Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.08.1924, Blaðsíða 13

Læknablaðið - 01.08.1924, Blaðsíða 13
LÆKNABLAÐIÐ 123 reynsla, sem hér hefir fengist, enga bendingu, er mark veröi á tekiö, þvi að hér var veikin svo væg í fyrstu, aB læknis var ekki leitað, og var þegar orðin svo útbreidd, er fyrstu alvarlegu tilfellin komu, að ekkert viðlit var að rekja feril hennar. Hennar varð og vart um svo líkt leyti hér og á Akureyri, að ekki verður séð, hvort hún hafi borist þaðan hingað eða héðan þangað, eða hvorugt. Af sömu ástæðum hefir ekki verið talið íært eða líklegt til árangurs, að beita ströngum sóttvörnum, en samgöngu- varúð hefir verið höfð við þau heimili, er sóttin hefir verið illkynjuð á, látið hætta sundkenslu, frestaö tíðagjörðum og mælst til, að veitingar væru ekki hafðar viö jarðarfarir né aðrir fylgdu líkum til grafar en nán- ustu vandamenn og líkmenn. Svo hefir og verið eða verður sótthreinsað á þeini heimilum, sem samgönguvarúðin er við. — Af sjúkl, voru, eins og skráin ber meö sér, dánir 6 i mánaðarlokin, 5 úr Svarfdælahéraði og 1 úr Höfðahverfishéraði. Öllum varð bulbærparalysis að bana. A. m k. 4 hafði „slegið niður", höfðu fengið hitasótt og önnur veikindi, sem lýst er hér að framan, friskast eftir 1 eöa fáa daga og farið á fætur, veikst svo á ný eftir fáa daga' svipað eða eins og fyr, og þá lamanir fljótlega í viðbót, ýmist eingöngu bulbær-lamanir eða auk þess útlima- og bolvöðva- lamanir; á einum þeirra og á 2 sjúkl., sem voru enn lifandi i mánaðar- lokin, byrjuðu lamanirnar að neðan og færðust upp á örfáum dögum, eins og í Landrys paralysis, en á sumum bar fyrsti á bulbær-lömunumi, og á sumum voru þær eingöngu. 2 sjúkl., sem dóu, höfðu algerða facialislöm- un b. m., einn öðru megin og paresis hinu megin, 2 hinna nokkra facialis- paresis b. m., veit ekki um einn (ársgama-lt barn). Einn sjúkl., sem dó, fékk incontinentia urinæ, annar, sem lifði, en var dauðvona í mánaðar- lokin, retentio urinæ. Allir mikla hægðatregðu, sem hægðalyf og stólpíp- ur unnu illa á. Af hinum dánu yar 1 á 2. ári, 1 á 4. ári, 1 á 5. ári, 1 á 6. ári, 1 á 9. ári og ein kona 35 ára. Lifandi með lamanir til muna voru 5 í mánaðarlokin: Kona 21 árs og 13 ára stúlka, báðar rrieð algerða para- plegi í bol- og útlimavöðvum og byrjandi kok-, tungu- og facialis-lömim, er tæpast lifvænt, 17 ára stúlka með lömun allra útlima, en ekki algerða nema í v. handlegg og h. fæti, 8 ára drengur með extensorlamanir í hand- Ieggjum og tungu- og kokvöðva-paresis og 2 ára drengur með „spastiska" lömun í extr. inf. báðum. Á öðrum, sem veikina hafa fengið, hafa ekki verið greinilegar lamanir, en mörg verið magnlítil eftir veikina. Á eng- um, ekki heldur þeim þyngst höldnu, varð vart við teljandi breytingar á tilfinningu í hörundi eða holdi, hvorki óeðlilega viðkvæmni (hyperæstesi) eða sljóleika (hypæstesi). 2. júlí 1924. Sigurjón Jónsson. Úr útl. læknaritum Aids to practical pathology. By F. W. Griffin, assistant pathologist; and W. F. M. Thompson, chief teahnica.1 assistant, London: Bailliére, Tindall and Co. 1923. Pp. 246. 4 s. Talið er, að í þessari tiltölulega litlu bók sjeu samanteknar allar við- urkendar aðferðir sem hafðar eru um hönd á rannsóknarstofum fyrir

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.