lögbirtingablaðinu, og eruð þér beð- inn að vekja athygli lækna á hinu nýja fyrirkomulagi og brýna fyrir þeim að athuga vel auglýsingarnar í Lögbirtingablaðinu.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.