Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.1933, Blaðsíða 30

Læknablaðið - 01.01.1933, Blaðsíða 30
24 LÆKNABLAÐIÐ ur úr námunum, blandað kvartsi (sem getur valdið silicosis), en hreint kryólít er fluor-aluminium-natrium, sem mikið er í af fluor (ca. 54%). Dýratilraunir hafa sýnt, að kryolít er eitrað, að það dregur úr matarlyst, og höfundarnir halda, að magaeinkennin hjá verkamönnunum stafi af kryólít- ryki, sem þeir gleypi ofan í sig, og þá myndist fluorvatnsefni i maganum. Ennfremur safnist FCa i beining og blóðmyndun geti truflast af því. N. D. Dæmi Spánar. Undanfarin ár hafa um iooo læknakandidatar útskrifast árlega á Spáni en um 200 læknar deyja á ári hverju. Afleiðingin er orðin sú, að nálega 10.000 læknar standa þar atvinnulausir, en hins vegar er fult af skottulækn- um. Nú stendur til að halda læknafund til þess að ræða þessi vandræði, en óvíst að hvaða gagni kemur. G. H. F r é 11 i r. 8. norrænn berklalæknafundur verður haldinn í Stokkhólmi 9. og 10. júní þ. á. Aðalumræðuefni: Lungna-atelectasis og lungnaberklar. Máls- hefjandi: Próf. Jacobæus. Tilkynning um þátttöku og um fyrirlestra, send- ist til ritara fundarins, dr. Gustaf Neander, Sturegatan 16, Stokkhólmi, fyr- ir 15. maí. Forseti fundarins er próf. Jacobæus. Fundurinn er opinn öllum íslenskum, dönskum, norskum, finskum og sænskum læknum. Inngangseyrir er 15 krónur (sænskar) fyrir félaga í hinu norræna berklalæknafélagi, en fyrir aðra lækna væntanlega 25 kr. Nánari upplýsingar hjá próf. Sig. Magnússyni. 7. þing norrænna háls- og eyrnalækna verður háð í Osló 30. júní og I. júlí 1933. Umræðuefni: Allergiskir sjúkdómar. Málshef jandi: Dr. med. J. Krag, Khöfn, og Dr. med. A. de Besche, Osló (sem gestur). Þátttöku ber að tilkynna ritara félagsins, Dr. W. Harboe, Kr. Augustgt. 14111, Osló. Nánari upplýsingar hjá Gunnlaugi Einarssyni. Sigurður Sigurðsson, læknir, sem hefir dvalið í Danmörku siðan hann tók próf hér fyrir nokkurum árum, hefir nýlega lokið dönsku læknaprófi, með I. einkunn, og þannig öðlast jus practicandi i Danmörku. Þar fyrir mun S. S. samt engan veginn ráðinn í því, að setjast að þar í landi. Ilann hefir nýlega fengið styrk frá Þýskalandi til áframhaldandi náms í lyflæknisfræði, og dvelur nú við Charité-spítalann í Berlín. Embættisprófi í læknisfræði hafa nýlega lokið Jóhanna Guðmundsdóttir (I. eink., 167% st.) og Pétur Jakobsson (I. eink., 1 77)/$ st.). Nýir félagar L.I.: Jóhanna Guðmundsdóttir og Pétur H. J. Jakobsson. Um ólafsfjarðarhérað sækja: Bjarni Guðmundsson, héraðslæknir á Brekku, og kandidatarnir Árni Guðmundsson, Ásbjörn Stefánsson og Sæ- björn Magnússon. Innheimtu og afgreiðslu Lbl. annast Rannsóknastofa Háskólans, Rvik. Félagsprentsmiðj an.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.