Læknablaðið - 01.08.1933, Blaðsíða 49
LÆKNABLAÐIÐ
127
Fr éttir.
Lækningaleyfi hefir veriö tekiS af Ásbirni Stefánssyni 12. september.
Matthías Einarsson fór utan um mánaSamótin ágúst—sept. til Þýska-
lands.
Spítalabyggingar. Nýjan spítala er verið aS reisa í Stykkishólmi af
Sct. Franciscus-reglunni. Sct. Josephs-regla er einnig aS koma upp
myndarlegri viðbótarbyggingu við Landakotsspítala í Rvík. — Spítali
Hvítabandsins í Rvik er að verða fullgerður og gert ráð fyrir að hann
taki til starfa um miSjan okt.
Fáskrúðsfjarðarhéraði hefir veriS veitt GuSm. GuSfinnssyni frá 1. okt.
Kandidatastöður. Fyrir milligöngu kandidatanefndar Læknafél. ís-
lands hafa þessir læknakandidatar fengiS spítalapláss í Danmörku:
Högni Björnsson, Jón Geirsson og Kristján Grímsson. Kandidat í land-
spítalanum frá 1. okt. er Arngr. Bjömsson.
Aðstoðarlæknisstöðurnar á Landspitalanum eru auglýstar lausar frá
áramótum, allar þrjár; sbr. augl. í blaSinu.
Próf. Guðm. Hannesson er nýkominn úr heimboSi því sem nefnd
danskra lækna stóS fyrir. Var honum haldiS samsæti af dönskum stéttar-
bræSrum á afmælisdag hans í Khöfn og mikill sómi sýndur af hálfu
lækna og heilbrigSisvalda. Hann hélt m. a. fyrirlestur í Khöfn um skipu-
lag bæja.
Skólalæknarnir í Rvík, Ólafur Helgason og Óskar ÞórSarson, hafa
veriS ráSnir til aS gegna stöSum sínum áfram í vetur til bráSabirgSar,
en í ráSi er aS breyta um fyrirkomulag á skólalæknisstarfseminni í Rvík
aS afliSnu þessu skólaári.
Eyþór Gunnarsson er nýkominn heim eftir ársdvöl í Danmörku, aSal-
lega á Bispebjerg Hospital.
Kristni Stefánssyni hefir veriS veittur styrkur sá, sem síSasta Alþingi
ákvaS aS verja til lyfjafræSináms, kr. 2000 á ári í 3 ár, gegn jafnmiklu
tillagi úr sáttmálasjóSi.
Páll Kolka sótti í sumar, í Belgíu, alþjóSafund spitalalækna og dvaldi
síSan um þriggja vikna tíma í London.
D. V. Fjeldsted er nýfarinn utan og mun dvelja nokkra mánuði á kirurg-
iskri deild í Aalborg.
Leiðrétting. Sú meinloka hefir komist inn í íundargerð frá aðalfundi
(var leiðrétt þar) í síðasta blaði, að lögin um varnir gegn því að næmir sjúkd.
berist til landsins hafi ekki verið samþykt. Eins og kunnugt er voru þau
samþykt, en koma ekki til framkvæmda fyr en 1. júlí 1934. G. H.
Innheimtu og afgreiðslu Lbl. annast Rannsóknastofa Háskólans, Rvík.
FélagsprentsmiÖjan.