Læknablaðið - 01.01.1933, Side 12
6
LÆKNABLAÐIÐ
viss um varanlegan bata þeirra sjúklinga, sem nú eru seronegativir, þá
eru þó líkindi til, að flestir þeirra séu fulllæknaðir, því að recidiv eru
tiltölulega sjaldgæf, ef sjúklingur verður algerlega seronegativur snemma
á 2 stigi.
Mér er auðvitað fjarri skapi að halda, að sá árangur, sem eg hefi náð
hjá sjúklingum mínum sé betri en annarsstaðar tíðkast, enda hefi eg fylgt
alveg sömu aðferðum og gert er um öll Norðurlönd og í Þýskalandi, en
mér er óhætt að fullyrða, að jafngóðum eða svipuðum árangri er alls ekki
unt að ná, án þess að nota salvarsan.
Doktorsprót,
hið fyrsta, sem tekið hefir verið
við iæknadeild Háskóla íslands, tók
Halldór Hansen 28. janúar síðast-
liðinn.
Doktorsritið, Pscudoulcus ventri-
cttli, fjallar um athuganir á 50 sjúk-
lingum með magasár, og 35 sem
ekki fanst magasár hjá, en höfðu
niagasárseinkenni. Thesis höfund-
ar er að færa likur að þvi, að melt-
ingartruflanir, sem mjög likjast
magasárseinkennum, sé afleiðing af
berklasýkingu, sem ekki þarf að
gera vart við sig fyr en löngu
seinna.
Athöfnin, sem fór fram i neðri-
deildarsal Aljjingis undir- stjórn
Guðm. próf. Hannessonar, hófst
með jjví, að præses skýrði frá til-
drögunum til að doktorsrit hans
varð til. Hann byrjaði með að skýra
frá j)ví, hvernig hann við sérfræði-
nám sitt hefði fundið sárt til þess,
hve lítið menn vissu um hinar eigin-
legu orsakir meltingarkvillanna og að beita varð þvi lækningunni
mestmegnis gegn einkennum í stað orsaka. Hann kvaðst hafa tekið það
ráð, er heim kom, að ná sem nákvæmustum sjúkrasögum af öllum sjúkling-
um með langvarandi veikindi er hans leituðu, og við obj. skoðunina að leita
liklega sem óliklega.
Komst hann þá að raun um: 1) að almennu einkennin voru oft merki-
lega lik hjá þeim magahraustu og jíeim magaveiku, og 2) að meltingartrufl-
anirnar voru oft áberandi líkar, þótt sumir væru t. d. blóðlitlir, aðrir blóð-
rikir, sumir ,,taugaveiklaðir“, aðrir rólyndir, sumir tannlausir, aðrir vel tent-
ir, sumir hægðalausir, aðrir með bestu hægðir, sumir með magann niðri i
grind, aðrir með stuttan maga o. s. frv.