Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.01.1933, Page 16

Læknablaðið - 01.01.1933, Page 16
10 LÆKNABLAÐIÐ t r Olafur Jónsson læknir. Hann andaöist úr pneumococcus- meningitis upp úr lungnabólgu a'Ö- faranótt þess 14. jan. kl. 4 árd., 43 ára að aldri. Hafði hann fengið lungnabólgu alloft hin síðari árin, og í þetta sinn hafÖi hann lcgið þungt haldinn um 3 vikna tíma, og virtist vera í afturbata er veikin breyttist snögglega um kl. 2 e. m. daginn fyrir andlátið. Hann hag- ræddi sér þá í rúminu og sagði: „Jæja, þá er sagan öll“, og voru það hans síðustu orð, því að þá tók við algert rænuleysi og greini- leg meningitis-einkenni. Reynd var lumbalpunctur, er staðfesti diagno- sis, en breytti ekki ástandinu. Ólafur heitinn var fæddur 19. nóv. 1889 að Þóroddsstað í Köldu- kinn. Foreldrar hans voru þau Guð- ríður ólafsdóttir frá Mýrarhúsum á Seltjarnarnesi og síra Jón Ara- son prestur á Húsavík (d. 14. mars 1928). Hann tók stúdentspróf vor- ið 1910 með 1. einkunn, sigldi þá og byrjaði nám sitt í læknis- fræði við Kaupmannahafnarháskóla, en lauk því frá Háskólanum hér i febr. 1918, einnig með 1. einkunn. Sigldi hann þá aftur til Danmerkur og fór á fæðingarstofnunina á Ríkisspítalanum, en náði því næst í fasta candidatsstöðu á Amtssjúkrahúsinu í Odense og hélt henni 1 ár. Er heim kom haustið 1919 gerðist hann fastur aðstoðarlæknir Matth. læknis Einarssonar við Landakotsspítalann og var hans önnur hönd uns hann sigldi um sumarið 1930 til Svíþjóðar. Þar gekk hann á Sahlgreus spítalann i Gautaborg fram á haust, og vann er heim kom alfarið upp á eigin spýtur úr því. Auk aðstoðarlæknisstarfans hjá M. E., aðstoðaði Ólafur heitinn nær alla aðra lækna við skurði á Landakotsspítalanum, enda var hann mjög eftir- sóttur af læknum, því að hann þótti brátt frábær í þeirri list, svo að á orði var haft, að hann ætti varla sinn líka, innan lands eða utan. Sjálfur fékst Ólafur heitinn jafnframt nokkuð við skurðlækningar, og sýndi hann, að hann var ekki að eins ,,ideel“ aðstoðarlæknir, heldur hafði flesta góða kosti sjálfstæðs skurðlæknis. Auk skurðlækninganna, er kölluðu hann á öllum tima sólarhrinsins, hafði Ólafur heit. feikna mikla privat praxis í Reykjavík og nágrenni. Slík störf Ólafur Jónsson.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.