Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.09.1943, Síða 14

Læknablaðið - 01.09.1943, Síða 14
40 LÆ K NA B LAÐIÐ og oft er meira aö segja unt veru- iega leucopenia aö ræöa. Different- ialtalning hvítra blóökorna er oft- ast eölileg, en stundum lymfocy- tosis. Blóðsökk er mikið hækkaö. Við röntgenskoðanir sjást oftast meiri breytingar en Ijúast mætti viö eftir hlustuninni. Eru þetta þykkni í lungnavefnum, sem oft ná yfir allstór svæöi, en sjaldan heil lungnablöö, aö jafnaöi samsafn af smáblettum, og ekki eins þétt og vel takmörkuö og viö aðrar lungna bólgur. Breytingar þessar hverfa oft á nokkrum dögum, en koma þá e. t. v. íram annarsstaðar, t. d. í hinu lunganu, eöa í ööru blaði. Er þaö talið sérkennilegt fyrir þessa tegund lungnabólgu, aö bólgan flytzt þannig til (migrerar). Sam- fara þessu hækkar svo hitinn að nýju. Þegar sjúklingnum fer aö batna heyrist oft miklu meira af votum slímhljóöum yfir lungun- um, en meðan veikin stóð sem hæst. Þótt sjúkdómurinn gangi oftast svo sem hér er lýst, verða þó alltaf nokkrir sjúklinganna miklu harð- ar úti. Eru þeir oft mjög þungt haldnir, áberandi mæönir, með mjög hraðan hjartslátt, og stund- um svo þungt, að mest likist astluna bronchiale (status asthmaticu's). Cyanosis er þá oft mjög mikil. Hjá þessum sjúklingum er venju- lega um aö ræöa bólgu i báðum lúngum, og stendur veikin oft miklu leng-ur en áður er sagt stundúm mánuðum saman, og oft tvísýnt um líf þeirra. Brognosis virðist vera góð. Af þeim rúmlega ioo sjúklingum, sem við höfum séö skýrslur um, hafa aðeins 3 íátið lifið, og höfðu tvéir þeirra rheumatiskan hjartasjúk- dóm fyrir. Annars kemur sjúkdóm- ur þessi oftalst fyrir hjá ungu og að öðru leyti hraustu fólki. Meöferöin er eingöngu symp- tomatisk, og sulfonamid Iyfin ekki einasta gagnslaus, heldur auka þau mjög á vanlíöan sjúklinganna. Á þessu ári gerðist það nýtt í niálinu, aö Peterson, Ham og Fin- land rákust á próf, sem virtust greina atypiska lungnabólgu frá öörum sjúkdómum. Þaö er í stuttu máli þannig, aö serum sjúkling- anna agglutinerar mannablóökorn í talsvert mikilli þynningu, þegar blandan er látin standa i kulda (o° —3°). Engin agglutination verður við stofuhita, né likamshita. Þetta kemur ekki fyrir við aðra sjúk- dóma, svo vitað sé. Af nokkrum hundruðum sjúklinga með atypiska lungnabólgu svöruöu 80—90% já- kvætt á þennan liátt. Ef próf þetta reynist eins vel og útlit er fyrir nú, veröur það i fyrsta lagi til að auðvekla greiningu sjúk- dómsins og gera hana öruggari. Ennfremur eykur það mjög likurn- ar fyrir því, að um sérstakan sjúk- dóm sé aö ræöa. Það virðist ekki sennilegt, aö margar óskyldar lungnabólguir gæfu þessa óvenju- legu reaktion, þar sem vitað er aö aðrar infektionir, þ. á m. venjuleg lungnabólga, svarar ekki meö þess- um hætti. Prófiö hefir þegar verið reynt á nokkrum sjúklingum hér i Reykjavík, sem grunaöir voru um atypiska lungnabólgu. Nokkur af prófunum hafa reynzt jákvæö og bendir þaö til, aö um þennan sama sjúkdóm sé að ræða. Einn af þessum sjúklingúm var á III. deild Landspítalans frá 16. júlí til 27. ágúst 1943. Þetta var 49 ára gamall karlmaður, sem veiktist 3. júli 1943 og hagaði sjúk- dómurinn sér í öllu mjög líkt og að framan er lýst. Aðaleinkennin voru hiti og mjög mikill hósti, bólgur í lungum, sent færðust úr

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.