Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.08.1946, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 01.08.1946, Blaðsíða 7
LÆKNABLAÐIÐ GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR Aðalritstjóri: ÓLAFUR GEIRSSON. Meðritstjórar: BJÖRN SIGURÐSSON frá Veðramóti og JÓHANNES BJÖRNSSON. 31. árg. Reykjavík 1946 7. tbl. * Lm K-vítamín. Eftir Öskar Þ. Þórðarson, dr. med. Fyrirlestur, haldinn í L. R. þann 14. nóv. 1945. Háttvirtu kollegar. Saga K-vítamínsins er glöggt dæmi þess, hve þróun nútíma læknisfræði er liáð mismunandi greinum liffræðinnar og náinni samvinnu vísindamanna um all- an heim. Á árunum 1929—33 vann danski lífefnafræðingurinn Henrik Dam að rannsóknum varðandi cholesterinefnaskipti kjúklinga, er fengu fóður, sem var sneytt næringarefnum, er leysast upp í fitu. Dam tók eftir þvi, að á einu tilraunadýranna sáust hlæðingar, sem hann áleit að stöfuðu af efnaskorti í fæð- unni, sennilega vitamínskorti. Dam sinnti þessu ekki nánar að sinni, en árið 1934 hóf hann, ásamt Schönheyder, tilraunir i því skyni, að rannsaka þessar hlæðingar nánar. Það veittist auðvelt að válda hlæðingum í dýrunum með því að gefa þeim áðurnefnt fóður. Þegar þetta fóður liafði verið sneytt þeim vítamínum, sem þá voru þeklct, og þeirn síðan liætt í fóðrið eft- ir ákveðnum reglum, kom það í ijós, að þau gátu hvorki kom- ið í veg fyrir né læknað blæð- ingarnar, en þetta var aftur á móti hægt með því að gefa dýr- unuin ákveðnar jurtategundir. Árið 1935 birti Dam ýtarlegar rannsóknir, sem sýndu, að blæðingarnar lilytu að stafa af vitamínskorti, og kallaði Dam þetta óþekkta vítamín K-víta- mín. Samtímis birti Schön- heyder rannsóknir um líffræði- leg áhrif þessa vítamíns og mælingu á þvi. K-vítamínskort-

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.