Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.08.1924, Blaðsíða 9

Læknablaðið - 01.08.1924, Blaðsíða 9
LÆKNABLAÐIÐ i [9 yfirlit og eftirlit seni skyldi. Þó margir séu santverkamennirnir og sum- ir sérlega góöir er örSugra aöstöSu nú en fyr. Vélin er m. ö. o. ekki lengur eins manns eöa tveggja manna mebfæri. Eg heyrði ])að á læknum bæði í N-York og í Kanada, að Mayo-stofn- unin er ekki lengur talin önnur eins fyrirmynd og fyrrum. Þeir kunna sögur um sjúklinga sem þangað hefðu verið sendir,' fengið lélega ])jón- ustu, orðið fyrir vonbrigðum, ekki séð Mayo-bræður o. s. frv. Það cr skiljanlegt að svona reynsla dragi heldur úr trú og trausti hinna prakti- sérandi lækna. En jafnframt er einnig farið að bóla á þvi, að alþýða sé líka farin að tapa trúnni. Orðrómur berst um meðal fólksins, að kirkju- garðurinn í Ro.chester sé farinn að stækka allmikið. Kirurgar og spít- alar hafa óðum Ijatnað svo i öllimr stórbæjum — og jafnvel þeim smærri lika, að bert er orðið flestum skynbærum mönnum, að ástæðulítið sé að gera sér mikið ómak til að fara til Rochestcr. Hinsvegar hafa undan- farin ár hópast þangað ólæknandi krabba-sjúklingar o. f 1., sem ekki var hægt að hjálpa heldur þar. Hefir Jietta einnig dregið úr dálætinu. Þó sérfræðisvisindamenn og aðrir hafi marga góða kosti og séu auð- vitað ómissandi þá má ofmikið af öllu gera. í sérfræðing^-vélinni hverfur t. d. oft sjúklingsins persóna innan um glundroða hans eigin innýfla og sæg af sóttarmörkum. En sérkenni per- sónunnar er opt mikils virði. Það er heldur engin furöa þó praktisérandi læknar, sem lengi hafa orðið að ])ræla í öllu jafnt, og þurft að hafa vit á öllu, fái smámsamian ótrú og andstvgð á sérfræöinga-klikkunum, sem meir og meir taka frá þeim brauðið. A. m. k. i stórbæjum er það nú orðið svo, að practici verða venjulega knúðir af almenningsálitinu — til að senda frá sér flést- alla sjúklinga, til sérfræðinga straks eftir fyrstu viökynningu og sjá ])á sjaldan úr þvi. í einu læknatimariti sá eg nýlega þessu ástandi lýst eitt- livað á þessa leið. Og höfundurinn bætti svo við : ,,Að eins stöku sinn- um fá svo þessir veslings úreltu praktikusar sjúklingana aftur til eftir- meðferðar, eftir aö þeir eru orðnir tannlausir, tungu-kirtlalausir, botn- langalausir, eggjastokkalausir og peningalausir. AS öðru leyti fá þeir ekki annað að sýsla, en að vera vaktir upp á nóttu til að deyfa sængur- konur og dunda við það á daginn, að lækna innantökur í börnum, drífa úr þeim njálg, bólusetja þau og draga úr þeim 1)arnatennurnar. En þess á milli að skrifa upp styrkjandi lyf handa taugaveikluðu kvenfólki, (sem sérfræðingarnir hafa vísað frá sér).“ Mayo-stofnunin er eitt af furðuverkum hins nýja heims. Þessi fræga Bræðraborg varpar ljóma víðsvegar eins og skær leipturviti. Þrátt fyrir framhaldandi, þróttmikinn vöxt á síðustu árum, þykjast sumir sjá hnign- unarmerki. Hvaöa sól er án flekkja? Öllu er aldur skapaður. Vera kann aö dofni ljósið þegar bræðranna nýtur ekki lengur. Spyrjum að leiks- lokum. Tilraunin var góð. Framsókn frækileg. Er meðan er og endist. En orðstýr deyr aldrei ef satt er, aö 1 í f i ð s é ódrep'andi og það er trúarjátning mín (ef maður má leyfa sér — í vísindalegu riti — aö draga fram í dagsljósið nokkuö af því, „sem býr hjarta nær“).

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.