Læknablaðið - 01.06.1942, Blaðsíða 20
3ö
LÆKNÁ B LÁÐ 1Ð
aukinna menningarlegra framfara
í þjófSfélaginu i heild.
ASeins eitt félag, sem á að telj-
ast fyrir alla íslenzka lækna,
Læknafélag Islands, hefir veriö
starfandi hér á landi, og það er
eina félagið, sem héraöslæknar
geta verið meðlimir í. Fundi þessa
íélags hat'a héraöslæknar utan af
landi, af eðlilegum ástæðum, enga
aðstöðu til að sækja, að neinu ráði.
Læknáfélag Islands getur því alls
ekki fullnægt þeim kröfum, sem
gerðar eru til þess sem félags allra
íslenzkra lækna, og því síður sem
félags héraðslækna. Hinsvegar
hafa starfandi læknar í Reykjavík
með sér sérfélag, Læknafélag
Reykjavíkur.
Það er því sönnu nær, að íslenzk-
ir héraðslæknar hafa ekkert starf-
hæft félag. 'l'il þess að leysa þessi
íélagsmálavandræði héraðslækna
virðist ekki nema ein leið fær, sú,
að læknar i hinum ýmsu lands-
hlutum stofni með sér sérfélög,
sem ná yfir takmörkuð svæði með
góðum samgöngumöguleikum inn-
hyrðis.
Læknafélag Vestfjarða hefir nú
starfað i 2 ár og haldið 3 fundi á
3 stöðum, ísafirði, Flateyri og
Þingeyri. Á hverjum fundi hafa
mætt 8 héraðslæknar. Á fundunum
hafa verið rædd ýms áhugamál
læknastéttarinnár, ]>æði fræðslu-
mál og hagsmunamál og flutt
mörg erindi um ýms heilbrigðis-
mál.
Ýms af áhugamálum héraðs-
lækna, sem rædd hafa verið á
fttndum félagsins, eru nú komin til
frantkvæmda, svo sem ltigin um
aðstoðarhéraðslæknisembættið og
dýrtíðaruppbót á aukatekjur hér-
aðslækna. Þó hefðu þessi mál ef-
laust verið leyst fyr, ef allur þorri
islenzkra héraðslækna hefði haít
fiðstöðu til að ræða málin og fylgja
þar að lútandi samþykktum eftir
við stjórnarvöldin i landinu.
Það er eftirtektarvert, að starf-
andi læknar í Reykjavík fengu
mjög fljótt taxtahækkun i sant-
ræmi við dýrtíðarvísitölu.
Ekkert virðist sjálfsagðara en
að héraðslæknar hafi með sér sér-
félög eins og starfandi læknar i
Reykjavík hafa nú.
Þegar félög héraðslækna hafa
verið stofnuð víðsvegar unt land-
ið og þannig tryggt, að allur þorri
héraðslækna fái tækifæri til að
ræða þau áhugamál stéttarinnar,
sem efst eru á haugi, ]>á fyrst er
líklegt, að sá áhugi vakni og þau
skilyrði skapizt, sem geta gert
fundi Læknafélags íslands að
fundum allra íslenzkra lækna, enda
verði hinum ýmsu félögum þá
heimilt að senda fulltrúa sína á
íundina með umboð félagsmanni
sinna til atkvæðagreiðslu.
Þá verða og fundir Læknafélags
íslands að haldast síðla sumars og
fundarefni að l>erast héraðslækn-
um að minnsta kosti 3 mán. fyrir
fundina til þess að hægt verði að
ræða málin áður i félögunum út
um land. Hitt er og líklegt, að ný
mál komi upp á fundinum út um
land og verður það til að gera
fundi L. F. í. ennþá fjölbreyttari.
Það er og mjög þýðingarmikið
að mátulega fámenn félög- kynna
félagsmenn miklu Iretur en stór fé-
Iög geta gert og er þess sizt van-
þörf í fámenninu, þar sem héraðs-
læknarnir vegna sérstöðu fagsins
eru einangraðasta stétt landsins.
Vegna náinnar samvinnu sjúkra-
húslækna út um land og héraðs-
lækna við ýms heilsuverndarstörf
og svipaðrar aðstöðu, þar sem báð-
ir eru launþegar með likum skyld-
um, töldu fundarmenn rétt, að
spítalalæknar á áðurnefndum