Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.08.1946, Síða 8

Læknablaðið - 01.08.1946, Síða 8
98 LÆKNABLAÐH> ur dýranna lýsti sér með þeim liætti, að storknunartími blóðs- ins lengdist, og þegar dýrunum var gefið fóður, sem í var Iv- vítamín, varð storknunartími blóðsins aftur eðlilegur. Sá skammtur af K-vítamíni, sem þurfti á hvert gr. líkamsþung- ans til þess að hafa þessi álirif á avitaminotisk dýr á þrem dögum, var kallaður 1 Dam ein- ing. Ári seinna leiddu þeir Dam, Scliönheyder og Tage-Hansen rök að þvi, að storknunartrufl- unin, og þar með hlæðingarnar stöfuðu af skorti á prothrom- hini í blóðinu. Næstu 2 árin gerðist ekkert markvert í þessu máli annað en það, að niðurstöður Dams og samverkamanna hans voru staðfestar víðsvegar að. En árið 1938 birtu amerísku læknarnir Brinkhous, Warner og Smith rannsóknir, sem leiddu i Ijós, að K-vítamínið snertir sjúk- dómafræðina, nefnilega sjúk- dóma í lifur og í gallveg- um, sem ollu cliolemisk- um hlæðingum vegna próth- rombinskorts. Þá fer að koma skriður á K-vítaminmálið og kapplilaupið byrjar um það að einangra K-vítaminið og búa það til. Nú gerist margt nærri samtímis. Dam og samverkamenn hans, þar á meðal lífefnafræðingurinn Karrer, einangruðu K-vitamín úr smára (medicago sativa). Ur smáraseyði unnu þeir mjög virkt efni, sem í voru 16 millj- ónir Dam einingar K-vítamins pr. gramm. Þetta var ljósgul olía, sem hafði ákveðin adsorp- tionsspectra í útfjólubláu. Karr- er og samverkamenn lians fundu, að aðaláhrif þessarar ol- íu voru bundin við naftókinón sambönd. Samtímis því að þetta er að gerast í Evrópu, framleiddi ameriski efnafræðinguirnn Do- isy og samverkamenn lians krystallað efni úr rotnuðu fiski- mjöli. Þessir krystallar liöfðu mikil K-vítamínáhrif, um 9 milljónir Dam eininga i grammi. Doisy fann, að K-vita- mín álirifin í þessum krystöll- um voru bundin við naftókinón sambönd . Nú voru birtar rannsóknir viðsvegar að, sem leiddu í Ijós, að ýmis naftókinón sambönd höfðu K-vítamínáhrif T. d. fundu þeir Almquist og Ivlose, að phtyokol, sem er 2-methyl- 3-liydroxy-l,4 naftókinón, hafði K-vítamináhrif. Þetta efni fundu þeir Anderson og Newman árið 1933, í seyði af berldasýklum. Newman, Crowder og Anderson bjuggu þetta efni fyrstir til syn- tetiskt árið 1934. Doisy fann phtyokol í smárasej'ði, og við nánari rannsókn fann liann, að hin kemiska formúla K-víta- mírisins í þessu seyði var 2- methyl-3-phytyl-l,4 naftókinón,

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.