Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.08.1946, Blaðsíða 11

Læknablaðið - 01.08.1946, Blaðsíða 11
LÆKNABLAÐIÐ 101 efnið úr læðingi og verkar það, ásamt calciumiónum á prót- hrombínið þannig að það breyt- ist í thrombin, og í öðrum þætti verkar thrombínið á fibrinó- genið, þannig, að það breytist í fibrin, sem er beinagrindin i blóðstorkunni. Samkvæmt kenningu Howell’s er storknun- in þrískipt. Blóðið er fljótandi í lifandi mahni vegna þess, að heparin, sem er eggjahvítuefni, er myndast í lifrinni, heldur prólhrombíninu i föstum tengsl- um. Þegar vefsefni losnar, teng- ist það heparininu, svo að prót- hrombínið losnar. I öðrum þætli verka calciumíónarnir á prót- hrombínið svo að það breytist í throbín, og í þriðja þætti breytir thrombínið fibrinógen- inu. í fibrin. Síðasthðna öld hafa menn reynt að skýra hvers eðlis storknunin væri, en ekki komizt að endanlegri niðurstöðu. Vaf- inn er um það, hvort storknunin fer fram fyrir enzymverkun eða hún er kolloid kemiskt fyr- irbirgði. Fyrir enzymkenn- ingunni hafa verið færð gild rök, einkum hin síðari árin, og er hún nú viðurkennd af flest- um. Próthrombínið er eggjahvítu- efni og telzt til euglobulinanna. Samsetning þess þekkist ekki nákvæmlega, en svo mikið er vist, að próthrombinsameindin hefir ekki Iv-vitamin að geyma. Próthrombinið er úr stórum sameindum og kemst ekki í gegn um cellófanhimnu, það er óuppleysanlegt í vatni og þolir illa hita. Það er fyrst og fremst í plasma, en ekki í frumum lík- amans. Lítið eitt af því er einn- ig i ascitesvökva, exsudati og i mænuvökva við bólgur, og fer prótbrombinmagnið i þessum vökvum eftir eggjabvítumagni þeirra. Próthrombinið myndast i lifrinni, eins og aðrar plasma- livitur og er próthrombinmagn blóðsins því háð starfshæfileika þessa líffæris. Þegar lifrarvef- urinn sýkist eða eyðist að mild- um mun, þá lækkar próthrom- binmagn blóðsins, eða hverfur með öllu, og þegar lifrarstarf- semin er komin í mjög mikið ólag, hækkar próthrombinið ekki í blóðinu, þó að gefnir séu risavaxnir skammtar af K-vita- míni.. Próthrombinmyndunin á sér stað jafnt og þétt og ýmislegt bendir á, að próthrombinið safnist ekki fyrir í líkamanum; i bráðri lifrarbólgu byrjar pró- thrombinið t. d. að minnka 2—3 dögum eftir að gula verður sjá- anleg. Venjulega er próthrombin- magn blóðsins svo mikið, að ekki þarf nema 20% af því sem finnst lijá lieilbrigðu fólki til þess að valda storknun á eðli- legum tíma. Þegar prótbrom-

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.