Læknablaðið - 01.07.1943, Blaðsíða 19
LÆKNABLAÐIÐ
9
mörg dauösföll beinlínis af notkun
þess hlotizt, en þess séu vart dæmi
um digitalis, þó að þaö hafi veriö
miklu almennar og ógætilegar
notaö.
Mér er fyllilega ljóst, aö margt
er hér ósagt um þetta efni, þó eg
hljóti nú aö láta staöar numiö, en
bæöi er það, aö eg er ekki fær um
aö rita tæmandi um efnið, sem og
hitt, aö meðferð meö þessu lyfi,
sem öörum áhrifamiklum lyfjum,
veröur ekki lýst til hlítar, heldur
verður reynsla hvers einstaks lækn-
is að fylla þar í eyðurnar.
Tilgangur minn meö ágripi
þessu var aðallega sá, aö hvetja
menn til umhugsunar um lyf, sem
hver og einn læknir notar næstum
því daglega, en því miður oftlega
hugsunarlítið og á þann hátt og í
þessháttar skömmtum, að engum
veröur gagn af nema lyfsölunum.
Helztu heimildir:
Beaumont: Medicine 1939.
Beckman: Treatment in general
Practice 1938.
East & Bain: Recent Advances in
Cardiology 1937.
Lewis, Thomas: Diseases of the
Heart 1938.
Meakins, J. C.: Annals of int.
medic. II, 1942.
Poulson, L.: Pharmacologie.
Scherf, D.: Klinik u. Therapie d.
Herzkrankh. 1936.
Sokolow et al.: Annals int. medic.
III, 1942.
White, Paul D.: Heart disease
1937-
Warburg, S.: Nord. Med. Tidsskr.
1929. B. I. S. 8.
Valtýr Albertsson : Læknabl. 1941,
5-
Varbiainen, A.: Medecine, 1933,
Bd. 49, 12.
Jagie og Zimmermann: Cit. Nord.
Med. Tidsskr. 1934. Wien. Klin.
wschr. ’34. B. 47, No. 1.
Marvin: The Therapeutics of int.
Diseasgs, Vol. III.
Ritdómar
um „Röntgendiagnostik.“
Hér fara á eftir þrír erlendir rit-
dómar um bók Dr. med. Gunnl.
Claessen, ,,Röntgendiagnöstik“,
sem kom út áriö 1940.
Vegna hertöku Norðurlanda hafa
þessir ritdómar borizt seint hingað
til landsins, einn þeirra ekki fyrr
en á þessu ári. Eigi að síður má
þaö vera íslenzkum læknum gleði-
efni að sjá, hve lofsamlega dóma
bókin hefir fengið erlendis, hjá
sérfróðum mönnum í röntgenologi.
„Röntgendiagnostik“ Claessen’s
hefir nú verið upp tekin sem
kennslubók viö læknadeildir
danskra og sænskra háskóla.
Vegna stríðsins hefir bókin ver-
ið ófáanleg hér á landi, eftir að
fyrsta sendingin gekk upp, en nú
kvað vera von á nokkrum eintök-
um handa stúdentum, fyrir milli-
göngu utanríkisráðuneytisins.
Ritstj.
„Nordisk Medicin“ og
„Med. Föreningens Tidsskrift“:
G. Claessen: Röntgendiagnostik.
Ejnar Munksgaard, Köpenhamn
1940.
Senare ár ha givit oss allt fler
medicinska lároböcker pá nordiska
•sprák. I dessa dagar ha vi sárskild